Fréttablaðið - 17.02.2007, Blaðsíða 50
heimaerbest
hönnun
DNA BORÐIÐ er hönnun eftir Eero Koivisto. Það skemmtilega
við borðið er að það býður upp á óteljandi uppsetningar og passar því
inn í hvaða rými sem er. Það er samsett úr mörgum litlum og litríkum
einingum sem hægt er að raða saman á allavegu. Hægt er að velja litina
en borðið kemur í bláu, appelsínugulu og hvítu. Þetta borð má nálgast á
www.totemdesign.com.
„Ég ætla að halda þrettán námskeið
um allt land á næstunni og þau ættu
að nýtast vel þeim sem eru með
fermingarveislur í undirbúningi,“
segir Halldór. Námskeiðin segir
hann haldin í samvinnu við Blómaval
og það fyrsta verða á veitingastaðn-
um Ránni í Keflavík 19. febrúar.
Halldór lærði bakaraiðnina hér á
landi en bætti við sig kökugerðar-
kunnáttunni á ekki ómerkari stað en
Kransekagehuset í miðborg Kaup-
mannahafnar. „Ég er sérhæfður
kransakökukarl,“ segir hann hlæj-
andi og upplýsir að Danir hafi fyrir
sið að borða kransakökur með
kampavíninu á gamlárskvöld. Því
hafi fyrirtækið sem hann vann hjá
bakað allt upp í 800 kransakökur
fyrir áramótin.
En þá að námskeiðunum. „Ég bý
til deigið og kem með það tilbúið en
útdeili uppskriftinni svo fólk geti
gert þetta aftur,“ segir Halldór og
heldur áfram. „Hver og einn býr til
sína 40 manna köku á námskeiðinu
og tekur með sér heim ósamansetta.
Því er gott að þátttakendur taki með
sér ílát undir kökuna sem það getur
síðan geymt í frysti. Námskeiðið
tekur tvo og hálfan tíma og kostar
4.800 krónur fyrir manninn. Þar er
allt efni innifalið, bæði í kökuna og
skrautið, þannig að þetta er ódýr
kaka miðað við að kaupa hana úti í
bakaríi. Svo er lærdómur í faginu í
leiðinni.“
Halldór þvertekur fyrir að
kransakökugerð sé flókið fyrirbæri
en kveðst vitanlega aðstoða fólk ef
það eigi í vandræðum. „Á meðan
kökurnar bakast dundar fólk sér við
að gera skrautið og það má taka
fermingarbarnið með sér í tímana,“
segir hann. „Þá skapast enn meiri
stemning.“ - gun
Svo er skrautið búið til á sérstakan
hátt.
Æskilegt er að frysta kransakökuhring-
ina áður en þeir eru settir saman. Syk-
urinn brýtur sig í frostinu og þær verða
mýkri, að sögn Halldórs.
Allt er mælt út nákvæmlega.
Kúnstin við
kransakökur
Halldór Kr. Sigurðsson konditorimeistari ætlar á næstu
vikum að kenna landsmönnum að baka kransakökur.
Hringirnir eru mótaðir fríhendis.
Réttur flái þarf að vera á lengjunum.
Halldór er lærður konditorimeistari frá kóngsins Kaupmannahöfn en hefur kransa-
kökukennsluna sem aukabúgrein. FRÉTTABLAIÐ/VALLI
Hreinsar loftið
Eyðir lykt
Drepur bakteríur
ECC Bolholti 4
Sími 511 1001
17. FEBRÚAR 2007 LAUGARDAGUR8