Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 78

Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 78
B areigandinn Alexus Remzi Konuk er yfirleitt kallaður Olli en á dögunum kom hann í sína aðra heimsókn til Íslands. Starfið hans hefur vakið vinskap hjá mörgum og hér á hann hauka í horni sem hafa verið heimalning- ar á barnum hjá honum. „Þetta er bara staður þar sem þú getur mætt og fengið þér drykk og það er allt- af góð tónlist í bakgrunninum,“ segir Olli hógvær þegar hann er beðinn að lýsa aðdráttarafli stað- arins. Barinn hefur orðið goð- sagnakennt yfirbragð í hugum margra, sumar sögurnar staðfest- ir eigandinn en aðrar fá hann bara til að brosa véfréttarlega út í annað. Olli hefur nú staðið bak við borðið í Schönhauser Allee í rúm fjögur ár en barinn stofnaði hann ásamt félaga sínum. Þetta er óvenju langur líftími fyrir skemmtistað í Berlín þar sem þeir eiga það til að spretta upp eins og gorkúlur og hverfa jafnharðan. Nú hafa þeir félagar fært úr kvíarnar og stofnað plötufyrir- tækið 8MM Musik en af lýsingun- um að dæma er stemningin í þeirri bisnessdeild líkt og á barnum – sveitt en heimilisleg. Meðal lista- mannanna sem 8MM Musik fóstr- ar er rokksveitin Singapore Sling og íslenski blústónlistarmaðurinn ET Tumason. Olli útskýrir að fyrir rúmu einu og hálfu ári hafi hljómsveitin Singa- pore Sling ráfað inn á barinn. „Ég þekkti þau ekki fyrst því ég hafði bara frétt af hljómsveitinni í gegn- um bandaríska fjölmiðla. Þau féllu vel í hópinn en ég tók eftir því að þeir pöntuðu meira en hinir kúnn- arnir – allir drykkirnir þurftu að vera tvöfaldir, tvöfaldur vodka, tvöfaldur absint. Ég hafði sett lagið þeirra „Overdriver“ í spilun löngu áður en þegar það byrjaði að hljóma þetta kvöld þá gengu Íslendingarnir af göflunum.“ Þegar Olli komst að því hvaða þyrsta fólk þetta var bauð hann þeim umgang og bað um eintak af plötunni. „Eftir þetta urðum við vinir og ég skipulagði tónleika fyrir þá í Berlín. Á sama tíma vorum við að stofna 8MM Musik og ég sagði Henrik [söngvara og gítarleikara sveitarinnar] að mér þætti synd að fólk í Evrópu þekkti ekki sveitina og hét því að breyta þeirri staðreynd. Þar sem við deil- um ákveðnum skilningi virtist það sjálfsagt að við myndum vinna saman.“ Olli vinnur nú að því að skipuleggja tónleikaferðalag Singapore Sling um Evrópu sem fyrirhugað er í vor en plata með úrvali laga af þremur fyrri plötum sveitarinnar kemur út hjá 8MM Musik í maí. Olli segir erfitt að aðskilja bar- inn frá starfinu hjá útgáfufyrir- tækinu. „Eins væmið og það hljóm- ar þá trúum við að barinn bæti einhverju við Berlín. Allir eiga sinn uppáhaldsbar og við erum svo heppin að margir álíta 8MM vera þann stað. Það gildir það sama um útgáfuna – við höfðum til ákveðins hóps og höfum ákveðna fagurfræði.“ Olli segir að mark- miðið nú sé að kynna nokkra lista- menn, boða fagnaðarerindið og koma góðri tónlist til fleira fólks. „Nú erum við með þrjú bönd á okkar snærum sem er meira en nóg vinna fyrir okkur – við viljum vinna vel og erum ekkert að flýta okkur of mikið.“ Hann segir að það sé samt tilbreyting að vera ekki fastur fyrir innan barinn. „Það er eitthvað við Íslendingana – einhverjir góðir straumar,“ segir Olli brosandi og útskýrir að það séu ekki aðeins harðir rokkarar og skemmtanaglöð ungmenni sem eigi það til að tapa sér inni á staðn- um. „Þegar þýskir bisnessmenn koma á 8MM stoppa þeir aldrei lengi – þeir endast ekki í hálftíma því þeir höndla ekki tónlistina. En þegar íslensku bisnessmennirnir mæta þá hanga þeir bara með okkur og enda á því að fara úr að ofan.“ Á heimasíðu staðarins, 8mmbar.com, er spurt um óeðli- legan fjölda hálfnaktra Íslendinga á barnum en aðstandendurnir segjast þar ekki hafa neina skýr- ingu á því. „Íslendingar hafa bara merkilega góðan tónlistarsmekk og svo held ég að staðurinn spyrj- ist vel út,“ segir Olli og útskýrir að nú séu um tvö ár síðan Íslend- ingarnir í Berlín „uppgötvuðu“ staðinn og þetta undarlega sam- band við landið hófst. „Það er ákveðið fólk héðan sem er orðið hluti af barnum og starfinu þar og nú er næstum ómögulegt að hugsa sér stemninguna án þeirra,“ segir Olli en hann hefur til dæmis feng- ið hérlenda plötusnúða til þess að skrúfa stemninguna upp og aðra til þess að skenkja drykki. „Bar- inn er ekki mjög túristavænn en Íslendingarnir eru áhugaverðustu en jafnframt viðkunnanlegustu gestirnir okkar,“ segir hann og áréttar að þó hérlendir gleðipinn- ar eigi það til að missa sig í partí- inu þá séu þeir ávallt kurteisir. Til marks um óvenjulega siðprýði Íslendinganna segir Olli söguna af því þegar Alex Kapranos, söngvari Franz Ferdinand, fékk að heyra það frá einum íslensku gestanna. Þegar Kapranos var sagt frá óskýranlegri þörf eyja- skeggjanna fyrir að tæta sig úr fötunum sagði hann, með veru- lega skoskum hreim, að hann tryði ekki eigin eyrum. „Þá klifraði einn íslensku fastagestanna upp á barborðið, fór úr að ofan og byrj- aði hástöfum að baula á Alex og ef má orða það svo – efast um karl- mennsku hans. Það sló þögn á hóp- inn en öllum fannst þetta gríðar- lega skemmtilegt, sérstaklega Alex. „Ég efast um að nokkur geti búið sig undir það að hálfnakinn Íslendingur níðist svona miskunnarlaust á sér.“ Stemningunni á 8MM hefur verið líkt við fyrrum rauðvínshjallinn Sirkus við Klapparstíg og Olli tekur undir þann samanburð. „Þetta hefur aldrei verið áberandi staður. Markmið okkar er að halda fastagestunum okkar glöðum og vera trúir því sem við stöndum fyrir.“ Nafnið vísar til kvikmynd- anna en Olli hefur lengi haft áhuga á því að samþætta tónlist og hið sjónræna og á staðnum er kvik- myndum varpað á einn veggjanna. „Sumir spyrja okkur hvort við sýnum bara 8mm myndir eða hvort við séum svona hrifnir af myndinni með Nicolas Cage,“ segir hann hlæjandi en bætir því við að nafnið vísi ekki aðeins til filmugerðarinnar heldur ákveðins hráleika og myrkurs sem staður- inn reynir að fanga á sem flesta vegu. Opnunartíminn er sveigjanleg- ur og það hefur komið fyrir að nóttin hefur náð fram yfir hádegið næsta dag. „Við reynum að opna milli klukkan níu og tíu á kvöldin,“ segir Olli góðlátlega en bætir við: „Þetta er bar fyrir fólk sem drekk- ur – það kemur til að vinna smá skemmdir á sjálfu sér og þá vilja menn ekki byrja of snemma.“ „Berlín er uppáhaldsstaðurinn minn og ég valdi að búa þar,“ útskýrir Olli. Hann er ættaður frá Berlín og þar býr fjölskylda hans en hann ólst upp í Bandaríkjunum. „Þegar einhver segir við mann að barinn okkar sé uppáhaldsstaður- inn þeirra og það sem skilgreinir borgina í þeirra augum þá verður maður orðlaus,“ segir hann stolt- ur. Hann bætir við að margt bendi til þess að borgin sé að breytast – til dæmis fjölgi erlendum fjárfest- um í borginni ört þessa dagana. „Ég get samt ekki sagst vera bjart- sýnn eða svartsýnn á framtíðina,“ segir hann að lokum, „ég er ánægð- ur með borgina eins og hún er og reyni á hverjum degi að bæta ein- hverju við hana.“ Vertinn og velgjörðamaðurinn Ófáir Íslendingar hafa rambað inn á barinn 8MM í Berlín og hitt þar fyrir geðugan mann með annálaðan tónlistarsmekk. Olli hefur ekki aðeins hjálpað til við að hafa ofan af fyrir ölþyrstum gestum sínum því nú á hann sinn þátt í því að bera út hróður íslenskrar tónlistar á meginlandinu. Kristrún Heiða Hauksdóttir ræddi við hann um vodkaskot, víðsýni Íslendinga og rokk og ról. Þegar ís- lensku bisness- mennirnir mæta þá hanga þeir bara með okkur og enda á því að fara úr að ofan.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.