Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 86

Fréttablaðið - 17.02.2007, Page 86
Þegar ég frétti af dauða Önnu Nicole Smith gat ég ekki komist hjá því að leiða hugann að öðrum tragískum blondínum sem hafa fallið frá langt fyrir aldur fram. Fórnarlömb eigin hégóma og þó fyrst og fremst samfélagsins og einhverra vitleysinga sem búa til galin tískuviðmið sem engin venjuleg kona getur staðið undir. Frægasta örlagaljóskan var ekki einu sinni alvöru ljóska. Hún var með litað hár, fór að sofa í einum dropa af Chanel 5 og vaknaði aldrei aftur. Allar frægðarljóskur hafa frá dánardægri hennar lifað og dáið í skugga Normu Jean. Sorglegt þar sem goðsögnin um ljóskuna sem heimskt kynlífsvið- fang karlmanna hefði átt að deyja með Marilyn. En nei, við höldum þessu til streitu með því að hampa fábjánum eins og Britney Spears, Paris Hilton og Önnu heitinni. Þær eru ekki síður fórnarlömb okkar en sjálfra sín um leið og þær við- halda ímynd heimsku ljóskunnar og kasta óvart og væntanlega óaf- vitandi rýrð á ljóshærðar kynsyst- ur sínar úti um allan heim. Samt ekki í alvörunni. Bara meira svona í sameiginlegri meðvitund okkar en þar er sem betur fer allt í plati. Eða hvað? Sem ljóska vil ég alls ekki skrifa undir að við séum endilega ógæfu- legri en aðrar konur. Hins vegar er algjör aflitun á hári klassískur liður í því flókna ferli sem viss kventýpa gengur í gegnum með það að markmiði að skapa sér nýtt útlit, nýtt sjálf og þar með nýtt líf. Þessi kona vill þurrka sig út og skapa eitthvað nýtt. Hún vill breyta líkama sínum, nafni sínu og sögu. Hún vill enga samfellu og ekkert samhengi. Fortíðin er gleymd og framtíðin er óþarfi. Núið er hennar tímabelti. Ég lifi fyrir augnablikið, segir hún, og svo kemur að því að það augnablik er fryst í tíma. Og eftir stendur óbreytanleg mynd af ómótstæði- legri konu sem, þrátt fyrir alla ógæfu, tókst að skapa eitthvað sem er og verður lengi í minnum haft. Nora Kuzma, betur þekkt sem klámmyndastjarnan Traci Lords, vaknaði við læti um miðja nótt þegar þrír FBI-gæjar brutust inn í svefnherbergið á heimili hennar í Redondo Beach í Kaliforníu í maí 1986. Hún var enn eftir sig eftir gott kókaínpartí frá kvöldinu áður, skíthrædd um það hvar hún hefði falið restina af dópinu enda hélt hún að þeir væru komnir til að handtaka hana fyrir eign á kóka- íni. En þeir voru að spá í klám- myndir sem hún hafði verið að leika í síðustu þrjú árin undir lög- aldri. Traci Lords, sem var nýbúin að halda upp á 18 ára afmæli sitt (sem er löglegi aldurinn til þess að leika í fullorðinsmyndum) byrjaði 15 ára að leika í klámmyndum og lék hún í 77 myndum á þessum 3 árum, þar má telja upp myndir eins og „Those Young Girls“, „We Like to Tease“, „New Wave Hoo- kers“, „Educating Mandy“ og „Bad Girls III“. Ógæfuljóskurnar eru dýrkaðar og dáðar fyrir útlitið. Þær verða fljót- lega hundleiðar á því enda eru óumflýjanleg örlög þeirra að eng- inn hlustar á hvað þær hafa að segja. Manneskjan með sálina koðnar niður og finnst hún einskis virði. Því miður er samfélagið svo upptekið af því að segja hvað það er eftirsóknarvert að vera ljóskan að fjölmargar konur eltast við að fylgja uppskriftinni. Við sjáum það á þátttöku kvenna í klámvæð- ingunni og fjölda „fegrunarað- gerða“. Ef við viljum læra eitt- hvað af ógæfuljóskunum er það helst að hamingjan felst í því að vera metin sem manneskja. Konur sem gera sjálfar sig að leik- föngum karlmanna eru dauðanum merktar því „draumakona“ karla er ekki til í veruleikanum heldur aðeins sem dauð hugmynd í kolli þeirra. Leikfangið drepur þannig í sér konuna fyrir þessa hugmynd og er því þegar hálfdautt, svona eins og dúkkur eru. Þegar leik- fangið lætur síðan á sjá er ekki annað að gera en kasta sér á haug- ana því karlmannskrakkinn vill sífellt nýrri leikföng. Í laginu Platinum Blonde með Blondie raular Debb- ie Harry um að hún vilji lita hárið á sér „A luminous Dayglo shade, walk into a bar and I’ll have it made.“ Marilyn Monroe söng „Gentlemen Prefer Blond- es“ með sinni mjúku og stelpu- legu rödd. Fyrsta og frægusta staðalmynd ógæfuljóskunnar var auðvitað Marilyn Monroe. Fögur kona sem samt breytti útliti sínu algerlega. Litaði dökka lokkana og skapaði sterka uppskrift sem enn lifir sterkt í dag: viðkvæma, brothætta kynbomban með aflit- að hár og sorglega, stutta ævi. Konur sem voru oftast frægar fyrir lítið annað en háralitinn og ímyndina. Hægt er að þylja upp röð af fagurlimuðum gerviljóskum sem fylgdu í kjólfar Marilyn: bomb- urnar Jayne Mansfield og Brigitte Bardot, jaðartýpurnar Edie Sedgwick og Nico í Velvet Underground, Paula Yates fyrr- um eiginkona Michael Hutch- ence - og svo nú í dag sjást þær fremur í „kitsch“-útfæringum Pamelu Anderson, fyrrnenfdri Önnu Nicole, Britney Spears og Paris Hilton. Á tímum steinaldar, segja mannfræðingar, þegar frummaðurinn leitaði sér að kvonfangi þá valdi hann sér oft ljóshærðara kvendýr. Slík skepna hafði sérstöðu meðal loðinna dökkra nendertalsmanna og veitti karlinum því aukna virð- ingu innan ættbálksins. Nýleg rannsókn í Bretlandi sýndi hins- vegar að þegar 1.500 karl- menn skoðuðu myndir af sömu konunni: ljóshærðri, rauðhærðri og dökkhærðri, þá fékk sú síðarnefnda vin- sældavinningin. Platínu- ljóskan var oftast talin „Við- kvæm, þurfandi, ósjálfstæð“ en sú dökkhærða var „Greind og sjálfstæð“. En við erum ekki að tala hér bara um „venjulegar“ ljóskur. Ekki um náttúru- legar ljóskur, eða færi- bandastrípuljóskur. Við erum að tala um ógæf- uljóskurnar sem skinu svo skært og féllu svo hratt. Margar enduðu líf sitt í móðu eit- urlyfja og læknadóps. Gerviljóskur sem voru ýmist eða allt í senn: brothættar, við- kvæmar, töff. Konur sem breyttu útliti sínu eins og þær væru að skapa eigið listaverk. Hvort sem þær gerðu það fyrir sig sjálfar eða í þágu ein- hverrar ímyndarfantasíu karl- peningsins. Sumar urðu líka hrein listaverk. En undar- leg örlög margra þessa hvíthærðu kvenna er umhugsunarefni og ákveðin endur- speglun poppkúlt- úrs síðustu aldar. Mýtan um ógæfuljóskuna Hvað er ógæfuljóska fyrir þér? Anna Nicole Smith er enn ein platínu- blondínan sem endar stutta frægðarævi sína á tragískan hátt. Anna Margrét Björnsson lítur yfir frægustu ljóskur sam- tímans og spyr af hverju aflitaða ljóshærða bomban vill svo oft breytast í sjálfseyðandi sjálfsmorðssprengju?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.