Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 88

Fréttablaðið - 03.03.2007, Page 88
Fléttan í leikritinu Killer Joe er kunnugleg saga um örvæntingar- fullar tilraunir undirmálsfólks sem reynir að komast í álnir. Sagan hefur verið sögð grilljón sinnum áður, en á sviðinu í Borgarleikhús- inu lifnar hún við í dæmalaust skemmtilegri sýningu. Þetta er grimm tilvera þar sem þeir sem mega sín lítils troða á þeim sem mega sín ennþá minna og réttlæta græðgina í nafni vænt- umþykju og ástar. Persónurnar eru litríkar og leikhópurinn nýtir sér það vel, þetta er óborganleg fjölskylda sem undir lok verksins situr þrúguð, barin og kúguð við eldhúsborðið og borðar sinn KFC. Þetta er dálítið blóðug sýning enda hverfist verkið um morð og aga- legar afleiðingar þess að svíkja sína nánustu en aðstæðurnar eru yfirgengilega fyndnar. Maður spyr sig hvers vegna þetta verk er sett upp núna, rúmum tíu árum frá frumsýningu þess í Bandaríkjun- um, en svarið hlýtur að felast í þeirri staðreynd að ófarir annarra eru eilíft aðhlátursefni og í leikrit- inu felst fremur góðlátleg árás á líf hjólhýsapakks sem nú er móð- ins að gantast með. Leikhópurinn glansar í þessu ótótlega umhverfi hvíta hyskisins. Þröstur Leó leikur fjölskylduföð- urinn Ansel, dugminni luðra hefur sjaldan sést og uppskar leikarinn heilmikinn hlátur en einnig með- aumkun. Börnin hans Dottie (Unnur Ösp) og Chris (Þorvaldur Davíð) eru engin afbragðseintök heldur, hvað þá kvendið Sharla sem Maríanna Clara túlkar frá- bærlega. Björn Thors er einnig frábær í titilhlutverki leigumorð- ingjans og lögreglumannsins Joe sem er svo trylltur en samt næst- um barnalegri en hin vanþroskaða Dottie. Samleikur Björns og Unnar er aðallímið í sýningunni og það heldur allan tímann. Tímasetning- ar þeirra eru afar vel hugsaðar, bæði í gríni og dramatík. Samband Dottie og bróðurins er ekki jafn vel heppnað en persóna Chris er að mínu mati veikasti hlekkurinn í sýningunni því frammistaða Þor- valdar var að mínu mati alls ekki jafn sterk og hinna leikaranna. Orðfærið fannst mér líka full fágað hjá þessu aumingjans fólki, persónurnar bölvuðu dálítið en voru annars næstum of vel máli farnar. Ekki veit ég hvort svo hafi verið á frummálinu einnig. Tónlist Péturs Ben er virkilega góð og við- eigandi, mátulega svöl og rykug fyrir andrúmsloft sýningarinnar. Leikmynd Vytautas Narbutas er vel heppnuð að vanda. Reyndar vinnur Litla sviðið gegn innilokun- inni sem vísast plagar persónurnar en umhverfið er hugvitsamlegt - yfirgengilega hlaðið af drasli og vísunum. Búningar Filippíu Elís- dóttur eru síðan kirsuberið á þess- um ofhlaðna ís, alveg stórskemmti- lega óviðeigandi klæðnaðurinn var afbragð, sér í lagi múnderingar Joe. Á hinn bóginn fannst mér lýs- ingin sem notuð var milli senanna afar óþægileg lausn á algengum vanda. Stefán Baldursson leikstjóri valdi í áherslum sínum kunnáttu- samlega blöndu af háði og með- aumkun og það er gott jafnvægi í þessari sýningu, sem að mínu mati er vel heppnuð afþreying fyrir fólk sem lætur sér ekki bregða við smá ofbeldi og bjórblautan hasar. Bjórblautur hasar 28 1 2 3 4 5 6 „DAUÐUR, SKÍTUGUR, TÓMUR“ DAGUR VONAR Hvers vegna er einmitt nú brýn þörf á þingframboði eldri borgara og öryrkja? Baráttusamtök eldri borgara (55+) og öryrkja boða til almenns framboðsfundar sunnudaginn 4. mars 2007 kl. 14:00 að Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík. Fundarefni: Sameiginlegt framboð eldri borgara og öryrkja í þingkosningunum 12. maí 2007 í samvinnu við fulltrúa frá Átakshópi örykja. Dagskrá: 1. Formaður Baráttusamtakanna, Arndís H. Björnsdóttir, ávarpar fundargesti og flytur stutt erindi um stöðu eldri borgara í “velferðarsamfélaginu”. 2. Erindi um stöðu aldraðra í bótakerfinu: Einar Guðmundsson 3. Aðild að lífeyrissjóðunum. Kristján S. Guðmundsson. 4. Gerð verður grein fyrir drögum að verkefnaskrá framboðsins. 5. Lögð verður fram tillaga að 3 einstaklingum í undirbúningsnefnd framboðsins. 6. Tillaga um samþykkt sameiginlegs framboðs eldri borgara og öryrkja í samvinnu við fulltrúa úr átakshópi öryrkja. Baráttusamtökin leggja áherslu á að sem fl estir mæti. Alfl est okkar eldast og aldrei hefur verið meiri nauðsyn en nú að sjá til þess að okkur verði tryggt gott og áhyggjulaust ævikvöld. Standið vörð um ævikvöld ykkar og mætið sem flest - ungir sem aldnir. Baráttusamtökin. &
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.