Tíminn - 30.01.1980, Page 1

Tíminn - 30.01.1980, Page 1
Síðumúla 15 • Pósthólf 370 ■ Reykjavik ■ Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 • Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 íhald og kratar komnir af stað: Ný „viðreisn” í fæðingu? Fram eftir degi í gær benti flest til þess i Alþingishúsinu aö ný „viðreisnarstjórn” Sjálf- stæðisflokksins og Alþýðu- flokksins væri i fæðingu. Stóðu miklar viðræður yfir milli fiokk- anna um stjórnarmyndun, en á mánudagskvöldið hafði það komið í ljós i skoðanakönnun i þingflokki Alþýðuflokksins að meirihlutinn taldi nýtt „viö- reisnarsamstarf” æskilegasta kostinn. Þessi skoðanakönnun mun hafa verið óformleg og var gerði beinu framhaldi af því að hinar nýju tillögur Alþýðuflokksins höfðu náð tilætluðum árangri með þvi að breikka biliö veru- lega milli Alþýðuflokksins og framsóknarmanna. Að visu mun meirihluti alþýðu- flokksmanna ekki vilja þver- taka fyrir „þjóðstjórnarsam- starf”, en miklar athugasemdir og vantrtí kom fram á þeim möguleika. Innan Sjálfstæðisflokksins er sagt, að Geir Hallgrimsson hafi nú tekið upp „alveg nýjar vinnuaðferðir”. Hann er sagður hættur að biða og hlusta og taka tillit til allra sjónarmiða, en er farinn að knýja fram vilja sinn með hótunum. Sumum sjálf- stæðisþingmönnum fellur þetta velm en öðrum stórlega miður, einkum dr. Gunnari Thorodd- sen. Alþýðubandalagsmenn hafa verið á fullri ferð I þinghúsinu allan gærdaginn með tilboö I all- ar áttir um „þjóðstjórnarsam- vinnu”. Er sagt að þeim hrjósi hugur við þvf aö einangrast með öllu eftir framkomu þeirra sjálfra, en ástandið f alþjóða- málum þeim orðið mjög öfug- snúið. Sjálfstæðismenn munu sam- taka um það eitt að koma I veg fyrir myndun utanþingsstjórn- ar. Er talið að Sjálfstæðisflokk- urinn sé tilbúinn til aö mynda minnihlutastjórn úr eigin röð- um, sem stærsti flokkur þings- ins, ef alvarleg „hætta” mynd- ast á því að forseti Islands taki frumkvæðið úr höndum flokk- anna. t gær fóru viðræður flokkanna fram samkvæmt þvi að enginn einn flokksleiðtogi hafi umboð forsetans, en öllum sé þeim rétt og skylt að kanna alla hugsan- lega möguleika. í samræmi við þetta hafa viðræður Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks farið fram i hálfgeröum feluleikjum. Nýrri „viðreisn” verður mik- ill vandi á höndum vegna þess að hún myndi ekki njóta meiri- hluta efri deild Alþingis. Var f gær talið aö það myndi verða til þess aö stjórnin færi meö lönd- um í efnahagsmálum fyrsta kastið, en gripi siöan til kjör- dæmamálsins til að knýja fram kosningar um önnur málefni þegar liður að sumri. Formenn flokkanna munu hittast fyrir hádegið i dag til að ræða stöðuna. Eftir hádegið hef- ur forseti tslands boðað þá til sín, og hefur hann látið í ljós þá ósk, að úrslit fáist um næstu helgi. Tveir á tali. Myndin er frá Hauganesi, en þaðan er fyrirhugað að leggja sæstreng yfir til Grenivfkur. Rafstrengur yfir Eyjafjörð Áætlaður kostnaður ríflega 230 milljónir JSS — t fimm ára framkvæmda- áætlun Rafmagnsveitu rikisins er gert ráð fyrir lagningu sæstrengs milli Hauganess og Grenivfkur. Kristján Jónsson rafveitustjóri sagöi i samtali við Timann, að þarna væri um aö ræða tengingu milliflutningskerfisins vestan Eyjafjarðar, frá Akureyri til Hjalteyrar og Dalvikur og tengdist strengurinn endanum á Svalbarðsstrandarlfnu, sem lægi með Eyjafirði austanverðum, Þessi framkvæmd væri nauösyn- leg vegna þess að mlverandi Sval- barðsstrandarllna heföi langt frá þvf næga flutningsgetu til að anna álagi á viðkomandi stöðum. Fram til þessa hefði orðið aö tak- marka notkun á þessu svæði og neita mönnum t.d. um rafhitun. „tsamanburði sem við gerðum á aðferðum til að leysa þetta mál, kom I ljós að sæstrengur yfir Eyjafjörðinn er mun ódýrari heldur en sá kostur að endur- byggja alla lfnuna frá Akur- eyri”, sagði Kristján. „Eins höfum viðskoðað þá lausn, að setja upp og keyra dieselstöö á Grenivflc og i ljós kom,aö saman- borið við það myndi sæstrengur- inn borga sig á tveim árum.” Þá sagði Kristján, að Rafmagnsveitur rikisins hefðu gerttillöguum, að þessi strengur yrði lagður I sumar og yrði til- búinn til tengingar í haust. Lengur mættu framkvæmdir ekki dragast. Hins vegar væri ekki búið að taka neinar ákvarðanir um fjárlög, en framkvæmdir væru að sjálfsögu háöar þeim. En til þess aö hafa allt tilbúið, ef framkvæmdin yrði samþykkt, væri nú farið að leita tilboða f slikan streng, með áðurgreindum fyrirvara. En áætlaðaðkostnaður við lagningu sæstrengsins næmi um 230 milljónum króna. 1. des. 1978-1979: Ibúum á landinu fjölgaöi um 1.08% JSS — Samkvæmt bráða- birgðatölum frá Hagstofu Islands var fjöldi Ibúa á landinu samtals 226.339 manns 1. desember sl. Þar af voru 114.152 karlar og 112.187 konur. tbúafjöldinn á sama tima i fyrra var samtals 223.917 manns. tslendingum hefur því f jölgaö um 2.422 á siðasta ári eða um 1.08%. Af einstökum landshlutum fjölgaöi ibúum i nágrannasveit- arfélögum Reykjavikur, þ.e. Seltjarnarnesi, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ hlutfalls- lega mest eða um 2.38% Vestur- land var næst i rööinni, en þar fjölgaði ibúum um 328 eöa 2.31%. Hlutfallslega minnst varð Ibúa- fjölgunin i Reykjavik, 273 manns eða 0.33%. Voru ibúar þar sam- tals 83.365 þann 1. des sl. en 83.092 1. des. 1978. Mannflesta sýslan á landinu var Arnessýsla með 6.595 ibúa. Þar af voru 3502 karlar og 3093 konur. Fæstir reyndust ibúarnir vera í Austur-Barðastrandar- sýslu, samtals 436 manns. Mann- fæsti hreppurinn var Múla- href^iuri sömu sýslumeö 15 ibúa. Mannflesti hreppurinn var Mos- feilshreppur með 2.703 ibúa. Ráðgert að auka loðnu- veiðikvótann nú um 60-80 þúsund tonn AM — I gær átti sjávarútvegsráö- herra fund með fulltrúum hags- munaaðila um loönuveiðar og Hafrannsóknastofnuninni, þar sem rædd voru þau viðhorf sem nú blasa við að lokinni könnun á markaöshorfum fyrir frysta loðnu og loðnuhrogn i Japan. Eru horfurnar slðri en vonast hafði verið til. Blaðið ræddi i gær viö Þórö Asgeirsson hjá Sjávarútvegs- ráðuneyti og sagði hann að i ráði væri að flytja 60-80 þúsund tonn af þeirri veiöi sem áætlað heföi veriöaö veiða á hrognatimabilinu i mars fram á timabilið nú. A veiðitimabili sem nú stendur var ætlunin að veiöa 100 þúsui^d tonn, en 180þúsund tonn á seinna tima- bilinu I mars, svo segja má að dæminu sé snúið við og 160-180 þúsund tonn veidd nú og 100 þús- und tonn I mars. Forsetakosningarnar: Alma gefur út yfir- lýsingu á morgun FRI — Alma Þórarinsson læknir mun gefa yfirlýsingu um það hvort hún muni verða i framboði til forsetaembættisins eða ekki á morgun. Ef hún ákveður að gefa kost á sér þá er það i fyrsta sinn i sögu lýðveldisins sem kona er i framboði til forsetaembættisins. Alma er fædd 12 ágúst 1922. Hún hefur starfað undanfarin ár i leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Hún 'er gift Hjalta Þórarinssyni lækni og þau eiga fimm börn. Alma Þórarinsson. <-------------------—-- Seðlabankinn sleipur i viðskiptum: Tekur 70% vexti af skuldum en greiðir 25% á innistæður Bls. 3 -

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.