Tíminn - 30.01.1980, Blaðsíða 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
íhald og kratar komnir af stað:
Ný „viðreisn” í fæðingu?
Fram eftir degi í gær benti
flest til þess i Alþingishúsinu aö
ný „viðreisnarstjórn” Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðu-
flokksins væri i fæðingu. Stóðu
miklar viðræður yfir milli fiokk-
anna um stjórnarmyndun, en á
mánudagskvöldið hafði það
komið í ljós i skoðanakönnun i
þingflokki Alþýðuflokksins að
meirihlutinn taldi nýtt „viö-
reisnarsamstarf” æskilegasta
kostinn.
Þessi skoðanakönnun mun
hafa verið óformleg og var gerði
beinu framhaldi af því að hinar
nýju tillögur Alþýðuflokksins
höfðu náð tilætluðum árangri
með þvi að breikka biliö veru-
lega milli Alþýðuflokksins og
framsóknarmanna. Að visu
mun meirihluti alþýðu-
flokksmanna ekki vilja þver-
taka fyrir „þjóðstjórnarsam-
starf”, en miklar athugasemdir
og vantrtí kom fram á þeim
möguleika.
Innan Sjálfstæðisflokksins er
sagt, að Geir Hallgrimsson hafi
nú tekið upp „alveg nýjar
vinnuaðferðir”. Hann er sagður
hættur að biða og hlusta og taka
tillit til allra sjónarmiða, en er
farinn að knýja fram vilja sinn
með hótunum. Sumum sjálf-
stæðisþingmönnum fellur þetta
velm en öðrum stórlega miður,
einkum dr. Gunnari Thorodd-
sen.
Alþýðubandalagsmenn hafa
verið á fullri ferð I þinghúsinu
allan gærdaginn með tilboö I all-
ar áttir um „þjóðstjórnarsam-
vinnu”. Er sagt að þeim hrjósi
hugur við þvf aö einangrast með
öllu eftir framkomu þeirra
sjálfra, en ástandið f alþjóða-
málum þeim orðið mjög öfug-
snúið.
Sjálfstæðismenn munu sam-
taka um það eitt að koma I veg
fyrir myndun utanþingsstjórn-
ar. Er talið að Sjálfstæðisflokk-
urinn sé tilbúinn til aö mynda
minnihlutastjórn úr eigin röð-
um, sem stærsti flokkur þings-
ins, ef alvarleg „hætta” mynd-
ast á því að forseti Islands taki
frumkvæðið úr höndum flokk-
anna.
t gær fóru viðræður flokkanna
fram samkvæmt þvi að enginn
einn flokksleiðtogi hafi umboð
forsetans, en öllum sé þeim rétt
og skylt að kanna alla hugsan-
lega möguleika. í samræmi við
þetta hafa viðræður Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks farið
fram i hálfgeröum feluleikjum.
Nýrri „viðreisn” verður mik-
ill vandi á höndum vegna þess
að hún myndi ekki njóta meiri-
hluta efri deild Alþingis. Var f
gær talið aö það myndi verða til
þess aö stjórnin færi meö lönd-
um í efnahagsmálum fyrsta
kastið, en gripi siöan til kjör-
dæmamálsins til að knýja fram
kosningar um önnur málefni
þegar liður að sumri.
Formenn flokkanna munu
hittast fyrir hádegið i dag til að
ræða stöðuna. Eftir hádegið hef-
ur forseti tslands boðað þá til
sín, og hefur hann látið í ljós þá
ósk, að úrslit fáist um næstu
helgi.
Tveir á tali.
Myndin er frá Hauganesi, en þaðan er fyrirhugað að leggja sæstreng yfir til Grenivfkur.
Rafstrengur yfir Eyjafjörð
Áætlaður kostnaður ríflega 230 milljónir
JSS — t fimm ára framkvæmda-
áætlun Rafmagnsveitu rikisins er
gert ráð fyrir lagningu sæstrengs
milli Hauganess og Grenivfkur.
Kristján Jónsson rafveitustjóri
sagöi i samtali við Timann, að
þarna væri um aö ræða tengingu
milliflutningskerfisins vestan
Eyjafjarðar, frá Akureyri til
Hjalteyrar og Dalvikur og
tengdist strengurinn endanum á
Svalbarðsstrandarlfnu, sem lægi
með Eyjafirði austanverðum,
Þessi framkvæmd væri nauösyn-
leg vegna þess að mlverandi Sval-
barðsstrandarllna heföi langt frá
þvf næga flutningsgetu til að anna
álagi á viðkomandi stöðum.
Fram til þessa hefði orðið aö tak-
marka notkun á þessu svæði og
neita mönnum t.d. um rafhitun.
„tsamanburði sem við gerðum
á aðferðum til að leysa þetta mál,
kom I ljós að sæstrengur yfir
Eyjafjörðinn er mun ódýrari
heldur en sá kostur að endur-
byggja alla lfnuna frá Akur-
eyri”, sagði Kristján. „Eins
höfum viðskoðað þá lausn, að
setja upp og keyra dieselstöö á
Grenivflc og i ljós kom,aö saman-
borið við það myndi sæstrengur-
inn borga sig á tveim árum.”
Þá sagði Kristján, að
Rafmagnsveitur rikisins hefðu
gerttillöguum, að þessi strengur
yrði lagður I sumar og yrði til-
búinn til tengingar í haust.
Lengur mættu framkvæmdir ekki
dragast. Hins vegar væri ekki
búið að taka neinar ákvarðanir
um fjárlög, en framkvæmdir
væru að sjálfsögu háöar þeim. En
til þess aö hafa allt tilbúið, ef
framkvæmdin yrði samþykkt,
væri nú farið að leita tilboða f
slikan streng, með áðurgreindum
fyrirvara. En áætlaðaðkostnaður
við lagningu sæstrengsins næmi
um 230 milljónum króna.
1. des. 1978-1979:
Ibúum á landinu
fjölgaöi um 1.08%
JSS — Samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Hagstofu Islands
var fjöldi Ibúa á landinu samtals
226.339 manns 1. desember sl. Þar
af voru 114.152 karlar og 112.187
konur. tbúafjöldinn á sama tima i
fyrra var samtals 223.917 manns.
tslendingum hefur því f jölgaö um
2.422 á siðasta ári eða um 1.08%.
Af einstökum landshlutum
fjölgaöi ibúum i nágrannasveit-
arfélögum Reykjavikur, þ.e.
Seltjarnarnesi, Kópavogi,
Hafnarfirði og Garðabæ hlutfalls-
lega mest eða um 2.38% Vestur-
land var næst i rööinni, en þar
fjölgaði ibúum um 328 eöa 2.31%.
Hlutfallslega minnst varð Ibúa-
fjölgunin i Reykjavik, 273 manns
eða 0.33%. Voru ibúar þar sam-
tals 83.365 þann 1. des sl. en 83.092
1. des. 1978.
Mannflesta sýslan á landinu
var Arnessýsla með 6.595 ibúa.
Þar af voru 3502 karlar og 3093
konur. Fæstir reyndust ibúarnir
vera í Austur-Barðastrandar-
sýslu, samtals 436 manns. Mann-
fæsti hreppurinn var Múla-
href^iuri sömu sýslumeö 15 ibúa.
Mannflesti hreppurinn var Mos-
feilshreppur með 2.703 ibúa.
Ráðgert að auka loðnu-
veiðikvótann nú um
60-80 þúsund tonn
AM — I gær átti sjávarútvegsráö-
herra fund með fulltrúum hags-
munaaðila um loönuveiðar og
Hafrannsóknastofnuninni, þar
sem rædd voru þau viðhorf sem
nú blasa við að lokinni könnun á
markaöshorfum fyrir frysta
loðnu og loðnuhrogn i Japan. Eru
horfurnar slðri en vonast hafði
verið til.
Blaðið ræddi i gær viö Þórö
Asgeirsson hjá Sjávarútvegs-
ráðuneyti og sagði hann að i ráði
væri að flytja 60-80 þúsund tonn af
þeirri veiöi sem áætlað heföi
veriöaö veiða á hrognatimabilinu
i mars fram á timabilið nú. A
veiðitimabili sem nú stendur var
ætlunin að veiöa 100 þúsui^d tonn,
en 180þúsund tonn á seinna tima-
bilinu I mars, svo segja má að
dæminu sé snúið við og 160-180
þúsund tonn veidd nú og 100 þús-
und tonn I mars.
Forsetakosningarnar:
Alma gefur út yfir-
lýsingu á morgun
FRI — Alma Þórarinsson læknir
mun gefa yfirlýsingu um það
hvort hún muni verða i framboði
til forsetaembættisins eða ekki á
morgun. Ef hún ákveður að gefa
kost á sér þá er það i fyrsta sinn i
sögu lýðveldisins sem kona er i
framboði til forsetaembættisins.
Alma er fædd 12 ágúst 1922. Hún
hefur starfað undanfarin ár i
leitarstöð Krabbameinsfélagsins.
Hún 'er gift Hjalta Þórarinssyni
lækni og þau eiga fimm börn.
Alma Þórarinsson.
<-------------------—--
Seðlabankinn sleipur i viðskiptum:
Tekur 70% vexti af
skuldum en greiðir
25% á innistæður
Bls. 3
-