Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 4
 Nauðsynlegt þykir að efla ritskoðun á efni sem sett er inn á samskiptavefi á borð við einkamal. is. Þetta segir Rúna Sif Harðardótt- ir, þjónustustjóri D3, sem annast umsjón vefsíðunnar einkamál.is. Tveir fimmtán ára drengir viður- kenndu í gær í þættinum Bítið, að hafa lokkað til sín eldri karlmenn með svokallaðri tálbeituaðferð. Drengirnir þóttust vera fjórtán ára stúlkur og höfðu þeir fé af körlunum í skiptum fyrir myndir. Drengirnir skipulögðu því næst stefnumót og tóku þá myndir af mönnunum. Slík uppátæki þykja varasöm og eftir að viðtalið birtist sendi verkefnið SAFT, sem barist hefur fyrir öruggari netnotkun barna og unglinga, frá sér fréttatilkynningu þar sem harmað var að almenningur tæki lögin í sínar hend- ur með þessum hætti. Rúna segir slæmt til þess að vita að svona samskipti fari fram í gegn- um einkamal.is. „Sjálf fer ég yfir vefinn einu sinni á dag til að athuga hvort þar sé eitthvað misjafnt á ferðinni, það er meiri skoðun en við- gengst á svipuðum vefjum. Ég kemst samt ekki yfir allt enda um 110 þúsund notendur sem stunda vefinn,“ segir Rúna. Þau svör fengust hjá Höddu Hreiðarsdóttur, vefstjóra Vísis, sem einkamal.is eru hluti af, að aðgerðaráætlun væri í vinnslu um einka- mal.is. Von væri á niðurstöðum innan tíðar. Hún tók undir orð Rúnu um að þörf gæti verið á að fara betur yfir þau innlegg sem sett eru á vefsíðuna. Undirbúningur fyrir matarskattslækkunina 1. mars er í fullum gangi hjá framleiðendum, heildsölum og kaupmönnum. Framleiðendur, sem þurfa að láta forpakka og formerkja vöru, byrja á morgun að verðmerkja sam- kvæmt nýju reglunum þannig að vörur verði rétt verðmerktar í verslunum þegar virðisaukaskatt- ur lækkar og vörugjöld verða afnumin fimmtudaginn 1. mars. Sigurður Þ. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir að endurmerkja verði vörur, skrifa nýja hillumiða og ganga frá prósentulækkun í kassakerfi. Þetta síðarnefnda sé ekki flókið en meira mál sé að skipta út hillumiðum og það verði gert að morgni 1. mars. „Forpakk- aðar vörur fara að lækka í verði á morgun,“ segir hann. Guðbrandur Sigurðsson, for- stjóri MS, segir að þegar sé byrjað að verðmerkja ost samkvæmt nýju reglunum. „Þessar breyting- ar eiga að skila sér að fullu 1. mars og við tókum forskot á sæl- una, ef svo má segja. Ostur hefur nokkurra mánaða geymsluþol og þess vegna byrjuðum við snemma í febrúar að verðmerkja sam- kvæmt nýju reglunum,“ segir hann. Starfsmenn Kaupáss eru á fullu að undirbúa breytingarnar. „Þetta er mikið verk sem þarf að undir- búa,“ segir Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Krónunnar. „Við höfum fækkað pöntunum og reyn- um að fá vörur með nýjum virðis- aukaskatti sem næst mánaðamót- um.“ Októ Einarsson, framkvæmda- stjóri hjá Danól, segir að vöru- gjöld lækki strax og ný vara komi í hús eftir 1. mars. „Það er mats- atriði hvort við lækkum þær vörur sem við eigum á lager eða höldum verðinu óbreyttu. Ef lagerinn er lítill þá lækkum við en ef við eigum mikið af vörum á lager þá reynum við að selja vörurnar fyrstu vikurnar í mars,“ segir hann. Ekki er ljóst hvernig tollalækk- un á innfluttum kjötvörum kemur út. „Ég held að heildsalar séu farn- ir að haga innkaupum sínum öðru- vísi en áður því að við höfum orðið varir við vöntun á einstaka vöru sem ber toll,“ segir Friðrik Ármann Guðmundsson, kaupmað- ur í Melabúðinni, og telur að verð- lækkun vegna tollalækkunar hafi lengri aðdraganda. Böðvar Jónsson, aðstoðarmað- ur fjármálaráðherra, telur ólík- legt að breytingar verði gerðar á áfengisgjaldi fyrir 1. mars. Matarverð þegar byrjað að lækka Framleiðendur byrja að verðmerkja matvöru samkvæmt nýju reglunum í dag og næstu daga koma þessar vörur í verslanir. Vörur getur vantað næstu daga þar sem í mörgum tilfellum er lítið til á lager. Photoshop ljósmyndun Námskeið fyrir þá sem komnir eru nokkuð af stað í meðferð stafrænna ljósmynda. Farið verður í grunnatriði skráarbreytinga í ljósmyndun og vinnslu úr hráum myndum (RAW) beint úr vél í gegnum Photoshop. Megináherslur eru á lagfæringar lita og ljóshita, grunnatriði myndvinnslu á mismunandi hátt. Unnið er með skapandi hugsun, myndbyggingu og þátttakendum leiðbeint í að virkja eigin sköpun til að skapa áhugaverðar ljósmyndir. Lengd 30 std. Verð kr. 29.000,- Kennsla hefst 26. feb og lýkur 14. mars, kennt er mán og mið kl. 18 - 21.30. FAXAFEN 10 108 REYKJAVÍK GLERÁRGATA 36 600 AKUREYRI WWW.TSK.IS SKOLI@TSK.IS SÍMI: 544 2210 Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti segir að Íranar geti vel hugsað sér að hætta auðgun úrans til þess að viðræður geti hafist, en þá verða líka Bandaríkja- menn og aðrir sem biðja um slíkar viðræður að gera slíkt hið sama og hætta að auðga úran. „Við viljum viðræður, en það verða að vera sanngjarnar viðræður. Það þýðir að báðir aðilar mæti til viðræðna með sömu skilyrðum,“ sagði hann. Í dag rennur út sá frestur sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna gaf Írönum til þess að hætta auðgun úrans, að öðrum kosti megi þeir reikna með frekari refsiaðgerðum. Til í að hætta ef aðrir hætta Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á mánudag eftir að hafa stolið ósamsettu fjórhjóli og dekkjum sem með því fylgdu þar sem það stóð fyrir utan verslun í Reykja- vík. Fjórhjólið, sem var glænýtt, fannst skömmu síðar á verkstæði annars staðar í borginni þar sem maðurinn var að eiga við það. Maðurinn sagðist hafa fundið hjólið fyrir utan verkstæðið. Lögregla tók þau orð mannsins ekki trúanleg. Þá fannst jeppakerra á verkstæðinu sem grunur leikur á að maðurinn hafi einnig stolið. Sagðist hafa fundið hjólið „Það urðu allir sælir og glaðir þegar þeir fengu loksins bíl,“ segir Guðmundur Börkur Thorarensen, framkvæmdastjóri Bifreiðastöðvar Reykjavíkur. Þeir sem hringdu í stöðina til að fá leigubíl um klukkan tíu í gærmorgun fengu ekki bíl þar sem aðeins barst tilkynning um að númer stöðvarinnar væri lokað. Guðmundur segir þó af og frá að gleymst hafi að borga símreikn- inga heldur hafi komið upp bilun sem varði í um 40 mínútur. Mistökin komu ekki í ljós fyrr en bílstjórum fór að þykja vaktin grunsamlega róleg. „Ég vona að allir hafi fengið bíl að lokum,“ segir Guðmundur brattari eftir að málum var kippt í liðinn. Grunsamlega róleg vakt á BSR Eldur kom upp í Tréverkshúsinu á Bíldudal um hádegisbilið í gær. Allt tiltækt lið frá Brunavörnum Vesturbyggðar var kallað út til að slökkva eldinn sem gekk erfiðlega þar sem hann hafði borist hratt um allt húsið. Eldsupptök eru ókunn en að sögn lögreglunnar verða tækni- menn sendir til Bíldudals á morgun til að rannsaka eldsupp- tök. Engin starfsemi hefur verið í húsinu frá því um jól. Ekki er vitað um hversu mikið tjón er að ræða vegna brunans en lögreglan segir að allt sem brunnið gat hafi orðið eldinum að bráð. Skemmdist mikið í eldi Kristinn H. Gunnars- son alþingismaður ákvað í gær að þiggja annað sæti á framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvest- urkjördæmi fyrir alþingiskosn- ingarnar í maí. Kristinn sagði að sér hefðu staðið margir kostir til boða. „Aðalástæðan fyrir því að ég valdi Norðvesturkjördæmi er að þar hef ég starfað að undanförnu, því ákvað ég að fara þar fram þótt það væri í annað sæti,“ segir Kristinn en Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lyndra, er í fyrsta sæti kjördæm- isins. Kristinn gekk formlega í raðir Frjálslynda flokksins í fyrradag. Kristinn H. í annað sæti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.