Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 54
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Þýðandinn Gísli Ásgeirsson og karl faðir hans hafa grafið upp ansi merkileg ættartengsl bræðranna og Vestur-Íslendinganna Scott og Grant Hjorleifson en nafn þeirra hefur borið á góma í tengslum við klámráðstefnuna sem halda á hér um miðjan mars. Bræðurnir eru nefnilega komnir af skáldinu fræga, Bólu-Hjálmari, sem þýðir að sr. Hjálmar Jónsson dómkirkju- prestur er meðal ættmenna þeirra. „Þetta var nú aðallega pabbi sem grúskaði í þessu,“ útskýrir Gísli og vill meina að séra Hjálmar eigi fátt sameiginlegt með þessum fjarskyldu frændum sínum – Hjálmar sé drengur góður, mikill íslenskumaður og gott skáld. „Ef Scott og Grant hafa einhvern tím- ann ort eitthvað þá er það bara klám. Og það er kannski ósann- gjarnt að bendla Hjálmar við þessa menn en hann er bara frægasta skyldmennið í ættinni,“ segir Gísli. Gísli bendir jafnframt á að gaman sé að velta fyrir sér merkingu orðs- ins klám í íslenskri tungu. Klám sé eitthvað sem er bæði hrjúft, gróft og erfitt en til gamans má geta að vinsæl þrekraun fyrir göngufólk á hinni víðfrægu gönguleið, Lauga- veginum, heitir einmitt Klám- brekka. Sr. Hjálmar kom af fjöllum þegar Fréttablaðið bar þessi ættar- tengsl undir hann. „Ég á ættingja í Vesturheimi eins og flestir en kann engin deili á þessum mönnum,“ segir Hjálmar sem kvaðst hafa lít- inn sem engan áhuga á umræðu um klámið og ráðstefnuna. „Ég kann ekki við þegar menn þykjast ekk- ert vera að velta sér upp úr klámi en eru samt sem áður að því.“ Klerkur kannast ekki við klámbræður „Það er mikill heiður að vera boðið að leika í þessu virta leikhúsi,“ segir Gísli Örn Garðarsson leikari, sem hefur verið ráðinn í burðarhlutverk í leikritinu Matter of Life and Death, sem sett verður á fjalirnar í breska þjóðleikhúsinu í maí. Verkið byggist á samnefndri og víðfrægri bíómynd frá 1946 með David Niven í aðalhlutverki en sviðsuppfærslan er í höndum Tom Morris og Emmu Rice. Eins og þekkt er orðið vöktu Gísli Örn og Vesturport mikla athygli í Eng- landi með Rómeó og Júlíu og Woyzcek, auk þess sem hann lék í Hamskiptum Kafka þar ytra. „Ég býst við að þetta sé afleiðing af þeim sýningum og er enn eitt ævintýrið á ferlinum. Þetta er umfangsmikil sýning, sýnd á stærsta sviði leikhússins og með mörgum þekktum nöfnum úr bresku leikhúsi.“ Gísli heldur utan 18. mars en verkið verður frumsýnt 3. maí og er sýnt til 21. júní. Þótt hann hafi leikið á ensku oft áður segir Gísli það alltaf vera þröskuld að leika á annarri tungu en móðurmálinu. „Þetta er alltaf ákveðinn þrösk- uldur og maður þarf að undirbúa sig sérstaklega vel.“ Þrátt fyrir velgengnina á Eng- landi býst Gísli Örn þó ekki við að flytja þangað. „Það stendur ekki til í bráð að minnsta kosti. Ég hef samþykkt að taka þátt í nokkrum spennandi verkefnum hér heima næsta vetur.“ Gísli Örn ráðinn í breska þjóðleikhúsið „Ég var rosalega grönn á þessum tíma, hef greinilega haft mikið að gera í barnauppeldi og vinnu. Mér sýnist mig vanta nokkur kíló. Ég held að hár- greiðslan hafi nú verið barn síns tíma, ég hef haldið mig í stutta hárinu undanfarin ár.“ Breska götublaðið The Sun birti í gær frétt um rómantískt stefnu- mót breska leikarans Jude Law og íslensku leikkonunnar Höllu Vil- hjálmsdóttur á föstudagskvöldið síðasta. „Seems like an Ice Girl, Jude,“ er fyrisögnin á frétt The Sun en Fréttablaðið greindi frá kynnum Höllu og Law á mánudag- inn. Þar kom fram, rétt eins og í frétt The Sun í gær, að Halla og Law snæddu kvöldverð á Domo og skemmtu sér svo á Sirkus. Fréttin um Höllu og Law er fremst í svo- kölluðum Showbiz-dálki sem er með þeim mest lesna á vefsíðu blaðsins. Þar má einnig sjá mynda- sýningu með myndum af Höllu en The Sun segir íslensku leikkonuna vera menntaða frá breska leiklist- arskólanum í Guildford. Fréttablaðið hafði samband við Gordon Smart, aðstoðarritstjóra afþreyingardeildar The Sun, sem upplýsti að blaðafulltrúi Jude Law hefði hringt og sagt Jude og Höllu ekki vera par. „Ég gat hins vegar ekki skilið hann betur en svo að þau væru góðir vinir,“ sagði Smart í samtali við Fréttablaðið. „Og ég er jafnframt viss um að blaðafull- trúinn hafi ekki talað við Law þar sem hann er floginn út til Los Ang- eles.“ Aðrir vefmiðlar tóku fréttina upp í gær og mátti sjá fyrirsagnir á borð við „Jude‘s New Love“ og „Ice queen raises Jude’s temp- erature?“ Sumir miðlanna eru reyndar ekki par hrifnir af Jude og framkomu hans gagn- vart ástkonum sínum og óskar blaðamaður megastar.co.uk Höllu góðs gengis með kvenna- bósann. Á huldu hefur legið hvar og hvenær Halla og Jude Law hitt- ust fyrst en sam- kvæmt áreiðan- legum heimildum Fréttablaðsins munu þau hafa kynnst á 101 Hótel á fimmtudag- inn í síðustu viku. „Ég myndi ekki telja að umfjöll- un The Sun væri slæm fyrir Höllu og það er vel hægt að nýta sér svona hluti, ferlinum til framdrátt- ar, þótt Halla eigi eflaust ekki eftir að gera það,“ segir Einar Bárðar- son, sem er eldri en tvævetra í þessum bransa og hefur margoft þurft að koma skjólstæðingum sínum á framfæri við fjöl- miðla. „Hugsan- lega er þetta ekki frétt sem hann eða hún vill en þetta er ekki vont frá mínum sjónar- hóli,“ bætir umboðsmaðurinn við. Hann segir ógjörning að fara leynt með svona stefnumót við jafn frægan mann og Law. „Og ef þú vilt það þá ferðu ekki á opinberan stað,“ segir Einar. Hann telur þó að Halla eigi eftir að takast á við þetta af stakri snilld. „Hún er dugleg og klár stelpa.“ FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.