Tíminn - 30.01.1980, Side 5

Tíminn - 30.01.1980, Side 5
Miövikudagur 30. janúar 1980 5 Sjávarútvegsráöuneytiö hefur sent fjölmiölum eftirfarandi til- kynningu um þá stefnumörkun, sem þaö hyggst beita sér fyrir varöandi lánskjör Fiskveiöa- sjóös: „Endurskoöuö veröi lánskjör Fiskveiöasjóös meö þaö fyrir augum aö lán til fiskiskipa veröi eingöngu meö SDR-áhættu og eðlilegum vöxtum, sem nú eru taldir 9% en ekki öðrum verö- tryggingarskilmálum. Lán til fiskvinnslu veröi hins vegar mið- uö viö visitölu byggingarkostnaö- ar og ekki meö gengisáhættu, en með lægri vöxtum en nú tiðkast enþeireru 5,5% og veröur stefnt að ca. 3%. Lánskjörin verði siðan endurskoöuö miöaö viö kjör á þvi lánsfé sem sjóöurinn á kost á aö fá á hverjum tlma. Þessi stefnumörkun hefur veriö kynnt fulltrúum hagsmunaaðila i greininni”. Tilboð óskast i smiði 60 innihurða á Heilsugæslustöð Kópavogs, Fannborg 7—9. Teikningar og útboðslýsing er til afhend- ingar á skrifstofu bæjarverkfræðings Kópavogs að Fannborg 2. Tilboðum skal skila á sama stað 8. febrúar kl. 11 f .h. Ljósmyndasýning að Kjarvalsstöðum Bæ j arverkfr æðingur. Ljósmyndarinn John Chang McCurdy opnar sýningu á verk- um sinum aö Kjarvalsstööum á laugardaginn kemur, 2. febrúar. John Chang McCurdy er fæddur I Kóreu, en er nú bandariskur rikisborgari. Hann rekur eigin ljósmyndastofu I New York, en vinnur mest aö gerö myndabóka. Hann hefur oft komiö til Islands og á hér marga vini. Fyrsta ferö hans hingaö var I tengslum viö heimsmeistaraeinvigiö I skák 1972. Hóf hann þá þegar aö taka myndir af Islenskri náttúru sem hann hreifst mjög af. Arangurinn getur aö lita i myndabók um ís- land sem Almenna bókafélagiö gaf út i fyrra. John Chang McCurdy kemur til íslands 29. þ.m. til þess aö undirbúa sýningu sina og dvelst hér I 6 daga. John Chang McCurdy. Auglýsið í Tímonum L . . íjEcStii'jíye&SGjQj Ráðstefna um dýra- vernd Laugardaginn 26. janúar, s.l. hélt stjórn Sambands dýravernd- unarfélaga Islands I fyrsta sinn ráöstefnu með trúnaöarmönnum sinum af öllu landinu. I upphafi ráöstefnunnar flutti forseti Islands, dr. Kristján Eld- járn ávarp, en hann er verndari S.D.I. Var gerður mjög góöur rómur að hinum hlýlegu og jafn- framt hvetjandi orðum forseta um viðhorf mannanna til dýr- Siöan var tekiö til við aöra dag- skrárliöi. Sigriöur Asgeirsdóttir héraösdómslögmaöur var frum- mælandi um dýraverndunarlögin og foröagæslulögin. Sigriöur er fulltrúi S.D.I. I Dýraverndunar- nefnd rlkisins. Haukur Hafstaö framkvæmdastjóri Landverndar ræddi um umhverfismál og villtu dýrin i landinu, og sýndi lit- skyggnur. Einnig var erindi um vetrarbeit og útigang, flutt af Olafi R. Dýrmundssyni landnýtingarráöunaut. Tók hann fyrir sauðfé, hesta og hreindýr I máli sinu. Tókst framsögumönn- um aö varpa mjög skýru ljósi i þá málaflokka sem þeir fjölluöu um I erindum sinum. Jórunn Sörensen formaöur S.D.l. ræddi og skýröi hvernig trúnaðarmannakerfiö er haft virkt. Einnig talaöi hún um Dýra- verndarann og nauðsyn þess að þetta eina málgagn dýraverndar á íslandi væri útbreitt. Rúmur tlmi var gefinn til um- ræðna og var hann óspart notaður af trúnaðarmönnum, sem skýröu frá eigin reynslu eöa áliti varö- andi hin mismunandi mál. Fram komu ýmsar glöggar ábendingar til stjórnar sambandsins byggöar á reynslu þeirra I starfi. Þaö setti einnig skemmtilegan blæ á ráðstefnuna aö Búnaöar- félag Islands bauö ráöstefnu- gestum til hádegisveröar. Þar flutti Asgeir Bjarnason formaður Búnaöarfélagsins ávarp. Jórunn Sörensen þakkaöi gestgjöfum velvild þeirra og suöning fyrir hönd ráöstefnugesta. Stjórn S.D.I. telur óhætt að full- yröa aö ráöstefnan hafi tekist vel og marki timamót i starfi sam- bandsins. Miklar vonir eru bundnar viö trúnaöarmanna- kerfiö og starf þeirra manna er taka aö sér að vera hlekkur i þeirri keöju. Akveöiö hefur veriö aö 1. tbl. þessa árs af Dýraverndaranum veröi helgaö ráöstefnunni og mun þar birtast ávarp forseta Islands og þau erindi sem á ráðstefnunni ' voru flutt. Karlakór Akureyrar á afmælishátiöinni. Ljósmvnd: Noröurmynd. Söngvahátíð hjá Karlakór Akureyrar, Tonna límið sem límir alltaðþví allt! FÆST I BYGGINGA- OG JÁRN- VÖRUVERSLUNUM UM LAND ALLT. HEILDSÖLUBIRGÐIR: IÆKNIMIÐSTÖÐIN HF S. 76600 sem varð 50 ára í þessum mánuði ÞH, Akureyri. — Karlakór Akureyrar átti 50 ára afmæli s.l. laugardag. Hann var formlega stofnaöur 26. janúar 1930, en hafði þá starfaö um þriggja mánaöa skeiö og sungiö einu sinni opinberlega, 14. desember 1929. t tilefni 50 ára afmælis kórsins var efnt til fagnaöar s.l. fös tudags kvöld og um næstu helgi veröa almennir tónleikar I Akureyrarkirkju, auk þess sem sérstakir tónleikar fyrir styrktarfélaga veröa I vor. Tón- leikarnir um næstu helgi veröa kl. 16.00 á laugardag og kl. 17.00 á sunnudag. Auk kórsins syngja eldri kórfélagar, bæöi meö kórn- um og i sérstakri dagskrá. Lúörasveit Akureyrar mun einnig koma þar fram. Fyrsta söngferðalag kórsins til Reykjavikur var árið 1938 og tók það feröalag tvær vikur, en sfðan þá hefur hann sungið um nær allt land. I Norðurlandaferö fór kórinn árið 1967. Árið 1961 festi kórinn, ásamt Lúðrasveit Akureyrar kaup á húsnæði i Laxagötu 5 og hefur haft sitt aðsetur þar siöan. Fyrstu stjórn Karlakórs Akureyrar, eöa söngfélags Karlakórs Akureyrar skipuöu eftirtaldir : Askell Snorrason formaður, Aðalsteinn Þorsteins- son gjaldkeri, Þórir Jónsson rit- ari og til vara, Sigurjón Jó- hannesson, Sigfús Baldvinsson og Halldór Stefánsson. Jónas Jónsson frá Brekknakoti á lengstan feril sem formaður, en Steingrimur Eggertsson hefur lengst setið i stjórn kórsins, eða i 24 ár. Núverandi söngstjóri Karla- kórs Akureyrar er Guðmundur Jóhannsson og hefur hann gegnt þvi starfi siðan 1977, aðrir söng- stjórar kórsins frá upphafi eru Askell Snorrason, Sveinn Bjarrr an, Askell Jónsson, Jakob Tryggvason, Jón Þórarinsson, Guðmundur Jóhannsson, Jón Hlöðver Askelsson, Jón Hjörleif- ur Jónsson og Guðmundur Þor- steinsson. Karlakór Akureyrar hefur á stefnuskrá sinni útgáfu nýrrar hljómplötu og hyggur einnig á söngferðalag til útlanda, en ekki er búið aö timasetja þessar framkvæmdir. Einnig er mikill áhugi meðal kórfélaga að ráðast i kaup á nýju húsnæöi, þar sem núverandi samastaður er orðinn alls ófullnægjandi. I Karlakór Akureyrar eru nú 45félagar, og meðalaldur þeirra innan við 40 ár. 1 stjórn kórsins eru nú Ari Friðfinnsson formaö- ur, Benedikt Sigurbjörnsson rit- ari, Bryngeir Kristinsson gjald- keri, Magnús Kristinsson vara- formaður og Grétar Benedikts- son meðstjórnandi. ALTERNATORAR 1 FORD BRONCO MAVERICK CHEVROLET NOVA BLAZER DODGE DART PLYMOUTH WAGONEER CHEROKEE LAND ROVER FORD CORTINA SUNBEAM FIAT — DATSUN TOYOTA — LADA VOLGA — MOSKVITCH VOLVO — VW SKODA — BENZ — SCANIA o.fi. Verð frá 26.800,- Einnig: Startarar, Cut-out, anker, bendixar, segulrofar o.fl. í margar tegundir bifreiða. Bílaraf h.f. Borgartúni 19. Sími: 24700 Lánskjör Flskveiðasjóðs Kúpavogskaupstaðnr G1 Tilboð

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.