Fréttablaðið - 03.03.2007, Síða 78
B
areigandinn Alexus
Remzi Konuk er
yfirleitt kallaður
Olli en á dögunum
kom hann í sína aðra
heimsókn til Íslands.
Starfið hans hefur vakið vinskap
hjá mörgum og hér á hann hauka í
horni sem hafa verið heimalning-
ar á barnum hjá honum. „Þetta er
bara staður þar sem þú getur mætt
og fengið þér drykk og það er allt-
af góð tónlist í bakgrunninum,“
segir Olli hógvær þegar hann er
beðinn að lýsa aðdráttarafli stað-
arins. Barinn hefur orðið goð-
sagnakennt yfirbragð í hugum
margra, sumar sögurnar staðfest-
ir eigandinn en aðrar fá hann bara
til að brosa véfréttarlega út í
annað.
Olli hefur nú staðið bak við
borðið í Schönhauser Allee í rúm
fjögur ár en barinn stofnaði hann
ásamt félaga sínum. Þetta er
óvenju langur líftími fyrir
skemmtistað í Berlín þar sem þeir
eiga það til að spretta upp eins og
gorkúlur og hverfa jafnharðan.
Nú hafa þeir félagar fært úr
kvíarnar og stofnað plötufyrir-
tækið 8MM Musik en af lýsingun-
um að dæma er stemningin í þeirri
bisnessdeild líkt og á barnum –
sveitt en heimilisleg. Meðal lista-
mannanna sem 8MM Musik fóstr-
ar er rokksveitin Singapore Sling
og íslenski blústónlistarmaðurinn
ET Tumason.
Olli útskýrir að fyrir rúmu einu og
hálfu ári hafi hljómsveitin Singa-
pore Sling ráfað inn á barinn. „Ég
þekkti þau ekki fyrst því ég hafði
bara frétt af hljómsveitinni í gegn-
um bandaríska fjölmiðla. Þau féllu
vel í hópinn en ég tók eftir því að
þeir pöntuðu meira en hinir kúnn-
arnir – allir drykkirnir þurftu að
vera tvöfaldir, tvöfaldur vodka,
tvöfaldur absint. Ég hafði sett
lagið þeirra „Overdriver“ í spilun
löngu áður en þegar það byrjaði að
hljóma þetta kvöld þá gengu
Íslendingarnir af göflunum.“
Þegar Olli komst að því hvaða
þyrsta fólk þetta var bauð hann
þeim umgang og bað um eintak af
plötunni. „Eftir þetta urðum við
vinir og ég skipulagði tónleika
fyrir þá í Berlín. Á sama tíma
vorum við að stofna 8MM Musik
og ég sagði Henrik [söngvara og
gítarleikara sveitarinnar] að mér
þætti synd að fólk í Evrópu þekkti
ekki sveitina og hét því að breyta
þeirri staðreynd. Þar sem við deil-
um ákveðnum skilningi virtist það
sjálfsagt að við myndum vinna
saman.“ Olli vinnur nú að því að
skipuleggja tónleikaferðalag
Singapore Sling um Evrópu sem
fyrirhugað er í vor en plata með
úrvali laga af þremur fyrri plötum
sveitarinnar kemur út hjá 8MM
Musik í maí.
Olli segir erfitt að aðskilja bar-
inn frá starfinu hjá útgáfufyrir-
tækinu. „Eins væmið og það hljóm-
ar þá trúum við að barinn bæti
einhverju við Berlín. Allir eiga
sinn uppáhaldsbar og við erum
svo heppin að margir álíta 8MM
vera þann stað. Það gildir það
sama um útgáfuna – við höfðum til
ákveðins hóps og höfum ákveðna
fagurfræði.“ Olli segir að mark-
miðið nú sé að kynna nokkra lista-
menn, boða fagnaðarerindið og
koma góðri tónlist til fleira fólks.
„Nú erum við með þrjú bönd á
okkar snærum sem er meira en
nóg vinna fyrir okkur – við viljum
vinna vel og erum ekkert að flýta
okkur of mikið.“ Hann segir að
það sé samt tilbreyting að vera
ekki fastur fyrir innan barinn.
„Það er eitthvað við Íslendingana
– einhverjir góðir straumar,“ segir
Olli brosandi og útskýrir að það
séu ekki aðeins harðir rokkarar og
skemmtanaglöð ungmenni sem
eigi það til að tapa sér inni á staðn-
um. „Þegar þýskir bisnessmenn
koma á 8MM stoppa þeir aldrei
lengi – þeir endast ekki í hálftíma
því þeir höndla ekki tónlistina. En
þegar íslensku bisnessmennirnir
mæta þá hanga þeir bara með
okkur og enda á því að fara úr að
ofan.“
Á heimasíðu staðarins,
8mmbar.com, er spurt um óeðli-
legan fjölda hálfnaktra Íslendinga
á barnum en aðstandendurnir
segjast þar ekki hafa neina skýr-
ingu á því. „Íslendingar hafa bara
merkilega góðan tónlistarsmekk
og svo held ég að staðurinn spyrj-
ist vel út,“ segir Olli og útskýrir
að nú séu um tvö ár síðan Íslend-
ingarnir í Berlín „uppgötvuðu“
staðinn og þetta undarlega sam-
band við landið hófst. „Það er
ákveðið fólk héðan sem er orðið
hluti af barnum og starfinu þar og
nú er næstum ómögulegt að hugsa
sér stemninguna án þeirra,“ segir
Olli en hann hefur til dæmis feng-
ið hérlenda plötusnúða til þess að
skrúfa stemninguna upp og aðra
til þess að skenkja drykki. „Bar-
inn er ekki mjög túristavænn en
Íslendingarnir eru áhugaverðustu
en jafnframt viðkunnanlegustu
gestirnir okkar,“ segir hann og
áréttar að þó hérlendir gleðipinn-
ar eigi það til að missa sig í partí-
inu þá séu þeir ávallt kurteisir. Til
marks um óvenjulega siðprýði
Íslendinganna segir Olli söguna
af því þegar Alex Kapranos,
söngvari Franz Ferdinand, fékk
að heyra það frá einum íslensku
gestanna. Þegar Kapranos var
sagt frá óskýranlegri þörf eyja-
skeggjanna fyrir að tæta sig úr
fötunum sagði hann, með veru-
lega skoskum hreim, að hann tryði
ekki eigin eyrum. „Þá klifraði
einn íslensku fastagestanna upp á
barborðið, fór úr að ofan og byrj-
aði hástöfum að baula á Alex og ef
má orða það svo – efast um karl-
mennsku hans. Það sló þögn á hóp-
inn en öllum fannst þetta gríðar-
lega skemmtilegt, sérstaklega
Alex. „Ég efast um að nokkur geti
búið sig undir það að hálfnakinn
Íslendingur níðist svona
miskunnarlaust á sér.“
Stemningunni á 8MM hefur verið
líkt við fyrrum rauðvínshjallinn
Sirkus við Klapparstíg og Olli
tekur undir þann samanburð.
„Þetta hefur aldrei verið áberandi
staður. Markmið okkar er að halda
fastagestunum okkar glöðum og
vera trúir því sem við stöndum
fyrir.“ Nafnið vísar til kvikmynd-
anna en Olli hefur lengi haft áhuga
á því að samþætta tónlist og hið
sjónræna og á staðnum er kvik-
myndum varpað á einn veggjanna.
„Sumir spyrja okkur hvort við
sýnum bara 8mm myndir eða
hvort við séum svona hrifnir af
myndinni með Nicolas Cage,“
segir hann hlæjandi en bætir því
við að nafnið vísi ekki aðeins til
filmugerðarinnar heldur ákveðins
hráleika og myrkurs sem staður-
inn reynir að fanga á sem flesta
vegu.
Opnunartíminn er sveigjanleg-
ur og það hefur komið fyrir að
nóttin hefur náð fram yfir hádegið
næsta dag. „Við reynum að opna
milli klukkan níu og tíu á kvöldin,“
segir Olli góðlátlega en bætir við:
„Þetta er bar fyrir fólk sem drekk-
ur – það kemur til að vinna smá
skemmdir á sjálfu sér og þá vilja
menn ekki byrja of snemma.“
„Berlín er uppáhaldsstaðurinn
minn og ég valdi að búa þar,“
útskýrir Olli. Hann er ættaður frá
Berlín og þar býr fjölskylda hans
en hann ólst upp í Bandaríkjunum.
„Þegar einhver segir við mann að
barinn okkar sé uppáhaldsstaður-
inn þeirra og það sem skilgreinir
borgina í þeirra augum þá verður
maður orðlaus,“ segir hann stolt-
ur. Hann bætir við að margt bendi
til þess að borgin sé að breytast –
til dæmis fjölgi erlendum fjárfest-
um í borginni ört þessa dagana.
„Ég get samt ekki sagst vera bjart-
sýnn eða svartsýnn á framtíðina,“
segir hann að lokum, „ég er ánægð-
ur með borgina eins og hún er og
reyni á hverjum degi að bæta ein-
hverju við hana.“
Vertinn og velgjörðamaðurinn
Ófáir Íslendingar hafa rambað inn á barinn 8MM í Berlín og hitt þar fyrir geðugan mann með annálaðan tónlistarsmekk.
Olli hefur ekki aðeins hjálpað til við að hafa ofan af fyrir ölþyrstum gestum sínum því nú á hann sinn þátt í því að bera út hróður
íslenskrar tónlistar á meginlandinu. Kristrún Heiða Hauksdóttir ræddi við hann um vodkaskot, víðsýni Íslendinga og rokk og ról.
Þegar ís-
lensku
bisness-
mennirnir
mæta þá
hanga þeir
bara með
okkur og
enda á því
að fara úr
að ofan.