Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 17
Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is Verkefni um nýtingu jarðhita til orku- vinnslu á Ísafirði er eitt þeirra verkefna sem kynnt verður á sérstökum tækni- degi í Háskólanum í Reykjavík næsta föstudag. „Mjög hagkvæmt væri fyrir Orkubú Vest- fjarða að nýta jarðhita til orkuvinnslu,“ segir Tinna Björk Sigmundsdóttir, sem vann ásamt Hildi Sigurðardóttur og Þorgerði Tómasdótt- ur að verkefni um nýtingu jarðhita til orku- veitu á Ísafirði. „Miðað er við að borað verði eftir heitu vatni við Tungudal í Skutulsfirði og þar finnist 30 lítrar á sekúndu af 65 gráðu heitu vatni. Tvö aðskilin dreifikerfi eru á svæðinu, og gert ráð fyrir að þau verði tengd saman. Vatnið er hitað upp í kyndistöðvum og leitt inn á kerfið,“ segir Tinna. Verkefnið er lokaverkefni þeirra við Háskólann í Reykjavík en þær útskrifuðust þaðan í desember síðastliðinn með b.sc. gráðu í iðnaðartæknifræði með áherslu á sjálfvirkni og þróunarsvið, og munu þær kynna verkefnið á sérstökum tæknidegi í Háskólanum í Reykjavík að Höfðabakka, næsta föstudag, sem Technis, félag tækni- fræðinema, stendur fyrir. „Á Ísafirði er svokölluð fjarvarmaveita sem þýðir að hita þarf upp vatnið, og fer mikil orka og kostnaður í það. Ef jarðvarmi yrði leiddur inn á kerfið þá myndi kostnaður við upphitun minnka til muna,“ segir Tinna Björk. Mikill áhugi er fyrir því að koma þessu á, en hún segir að það myndi kosta um 200 milljónir, en menn séu spenntir fyrir því að láta það verða að veruleika. Jarðhiti á Ísafirði BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 Opnunartímar: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 Skenkur 150x40xH:90 Verð: 79.000,- Hvíttuð eikarlína Stækkanlegt borð stærð: 160(248)x100 Einnig fáanlegt í stærð: 200(288)x110 140(230)x140 Verð frá: 116.000,- Leðurstóll Paris Verð: 17.500,- Borðstofuborð og 6 stólar saman -10% Verð: 198.900,- Borðstofuborð og 6 leðurstólar saman stærð: 180x100 Verð áður: 183.800.- -25% Tilboðsverð: 137.850,- Á öskudaginn! Ávextir og grænmeti er líka sælgæti! Tannlæknafélag Íslands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.