Fréttablaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 34
MARKAÐURINN 17. JANÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR6
Ú T L Ö N D
Flugfélög keyptu færri flugvél-
ar hjá evrópska flugvélafram-
leiðandanum Airbus í fyrra en
árið á undan. Upplýsingar um
heildarmagn keyptra véla hjá
fyrirtækinu verða ekki birtar
fyrr en í dag en breska blað-
ið Financial Times segist hafa
heimildir fyrir því að Airbus
hafi selt 800 flugvélar af öllum
gerðum á síðasta ári samanborið
við 1.055 flugvélar árið 2005.
Það er engu logið um að síð-
asta ár var einkum erfitt fyrir
Airbus, sem berst við að setja
á markað A380 risaþotuna,
stærstu farþegaflugvél í heimi.
Gengi hlutabréfa í EADS, móð-
urfélagi Airbus, féll nokkrum
sinnum á árinu eftir að greint
var frá því í tvígang að tafir
yrðu á afhendingu vélanna, sem
nú þegar er tveimur árum á
eftir áætlun.
Afleiðingarnar eru helst-
ar þær að heldur hefur saxast
á markaðshlutdeild Airbus á
flugvélamarkaðnum. Árið 2005
hafði fyrirtækið um 52 prósenta
markaðshlutdeild á heimsvísu.
Séu upplýsingar Financial
Times réttar missir Airbus allt
upp undir níu prósentustiga
sneið af markaðskökunni til
annarra flugvélaframleiðenda,
þar á meðal Boeing, sem tekið
hefur framúr fyrirtækinu sem
umsvifamesti flugvélaframleið-
andi í heimi. - jab
Airbus tapar sneið af flugmarkaðnum
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Englandsbanki kom á óvart
í síðustu viku með 25 punkta
stýrivaxtahækkun. Stýrivextir í
Bretlandi standa nú í 5,25 pró-
sentum og hafa ekki verið hærri
síðan í ágúst árið 2001.
Greinendur töldu flestir líkur
á óbreyttum vöxtum þrátt fyrir
að oftsinnis hafi verið þrýst á
stýrivaxtahækkun á síðasta ári
og bjuggust ekki við hækkun
fyrr en í besta falli í febrúar.
Seðlabanki Bandaríkjanna
ákvað í ágúst á síðasta ári að
halda stýrivöxtum óbreytt-
um eftir samfellt hækkana-
ferli í tvö ár á meðan evrópski
seðlabankinn ákvað að halda
vöxtunum óbreyttum að sinni.
Bandarískir og evrópskir fjöl-
miðlar segja stýrivaxtahækkun
Englandsbanka geta leitt til þess
að bankastjórnir beggja banka
fylgi fordæminu og hækki vexti
sína á næstu mánuðum.
Ekki liggur fyrir hvort ein-
hugur hafi verið innan peninga-
málanefndar Englandsbanka um
stýrivaxtahækkunina. Óeining
var innan nefndarinnar á síðasta
ári þrátt fyrir hækkanir í tví-
gang. Tveir af níu nefndarmönn-
um kröfðust hækkunar en fengu
ósk sína ekki uppfyllta.
Í rökstuðningi peningamála-
nefndar bankans fyrir hækkun-
inni nú kemur meðal annars fram
að hækkunin hafi verið nauðsyn-
leg í ljósi þess að verðbólga sé að
fara í 2,7 prósent, sem er mesta
verðbólga sem mælst hefur í
landinu síðastliðin tíu ár.
En það er ekki einasta að
vaxtahækkunin komi greinend-
um á óvart því fram til þessa
hefur verið venja að bankinn
ákveði stýrivaxtastig í kjölfar
birtingar verðbólgutalna. Sú hefð
var rofin í liðinni viku þar eð töl-
urnar hafa enn ekki verið birtar
heldur byggt á bráðabirgðatöl-
um Englandsbanka. Verðbólgan
er hins vegar í samræmi við
spár greinenda sem telja líkur
á að verðbólga geti farið í allt
að þrjú prósent á þessu ári, sem
aftur þýði að minnsta kosti eina
vaxtahækkun upp á fjórðung úr
prósenti til viðbótar. Gangi spár
þeirra eftir munu stýrivextir í
Bretlandi standa í 5,5 prósentum
við lok þessa árs.
Óvænt stýrivaxta-
hækkun í Bretlandi
Stýrivaxtahækkun í Bretlandi kom greinendum á óvart.
Fleiri seðlabankar gætu fylgt fordæminu.
Browne lávarður, for-
stjóri breska olíufélags-
ins BP, ætlar að láta af
störfum í lok júlí á þessu
ári. Ákvörðunin kemur
nokkuð á óvart enda var
gert ráð fyrir að Browne
myndi ekki láta af störf-
um fyrr en undir lok
næsta árs.
Browne kom til starfa
hjá BP árið 1966 og
hefur síðastliðin tólf ár
vermt forstjórastól fyrirtækisins.
Síðastliðin tvö ár hafa verið fyrir-
tækinu erfið en sprenging varð í
olíuhreinsunarstöð fyrirtækisins
í Houston í Texas í mars
fyrir tveimur árum,
með þeim afleiðingum
að fimmtán létust og
180 slösuðust auk þess
sem tæring reyndist í
leiðslum fyrirtækisins
í Prudhoe-flóa í Alaska.
Neyddist BP til að draga
úr olíuframleiðslu sinni
í Alaska um helming
vegna þessa. Browne
hefur engu að síður
verið lýst sem einum besta kaup-
sýslumanni sinnar kynslóðar enda
hefur markaðsvirði BP fimmfald-
ast undir hans stjórn. - jab
Forstjóraskipti hjá BP
Kauphöllin í New York í
Bandaríkjunum (NYSE) hefur
ásamt þremur öðrum fjár-
festahópum keypt tuttugu pró-
senta hlut í kauphöll Indlands.
Kaupverðið nemur 115 milljónum
Bandaríkjadala, eða rúmum 8,3
milljörðum íslenskra króna, sem
greiddar eru í reiðufé. Hlutur
hvers í indversku kauphöllinni
nemur fimm prósentum en lög
á Indlandi banna erlendum fjár-
festum að eiga meira í þarlend-
um fjármálastofnunum.
Fréttaveita Reuters hefur
eftir indverskum fjölmiðlum
að þetta séu ekki einu kaupin á
Indlandi því NYSE og bandaríski
hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq
eru sagðir hafa hug á að ná í hluti
í kauphöllinni í Bombay.
Kauphöllin þar í borg er ein sú
elsta í Asíu og er uppi orðrómur
um að rétt rúmur fjórðung-
ur bréfa hennar verði skráður
í nokkrum kauphöllum, þar á
meðal í kauphöllinni í Sjanghæ
og Lundúnum.
Rai Narain, forstjóri indversku
kauphallarinnar, segir kaupin vera
í samræmi við samruna kauphalla
víða um heim auk þess sem þau
komi indverskum félögum vel
sem hafi leitað út fyrir landsteina
með starfsemi sína.
Búist er við að kaupunum ljúki á
fyrri hluta þessa árs, eftir að fjár-
málayfirvöld á Indlandi hafa gefið
samþykki sitt fyrir þeim. - jab
Fjórðungur seldur
í kauphöll Indlands
Kína hefur haft
sætaskipti við Japan
sem næststærsti
markaður heims
fyrir sölu á nýjum
bílum. Bandaríkin
tróna líkt og fyrri
ár í toppsætinu
en ef fram held-
ur sem horfir taka
Kínverjar toppsætið
yfir á innan við tíu
árum.
Breska ríkis-
útvarpið hefur eftir upplýsingum
frá samtökum bílaframleiðenda
í Kína að 5,18 milljónir fólksbíla
hafi selst í Kína á síðasta ári, sem
jafngildir þrjátíu
prósenta aukningu
á milli ára.
Hagvöxtur í
Kína hefur verið
mjög mikill og
hefur hann skilað
sér í því að mun
fleiri taka bílpróf
og kaupa sér bíla nú
en áður. Kínverjar
kaupa heldur ekki
hvaða bíl sem er
því lúxuskerrur á
borð við Rolls-Royce hafa rokið
út en sala á eðalvögnunum jókst
um heil sextíu prósent í Kína á
síðasta ári. - jab
Kína veltir Japan úr sessi