Fréttablaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 6
Fékkst þú þér bollu á bolludag-
inn?
Er eðlilegt að stjórnvöld bregð-
ist við klámráðstefnunni?
Tæplega
fimmtugur Dani sem játaði að
hafa misnotað tvær ungar dætur
sínar og neytt aðra þeirra til
vændis var dæmdur í tíu ára
fangelsi í gær. Stúlkurnar eru níu
og tólf ára gamlar.
Misnotkun á eldri dótturinni
hófst árið 1996 þegar hún var
aðeins tveggja ára. Einnig seldi
hann aðgang að henni í gegnum
auglýsingar í dagblöðum. Fjórtán
hafa verið sakfelldir fyrir að
misnota stúlkuna. Yngri stúlkuna
misnotaði maðurinn árin 2003 og
2004. Móðirin var sakfelld fyrir
að hafa hvatt til og stundum horft
á misnotkun föðurins.
Dani misnotaði
dætur sínar
Umhverfis-
ráðherrar Evrópusambandsríkj-
anna samþykktu í gær að
aðildarríkjunum verði gert að
draga úr útblæstri koltvísýrings
um 20 prósent til ársins 2020. Enn
fremur eru þeir reiðubúnir að
draga úr útblæstrinum um 30
prósent ef önnur iðnríki gera slíkt
hið sama.
Aðildarríkin 27 eiga þó enn
eftir að koma sér saman um til
hvaða aðgerða hvert þeirra verði
að grípa til þess að ná þessu
markmiði. Reiknað er með að
sum ríkin taki á sig þyngri byrðar
í þessum efnum en önnur.
Draga verulega
úr útblæstri
Athafnamaðurinn
Þorsteinn Steingrímsson hefur
keypt Heilsuverndarstöðina við
Barónsstíg. Markús Már Árnason,
eigandi verktakafyrirtækisins
Mark-Hús sem átti húsið, staðfest-
ir að Þorsteinn hafi keypt það
fyrir um mánuði síðan.
Jón Guðmundsson hjá Fast-
eignamarkaðnum, sem seldi
Heilsuverndarstöðina fyrir Mark-
Hús, segir að kaupandinn ætli að
opna hótel í húsinu. Uppsett verð á
húsinu var 1.100 milljónir en
hvorki Markús né Jón vilja segja á
hvað húsið var selt á endanum.
Aðspurður segir Markús þó að
kaupverðið sé hærra en 1.070
milljónir. Hann keypti húsið af
Reykjavíkurborg og íslenska rík-
inu á 980 milljónir króna.
Að sögn Jóns mun kaupandinn
þurfa að breyta Heilsuverndar-
stöðinni töluvert ef hann ætlar að
reka þar hótel. Ytra borð bygging-
arinnar og þrjú anddyri hennar
eru friðuð að sögn Magnúsar
Skúlasonar, forstöðumanns Húsa-
friðunarnefndar. Magnús segir að
Þorsteinn muni þurfa sérstakt
leyfi Húsafriðunarnefndar til að
breyta friðuðum hlutum hússins.
Þorsteinn eignast einnig fimmt-
án hundruð fermetra byggingar-
rétt á milli Heilsuverndarstöðvar-
innar og Domus Medica. Magnús
segir að hann muni einnig þurfa
leyfi nefndarinnar til að byggja á
þeim reit.
Að mati Magnúsar er það sorg-
legt að ekki hafi verið hægt að
nota húsið undir heilbrigðisþjón-
ustu áfram því það sé fyrsta sér-
hannaða heilsugæsluhúsið sem
byggt var á Íslandi.
Erna Hauksdóttir, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, segir að erfitt sé að meta
hvers konar hóteli þörf er á í
Reykjavík um þessar mundir. Hún
segir að mörg ný þriggja og fjög-
urra stjörnu hótel muni opna í
borginni á árinu en að hér sé ekk-
ert fimm stjörnu lúxushótel. „Það
hefur stundum verið sagt að það
þurfi fimm stjörnu hótel hér í
Reykjavík en það þyrfti mikla
markaðssetningu til að ná til þess
hóps sem notar slík hótel ef hann
er þá til hér á landi,“ segir Erna.
Kaupsamningnum á milli Þor-
steins Steingrímssonar og Mark-
Húss hefur enn ekki verið þing-
lýst og því er ekki hægt að greina
frá nákvæmu kaupverði að svo
stöddu.
Ekki náðist í Þorstein Stein-
grímsson í gær vegna málsins.
Heilsuverndarstöð
verður breytt í hótel
Þorsteinn Steingrímsson keypti húsið á meira en 1.070 milljónir. Forstöðumað-
ur Húsafriðunarnefndar segir að Þorsteinn þurfi leyfi til að breyta friðuðum
hlutum hússins. Erna Hauksdóttir segir að í Reykjavík sé ekki lúxushótel.
„Mikil ánægja er
innan meirihlutans með forgangs-
röðun á höfuðborgarsvæðinu.
Meira kemur í hlut Reykvíkinga
en hefur verið um langt árabil,“
segir Óskar Bergsson, formaður
framkvæmdaráðs Reykjavíkur-
borgar, inntur eftir því hvort sam-
gönguáætlun Sturlu Böðvarssonar
samgönguráðherra sé ásættanleg
í augum borgarstjórnar.
Óskar segir öll helstu áherslu-
atriði borgaryfirvalda komin á
dagskrá. Dagur B. Eggertsson,
oddviti minnihlutans í borgar-
stjórn, segir á heimasíðu sinni að
samgönguáætlun líti algerlega
fram hjá óskum og forgangsröðun
sveitarfélaganna og sé „sem blaut
tuska framan í borgarstjóra“. Þar
tiltekur hann frestun stokks í Mýr-
argötu og að til Öskjuhlíðarganga
fáist aðeins undirbúningsfé á
tímabilinu. „Gagnrýni minnihlut-
ans hittir þá sjálfa fyrir því staðan
í skipulagsmálum er ekki lengra
komin vegna vandræðagangs
þeirra“, segir Óskar. Hann segir
það ástæðuna fyrir því að stokkur
við Mýrargötu er ekki á dagskrá
fyrr en 2011-2014. „Við vinnum
þetta í takt við það skipulag sem
er tilbúið á hverjum tíma.“
Óskar segir að Öskjuhlíðar-
göngin séu eina framkvæmdin
sem meðvitað er færð aftur fyrir
því mislæg gatnamót á Kringlu-
mýrarbraut og Miklubraut dragi
úr þörfinni á göngunum. Ekki náð-
ist í Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóra.
Gatnamót fresta jarðgöngum
Þegar þjóðlendu-
lögin voru sett árið 1998 var ekki
gert ráð fyrir því í að ríkið þyrfti
að greiða lögmannskostnað þeirra
sem gættu hagsmuna landeigenda.
Þessi kostnaður var 28 milljónir
króna árið 2006.
Jafnramt var ekki gert ráð fyrir
því að ríkið þyrfti að greiða kostn-
að við leit að gögnum sem snerta
framkvæmd þjóðlendulaganna,
við gerð og prentun korta, aðal-
meðferð mála og kynningu í fjöl-
miðlun á þjóðlendukröfum ríkis-
ins.
Þetta kemur fram í svari Ragn-
heiðar Árnadóttur, aðstoðarmanns
Geirs H. Haarde forsætisráðherra,
vegna kostnaður ríkisins af fram-
kvæmd þjóðlendulaga árin 1998 til
2005: hann var 447,2 milljónir
króna. Í greinargerð með þjóð-
lendulögunum kemur fram að
reikna megi með 8,8 milljóna
kostnaðar vegna framkvæmdar
laganna. Ragnheiður segir að ein-
ungis hafi verið hægt að gera grófa
útreikninga um kostnaðinn við
framkvæmd laganna því umfang
þjóðlendumála hafi verið óljóst.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði á fundi Skotveiðifé-
lags Íslands í síðustu viku að sú
breyting sem hann hefur beitt sér
fyrir á framkvæmd þjóðlendulag-
anna snúist um að óbyggðanefnd
hefji rannsókn á tilteknum svæð-
um áður en ríkið geri kröfu um að
jarðir á svæðinu verði gerðar að
þjóðlendum.
Með þessari breytingu telur
ráðherrann að minni gagnrýni
verði sett fram á lögin því kröf-
urnar verði raunhæfari og reikna
má með kostnaður vegna fram-
kvæmdar laganna minnki.
28 milljónir króna í gjafsóknir
Fólksbíll fauk út af
veginum nálægt Sandfelli í
Öræfum klukkan rúmlega þrjú í
gær. Mikið rok var á svæðinu í
gærdag. Vindhraði fór upp í
fimmtíu metra á sekúndu og lenti
bíllinn í sviptivindum að sögn
lögreglunnar á Höfn í Hafnar-
firði. Rúðurnar í bílnum brotnuðu
í atganginum og bíllinn laskaðist
töluvert.
Björgunarsveitin fór á
vettvang og aðstoðaði ökumann og
tvo farþega sem voru í bílnum;
þeir sluppu ómeiddir frá
óhappinu. Að sögn lögreglunnar
er að svo stöddu ekki vitað hversu
mikið bíllinn skemmdist.
Bíllinn fauk út
af veginum