Fréttablaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 32
Spurning: Þegar þú ræðir um að koma í veg fyrir annað kalt stríð, milli hverra sérðu fyrir þér að slíkt stríð gæti staðið? Bandaríkjanna og allra annarra? Vesturlanda og íslam? Íslam og allra annarra? Vesturlanda og Rússlands? - Jel McGill, London Svar: Það eru ekki miklar líkur á að kalt stríð eins og það sem stóð frá sjötta til níunda áratugar síð- ustu aldar bresti á aftur. En spenn- an og óttinn sem nú ríkja í heims- málunum bera sömu einkenni og þegar heimurinn stóð í skugga kjarnorkuógnar. Við horfum upp á hervæðingu margra landa, sem leggja mesta áherslu á herafla í öryggisskyni, stóraukin útgjöld til hermála, nýtt vopnakapphlaup og vaxandi hættu á útbreiðslu kjarnavopna. Og vopnasala er að fara úr böndun- um. Á yfirborðinu sýnast þetta eingöngu vera viðskipti, en í raun er þetta pólitísk stefna sem hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Í ræðu sem Vladimír Pútín Rússlandsforseti hélt í München í síðasta mánuði sagði hann að ýmsar aðgerðir Bandaríkjanna, þess lands sem gerir kröfu um einkarétt á forystu heimsmála, hefðu ýtt undir þessa varhuga- verðu þróun. Gagnrýnendur Pút- íns segja hins vegar að heimsfor- ysta af þessu tagi sé nauðsynleg og jafnvel óhjákvæmileg nú um stundir, sökum þess að eina leiðin til að hamla gegn vaxandi hryðju- verkastarfsemi sé að efla lýðræð- isþróun í heiminum. Engu að síður hafa tilraunir til að koma á lýðræði að bandarískri fyrirmynd með valdboði þegar leitt til illdeilna, jafnvel styrjalda. Það er komið nóg af tilraunum til að þröngva þessu lýðræðisformi upp á samfélög sem hafna því á forsendum menningar, sögu og trúarbragða. Lýðræði er ekki eins og skyndi- kaffi sem hægt er að flytja heims- horna milli í þægilegum pakkning- um. Tilraun til að þröngva lýðræði upp á Íraka með skriðdrekum og eldflaugum hefur mistekist hörmu- lega. Hvar sem valdi er beitt mun undirliggjandi spenna brjótast út og yfirskyggja aðrar deilur, hvort sem þær eru af þjóðlegum, trúar- legum eða landfræðilegum toga, og valda ómældum hörmungum meðal þúsunda manna. Því fer víðs fjarri að aðgerðir af þessu tagi hamli gegn hryðjuverkum, þær hvetja einungis til þeirra. Ýmislegt annað minnir á liðna daga kalda stríðsins. Sum banda- lög eru að undirbúa aðgerðir án nokkurs tillits til alþjóðalaga og alþjóðastofnana. Þannig virðist NATO til dæmis stefna markvisst að aukinni hernaðaruppbyggingu og hefur fært viðmiðunarmörk um beinar aðgerðir langt umfram það sem áður þekktist. Þetta gengur þvert á fyrirheit sem gefin voru undir lok níunda áratugar síðustu aldar um að hlutverk bandalagsins yrði fyrst og fremst stjórnmála- legs eðlis. Bandalagið reynir nú að hasla sér völl sem ráðandi afl í heims- málum og grefur samtímis undan öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Framkvæmdastjóri bandalagsins tilkynnti nýlega að verið væri að undirbúa langtímaáætlun um ein- hliða aðgerðir af hálfu bandalags- ins hvar og hvenær sem vandi steðjaði að. Á sama tíma leita ákveðin ríki dyrum og dyngjum eftir utanað- komandi óvini eða reyna að búa sér hann til. Hryðjuverkahættan er orðin fyrirsláttur fyrir áróðri gegn múslimum og fordæmingu ríkja sem kölluð eru alls kyns ónefnum á borð við öxulveldi hins illa. Sem Rússi hef ég verulegar áhyggjur af endurteknum hræðslu- áróðri með þátttöku fjölmiðla og stjórnmálamanna gegn Rússlandi í því augnamiði að grafa undan trú- verðugleika landsins. Þetta gerir ekkert annað en að eitra alþjóðlegt andrúmsloft og ala á tortryggni. Robert Gates, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, setti þannig Rússland nýverið á lista óútreik- anlegra ríkja sem gætu orðið Bandaríkjunum óvinveitt. Hvort sem þetta voru mismæli eður ei, þá voru þetta að minnsta kosti freudísk mismæli, sem gáfu til kynna hugarfar sem ekkert hefur breyst þrátt fyrir að kalda stríðið sé löngu liðin tíð. Kína var líka nefnt í sömu andrá. Augljóst er að einhverjir sem móta utanrík- isstefnu Bandaríkjanna líta einnig á Kína sem hugsanlegan deiluaðila frekar en uppbyggilegan sam- starfsaðila. Pólitísk leikfimi og áróður af þessu tagi gerir fátt annað en að beina athyglinni frá þeim hættum sem við blasa og þeim verkefnum sem heimurinn þarf að takast á við, þar með talinni hryðjuverka- starfsemi. Vitanlega verðum við að berjast gegn hryðjuverkum en það er misráðið að láta heimsmálin snúast um þetta eina vandamál og láta hjá líða að beina sjónum að rótum þess, þar á meðal þeim djúpu gjám sem myndast hafa sökum vaxandi misréttis í heimin- um. Fátækt, sem fer saman við skort á heilbrigðisþjónustu, menntun og öðrum nauðsynlegum þáttum eðli- legrar þróunar, orsakar niðurlæg- ingu og örvæntingu sem hefur öfgar í för með sér. Meginorsök vandans má rekja til sjálfhverfrar efnahagsstefnu ríku landanna sem veldur því að bilið milli þeirra og fátæku landanna breikkar stöðugt. Er hægt að bregðast við þess- um vanda með hervaldi? Nei. Það sem þarf er breytt for- gangsröðun. Gjáin milli orða og efnda æðstu valdamanna heims er hróplegt hneyksli. Engra breyt- inga er að vænta án þess að til komi þrýstingur frá alþjóðlegum stofnunum hins borgaralega sam- félags. Þetta þekki ég af eigin reynslu. Við þurfum að taka upp nýja stefnu og nýja nálgun í alþjóðamálum. Tökum fólksflutninga sem dæmi. Sjálfstæð ríki glíma mörg við vaxandi vanda vegna aukinna fólksflutinga. Bandaríkin eru að byggja varnargirðingu á suður- landamærum sínum. Spánn er orð- inn inngönguhlið til Evrópu fyrir þúsundir innflytjenda. Alþjóða- stofnanir verða að taka á þessum vanda, ekki einungis Evrópusam- bandið og Samvinnustofnun Sjang- hæ, heldur einnig öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna. Hægt er að ná árangri með pólit- ískum og diplómatískum lausnum. Nýjasta dæmið er samkomulagið við Norður-Kóreumenn um að þeir leggi kjarnorkuáætlun sína á hill- una. Svipuð nálgun gæti gengið í málefnum Írans og Íraks. Þeir sem ekkert sjá nema hernaðarlausnir vilja hins vegar ekkert af þessu vita. Þolinmæðin og samræðan sem nauðsynleg er til að finna frið- samlegar lausnir á vandamálum er þar hvergi á dagskrá. Að undanförnu hefur ekki aðeins virst sem nýtt kalt stríð sé í uppsiglingu milli Rússlands og Bandaríkjanna, heldur nýtt vopna- kapphlaup sömuleiðis. Sem svar við þessu hafa rússneskir stjórn- málamenn, þar á meðal yfirhers- höfðinginn, rætt um að rifta samn- ingnum um bann við meðaldrægum kjarnorkueldflaugum. Yfirlýsing frá Bush Bandaríkjaforseta og Pútín Rússlandsforseta þess efnis að löndin séu ekki óvinveitt hvort öðru og að traust ríki milli leiðtoga þeirra væri skref í rétta átt. Þegar hefur dregið úr mestu spennunni en mikið verk er óunnið ennþá. Fyrir mörgum árum, þegar við vorum að vinna að bættum sam- skiptum Rússlands og Bandaríkj- anna, settu ríkisstjórnir landanna á fót vinnuhópa sem héldu reglu- lega fundi til að ræða sérhvert mál sem snerti hagsmuni beggja ríkj- anna. Með því að ræða í þaula hvert einstakt mál fyrir sig tókst að draga verulega úr spennu milli landanna. Þessi nálgun gæti komið að gagni á ný, ekki einungis í tilviki Bandaríkjanna og Rússlands held- ur fyrir önnur ríki sömuleiðis. Bætt samskipti milli Bandaríkj- anna og endurnýjaðs Rússlands, sér í lagi ef þjóðirnar geta komist að samkomulagi um afvopnun, gæti verið gott fordæmi um leiðir til að leysa sameiginlegan ágrein- ing. Það var uppörvandi að sjá grein á þessum nótum nýlega í Wall Street Journal eftir þá fyrrverandi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna George Shultz og Henry Kissinger, ásamt fyrrverandi öldungardeild- arþingmanninn Sam Nunn og Willi- am Perry, fyrrverandi varnar- málaráðherra. Í pistli mínum í Wall Street Journal í síðasta mán- uði sýndi ég stuðning minn við þessar hugmyndir með því að nefna þrjú forgangsatriði sem kjarnorkuríkin ættu að hafa í huga: að endurnýja skuldbindingar sínar um það langtímamarkmið að eyða öllum kjarnavopnum; að staðfesta enn frekar bannið við kjarnorku- tilraunum og að leggja af allar við- bragðsáætlanir sem fela í sér notk- un kjarnavopna. Á móti myndu önnur lönd sem búa yfir kjarnavopnum heita því að sú tæknikunnátta yrði ekki notuð í hernaðarskyni. Tillaga Pút- íns til Bandaríkjamanna um að vinna að nýju samkomulagi sem leysti af hólmi samninginn um að draga úr fjölda hefðbundinna kjarnavopna (START) frá 1991 er í fullu samræmi við þetta frum- kvæði. Í stað þess að draga upp myndir af hugsanlegu nýju köldu stríði, og skipa í hlutverk í þessari varhuga- verðu þróun, verðum við að leita allra leiða til að koma í veg fyrir hana. Þar geta öll lönd lagt sitt til mál- anna en í hreinskilni sagt lít ég svo á að Bandaríkin og Rússland verði að taka frumkvæðið. Þau geta lagt miklu meira af mörkum en þau hafa gert hingað til. Samvinna, ekki hernaður Samvinna er leiðin til að forðast nýtt kalt stríð, ekki hernaðarhyggja, segir Mikhaíl Gorbatsjov í annarri grein sinni um heims- málin. Hann segir öll lönd geta lagt sitt af mörkum, en Bandaríkin og Rússland verði að taka frumkvæðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.