Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 12
Jaroslaw Kaczynski,
forsætisráðherra Póllands, sagðist
í gær telja að andstöðu Rússa við
áform Bandaríkjamanna um að
koma upp búnaði fyrir eldflauga-
varnakerfi sitt í Póllandi megi
rekja til vona ráðamanna í Moskvu
um að endurheimta fyrri ítök í land-
inu.
Utanríkisráðherra Rússlands,
Sergei Lavrov, ítrekaði í gær
áhyggjur Rússa af málinu og sagði
að þeir myndu bregðast við „slík-
um nýjum ógnum við öryggi sitt“
með viðhlítandi hætti. Lavrov tók
þó fram að Rússar myndu ekki
„láta draga sig inn í nýtt vígbúnað-
arkapphlaup“.
Bandaríkjastjórn hefur lýst
áhuga á að koma upp ratsjárstöð í
Tékklandi og skotstöð fyrir gagn-
eldflaugar í Póllandi, í því skyni að
efla hnattrænt eldflaugavarnakerfi
sitt, ekki síst gegn meintri ógn frá
Íran. Forsætisráðherrar Póllands
og Tékklands sögðust í fyrradag
myndu bregðast vel við þessari
beiðni Bandaríkjamanna.
1. Skýrsla stjórnar um hag félagsins og starfsemi á hinu liðna starfsári.
2. Ársreikningur félagsins lagður fram til staðfestingar.
3. Tekin ákvörðun um greiðslu arðs.
4. Ákveðin þóknun til stjórnar félagsins.
5. Stjórnarkjör.
6. Kjör endurskoðenda.
7 . Tillaga um starfskjarastefnu.
8. Tillaga um breytingar á samþykktum.
Að taka út 2. málslið 4. mgr. 8. gr., sem kveður á um að aðalfund skuli boða
með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Viðbætur við 8. gr. vegna rafrænnar þátttöku í hluthafafundum og rafrænna hluthafafunda.
Breyting á 9. gr. um að á dagskrá aðalfundar verði tillögur um starfskjarastefnu.
Viðbót við 12. gr. um upplýsingar í framboðstilkynningu þeirra sem gefa kost á sér
til stjórnarsetu.
9. Tillaga um kaup á eigin hlutum.
10. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur
félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins
hluthöfum til sýnis. Ennfremur er hægt að nálgast
þær á vefsíðu félagsins www.flgroup.is.
Sérstaklega skal bent á að fundurinn verður haldinn
á ensku. Hægt verður að fylgjast með aðalfundinum
á www.flgroup.is.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent á aðalfundardaginn frá kl. 15.30 á fundar-
stað á Kjarvalsstöðum.
Reykjavík, 20. febrúar 2006.
Stjórn FL Group hf.
Aðalfundur FL Group hf. verður haldinn fimmtudaginn 22. febrúar 2007
á Kjarvalsstöðum við Flókagötu, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 16.30.
AÐALFUNDUR
FL GROUP HF.
DAGSKRÁ FUNDARINS:
a.
b.
c.
d.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Amillia Taylor var
útskrifuð í gær af sjúkrahúsi í
Miami þar sem hún fæddist fyrir
fjórum mánuðum eftir aðeins tæp-
lega 22 vikna meðgöngu, fimm og
hálfan mánuð, og er hún talin yngsti
fyrirburi í heimi sem hefur lifað af
svo stuttan meðgöngutíma. BBC
greindi frá þessu á fréttavef
sínum.
Við fæðingu var Amillia aðeins
24,1 sentimetri að lengd og 284
grömm að þyngd en yfirleitt telja
læknar engar líkur á að börn sem
léttari eru en 400 grömm lifi af. Í
dag vegur Amillia aðeins 1,8 kíló en
Sonju móður hennar þykir hún þó
taka í. „Það var erfitt að ímynda sér
að hún myndi ná svona langt. En nú
er hún farin að líta út eins og alvöru
barn.“
Landhelgisgæsla
Íslands stefnir á að flytja búnað að
strandstað Wilson Muuga í Hvals-
nesfjöru til að hreinsa olíupoll
sem þar hefur fundist. Ekki er
hægt að beita stórvirkum vinnu-
vélum til að hreinsa fjöruna án
þess að valda tjóni á náttúrunni og
því verður olíunni og olíumenguð-
um þara mokað handvirkt með
skóflum.
Fuglar sem hafa lent í olíunni
eru farnir að drepast. Fjaran við
Hvalsnes að Garðskaga er á nátt-
úruminjaskrá og mikilvægt að
hreinsun takist vel.
Helgi Jensson, forstöðumaður
hjá Umhverfisstofnun, stýrir
framkvæmdum í fjörunni. Hann
segir að hreinsun verði sett í gang
strax og búnaður er kominn í fjör-
una.
„Þetta er handavinna. Það verð-
ur að moka þessu upp í ílát og
koma því í burtu,“ segir hann.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flutti í gærmorgun starfsmenn
Olíudreifingar og Umhverfis-
stofnunar út í Wilson Muuga til að
dæla afgangsolíu upp úr lestum
skipsins en talið var að um 2,5
sentimetra olíubrák væri eftir í
lestunum. Olíubrák sást liggja frá
skipinu síðdegis í gær og sagði
Helgi að hætta væri á því að olía
slyppi frá skipinu á stórstraums-
fjöru.
Verið er að kanna hvaðan olían
í fjörunni hefur borist, hvort hún
kemur frá Wilson Muuga eða hugs-
anlega að skip hafi losað olíu fyrir
utan ströndina.
Æðarkolla sem var útötuð í olíu
fannst dauð við olíuflekkinn við
Hvalsnesfjöru í gærmorgun og
blikinn sem fannst í fyrradag, og
var annar tveggja æðarfugla sem
farið var með í Húsdýragarðinn,
drapst í fyrrinótt. Kollan verður
böðuð í dag. Svartbakur ataður í
olíu sást í höfninni í Sandgerði í
gær.
„Flothæfnin minnkar hjá fugl-
unum, þeir blotna og kólna. Þetta
er eins og að skera gat á þurrbún-
ing hjá kafara,“ segir Sigurður
Kári Valdimarsson, forstöðumað-
ur Náttúrustofu Reykjaness.
„Fuglarnir eyða miklum tíma í
að þrífa sig með goggunum þannig
að olían berst ofan í þá og hún er
ekki holl til átu.“
Fjaran við Hvalsnes að Garð-
skagavita er á náttúruminjaskrá
vegna auðugs dýralífs og fugla.
„Hreinsun á fjörunni er gríðar-
lega mikilvæg því eftir tvo mán-
uði fyllist allt af farfuglum. Ef
olían er enn í fjörunni þá vitum
við hvað gerist,“ segir Sigurður
Kári.
Olíunni verður
mokað í fötur
Landhelgisgæsla Íslands stefnir á að flytja búnað til
hreinsunarstarfa á Reykjanesi í dag. Fuglar eru þeg-
ar teknir að drepast. Fjaran er á náttúruminjaskrá.
Sparisjóður Bolungarvíkur færði á dögunum
öllum börnum sem fæddust árið 2006 og búa í Bol-
ungarvík og Súgandafirði fæðingargjafir. Þetta hefur
Sparisjóðurinn gert frá árinu 1985 og eru börnin nú
orðin 453.
Í ár fékk hvert barn 17.000 krónur sem lagðar eru
inn á bundinn verðtryggðan hávaxtareikning. Miðað
við núverandi ávöxtun mega börnin reikna með að
eiga 125.000 krónur á reikningnum sínum við 18 ára
aldurinn.
Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir, móðir eins árs
gamallar stúlku í Bolungarvík, var að vonum ánægð
með gjöfina og sagði að þarna væri verið að gefa gjöf
til framtíðar.
„Sjálf fékk ég svona fæðingargjöf á sínum tíma og
þeir peningar komu sér vel þegar ég var 18 ára. Þetta
sýnir líka að samfélagið tekur vel á móti börnum og
barnafólki,“ sagði Guðbjörg.
Á síðasta ári fæddust átta nýir Bolvíkingar og níu
Súgfirðingar.
453 börn fengið fæðingargjöf
Fulltrúar Mjólkur-
samsölunnar tilkynntu bændum á
fundi í Laugabakka í Vestur-
Húnavatnssýslu í gær að greitt
yrði fyrir svokallaða umfram-
mjólk. Lauk þar með óvissu um
hvort greitt yrði fyrir mjólkina á
núverandi verðlagsári sem hófst
1. september í fyrra og lýkur í lok
ágúst næstkomandi.
Umframmjólk er sú mjólk sem
bændur skila inn í mjólkursamlög
án þess að hafa framleiðslukvóta
með tilheyrandi niðurgreiðslu frá
ríkinu. Greitt verður fyrir alla
umframmjólkina í einu lagi í lok
verðlagsársins.
MS borgar fyrir
umframmjólk
Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
og Mahmoud Abbas, forseti
Palestínumanna, voru hvort í sínu
lagi á ferð í Jórdaníu í gær til að
ræða við þarlenda ráðamenn um
samkomulag
Hamas- og Fatah-
hreyfinga Palestínu-
manna um myndun
þjóðstjórnar.
Jórdanar og fleiri
bandamenn Palest-
ínumanna hafa
áhyggjur af því að samkomulagið
gangi ekki nógu langt í átt að því
að uppfylla kröfur alþjóðasamfé-
lagsins til að aftur verði opnað
fyrir flæði erlends hjálparfjár til
Palestínu.
Abbas er síðan á leið til
Þýskalands, með viðkomu í
Frakklandi og Bretlandi, til að afla
stuðnings við samkomulagið.
Rice og Abbas
á faraldsfæti