Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 10
 Forstjóra og fyrrver- andi aðstoðarforstjóra Baugs bar alls ekki saman fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur um fyrirtæki sem sagt er að forsvarsmenn Baugs hafi stofnað á Bahama-eyjum, og kemur við sögu í Baugsmálinu. Tryggvi Jónsson, sem var aðstoðarforstjóri og síðar forstjóri Baugs, sagði þegar aðalmeðferð í Baugsmálinu var fram haldið í gær, að fyrirtækið Miramar hafi verið stofnað á Bahama-eyjum árið 1997. Þá hafi hann sjálfur, Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs Group, og Jón Gerald Sullenberger, framkvæmdastjóri Nordica í Bandaríkjun- um, farið til Bahama- eyja og stofnað fyrir- tækið. Tryggvi sagði í samtali við Fréttablaðið að Miramar hafi verið stofnað til að stunda fast- eigna- og landakaup, en aldrei hafi orðið af því að það hæfi starfsemi. Það hafi því verið lagt niður árið 1999, tveimur árum eftir stofnun. Þetta er í algerri mótsögn við það sem Jón Ásgeir Jóhannesson sagði við þessi sömu réttarhöld síðastliðinn fimmtudag, þegar hann hélt því statt og stöðugt fram að þetta félag hafi aldrei verið stofnað. Hann sagði að spurt hafi verið um þetta félag áður við rann- sókn málsins, en það væri ekki annað en „hugarburður“ lögreglu og saksóknara. Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksóknari í málinu, spurði Jón Ásgeir nánar út í Mir- amar, og bar undir hann tölvupóst sem virðist koma frá Tryggva. Þar segir Tryggvi að Jón Ásgeir og faðir hans, Jóhannes Jónsson, hafi átt Miramar. Jón Ásgeir sagði að það væri „vitleysa“ hjá Tryggva, og ítrekaði að félagið hefði aldrei verið stofnað. Ákæruvaldið heldur því fram að Miramar tengist skemmtibátn- um Thee Viking, en Jón Ásgeir og Tryggvi eru ákærðir fyrir fjár- drátt úr Baugi til að fjármagna bátinn. Telur ákæruvaldið að til hafi staðið að færa eignarhald Fjárfestingafélagsins Gaums, fjöl- skyldufyrirtækis Jóns Ásgeirs, í Thee Viking yfir til Miramar. Jón Ásgeir hefur þó alltaf haldið því fram að hvorki hann né Gaumur hafi nokkurn tíma átt hlut í bátn- um, og Jón Gerald var einn skráður eigandi hans. En Baugsmálið snýst ekki bara um skemmtibáta, og við skýrslutökur af Tryggva í gær viður- kenndi hann að „röð mistaka“ hafi orðið til þess að kreditreikningur frá fyrir- tækinu SMS í Færeyjum, sem var að hálfu leyti í eigu Baugs, hafi verið sendur til Baugs sumarið 2001, og færður inn í bókhaldið sem tekjur. Reikningurinn hljóðaði upp á tæpar 46,7 milljónir króna, og í ákæru segir að með því að færa þennan „tilhæfulausa“ reikning sem tekjur hafi Jón Ásgeir og Tryggvi hagrætt bókhaldi Baugs til að gefa ranga mynd af stöðu fyrirtækisins í hálfs árs uppgjöri árið 2001. Tryggvi sagði að mistökin hefðu uppgötvast síðar þetta sama ár og verið leiðrétt, en sér hafi ekki liðið illa vegna þessara mis- taka vegna þess að Baugur hefði átt 60-70 milljónir inni hjá SMS á þessum tíma vegna afsláttar sem hefði verið greiddur eftir á. Mis- tökin hafi því ekki haft óeðlileg áhrif á gengi bréfa í Baugi. Ósamræmi í framburði Framburður tveggja forsvarsmanna Baugs um fyr- irtæki á Bahama-eyjum eru í algerri andstöðu hvor við annan. Það átti að skrá eignarhald á skemmti- bátnum Thee Viking á félagið samkvæmt sækjanda. Talsvert er vísað í tölvu- póstssamskipti milli manna í Baugsmálinu, og hefur verið kannað hvort mögulegt sé að tölvupóstur sé falsaður. Málið tók þó heldur nýja stefnu í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær þegar sakborningur sýndi dómara tölvu- póst sem sannarlega var falsaður. „Það er mjög einfalt mál að búa til svona tölvupóst, mig langar að sýna þér dæmi sem búið var til í tölvu á þremur mínútum í gær- kvöldi,“ sagði Tryggvi Jónsson, einn sakborninga í Baugsmálinu. Þrátt fyrir að sækjandi mótmælti þessum málatilbúnaði fékk Gest- ur Jónsson, verjandi Tryggva, að sýna dómara póstinn. Jakob sagði aðstoðarmann sinn hafa leitað að aðferð til að falsa póstinn á netinu með aðstoð leit- arvélarinnar Google, og það hafi verið ótrúlega einfalt. „Það er allt falsanlegt, það er óumdeilt,“ sagði Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissaksókn- ari í málinu. Hann sagði að hann myndi krefjast þess að sá lögmað- ur sem útbjó póstinn yrði kallaður fyrir dóm sem vitni verði póstur- inn falski lagður fram sem gagn í málinu. Í öllu falli muni sérfræð- ingur meta póstinn og hvort hægt sé að sjá að hann sé falsaður. Tölvupóstur falsaður BAUGS M Á L I Ð25% afsláttur af öllu sælgæti í dag Við erum sæt í tilefni dagsins Tilboðið gildir á ESSO stöðvunum á höfuðborgarsvæðinu, Keflavík, Akureyri, Blönduósi, Sauðárkróki, Akranesi, Selfossi, Hveragerði, Hvolsvelli Veldu létt og mundu eftir ostinum! Mikil mildi 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.