Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 28
 21. FEBRÚAR 2007 MIÐVIKUDAGUR6 fréttablaðið 6000 snúningar Undir lok síðasta árs var kynnt nýjasta útgáfan af Honda FCX bílnum sem gengur fyrir vetni og mengar því ekki. Á næsta ári hyggst Honda hefja framleiðslu á FCX vetnisbíl sínum í Japan og Bandaríkjunum. Mikl- um tíma og fjárhæðum hefur verið varið innan fyrirtækisins í þróun á þessum bíl en fyrsta útgáfan af honum var kynnt til sögunnar árið 1999. Áhugi almennings á umhverfis- vernd er sífellt að aukast og sam- hliða því verður löggjöf um útblást- ur bifreiða strangari. Kaliforníuríki í Bandaríkjunum tók af skarið en þar voru sett lög með nokkurra ára fyrirvara um að ákveðinn fjöldi bifreiða þar þyrfti að vera laus við loftsmengun. Þá er átt við að eng- inn koltvísýringur, nituroxíð eða brennisteinsoxíð ætti að mælast í útblæstri þeirra. Þetta ákvæði þrýsti á hraðari framþróun vetnis- og rafbíla. Japanska fyrirtækið Honda hefur verið leiðandi á þessu sviði og árið 2003 fékk fyrsti útblásturs- lausi fjölskyldubíllinn vottun frá umhverfisstofnun Bandaríkjanna en hann var framleiddur af fyrir- tækinu. Á síðustu árum hefur Honda lagt mikla áherslu á svo- kallað FCX verkefni en FCX er skammstöfun á Fuel Cell eXperi- mental. FCX bíllinn gengur fyrir vetni og er einstaklega hljóðlátur. Í dag eru um tuttugu þannig bílar í notk- un í Bandaríkjunum en ekki er talið langt þangað til að hann kemst á almenna sölu. Einhverjir FCX bílar eiga að fara í sölu á næstu tveimur árum en samkvæmt áætl- un Honda á útbreiðsla þeirra að komast í hámæli árið 2018. Fyrsta útgáfan af Honda FCX kom árið 1999 og var tveggja dyra og fjögurra sæta. Vélarafl bílsins var 80 hestöfl en árið 2002 fengu borgaryfirvöld í Los Angeles fyrsta þannig bílinn til afnota. Í dag eru notaðir fimm svona bílar í borg- inni. Árið 2005 kom ný útgáfa af þessum vetnisbíl sem var að mörgu leyti lík þeirri fyrstu en hestöflin voru nú orðin 107 og farartækið sjálft orðið töluvert léttara. Hydrógenið er geymt bakvið aftur- sætin í bílnum. Gerðar voru fjölmargar tilraun- ir varðandi bílinn og undir lok síð- asta árs kom svo þriðja útgáfan en útlit bílsins hafði þá tekið mjög miklum breytingum. Nýja útgáfan er mun nútímalegri í útlit, bíllinn er fjórhjóladrifinn, fjögurra dyra og meira er lagt upp úr þægindum og plássi fyrir ökumann og far- þega. Plasti, viði og leðri er bland- að saman í innréttingu inni í bíln- um og er útkoman mjög flott. Framleiðsla á þeim mun hefjast af alvöru í Japan og Bandaríkjunum á næsta ári. Ótrúlega hárri fjárhæð hefur verið varið í FCX verkefni Honda enda er fyrirtækið í fararbroddi í þessum málum. Miklar vonir eru bundnar við þetta verkefni innan fyrirtækisins enda er þessi orku- notkun bifreiða framtíðin og gæti skilað fyrirtækinu í góða stöðu eftir einhver ár. elvargeir@frettabladid.is Framtíðin er nær en þú heldur Nýja útgáfan af Honda FCX er mjög nútímaleg og mikið lagt í þægindi ökumanns og farþega. Frá sýningu í september í fyrra þar sem nýjasta útgáfan af Honda FCX var kynnt. Gömul útgáfa af Honda FCX. Eins og glögglega má sjá hefur útlit bílsins tekið stakkaskiptum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.