Fréttablaðið - 12.04.2007, Qupperneq 4
Borgardómur Kaup-
mannahafnar dæmdi í gær
danskan ríkisborgara af mar-
okkóskum uppruna í þriggja
og hálfs árs fangelsi fyrir að
reka áróður fyrir hryðjuverk-
um í nafni „heilags stríðs“ gegn
Vesturlöndum. Það gerði hann á
stafrænum myndbandsupptökum
sem dreift var um alla Evrópu.
Hinn dæmdi, Said Mansour, er
sá fyrsti sem dæmdur er sam-
kvæmt hryðjuverkavarnalög-
um sem sett voru árið 2002. Sam-
kvæmt þeim er refsivert að
reka áróður fyrir hryðjuverk-
um eða veita hryðjuverkamönn-
um liðsinni. Mansour hefur verið
í varðhaldi síðan í september
2005.
Arabi dæmdur
fyrir áróður
Ekki verða sett lög
um frídreifingu dagblaða í Dan-
mörku. Þetta sagði danski sam-
gönguráðherrann Flemming
Hansen í gær, í kjölfar þess að
kvörtunum vegna dreifingar frí-
blaða heim til fólks gegn vilja
þeirra hefur
stórfækkað.
Ráðherrann
hafði gefið frí-
blöðunum frest
til 1. apríl til
að sjá til þess
að kvörtun-
um fækkaði, og
það gekk eftir.
Samkvæmt
nýrri skýrslu, sem lögð hefur
verið fyrir ráðherrann, eru slík-
ar kvartanir komnar niður í um
100 á mánuði. „Það samsvarar 25
kvörtunum á mánuði á hvert blað,
sem er lítið. Mér sýnist sífellt
vera að draga úr þessum vanda,“
hefur fréttavefur Politiken eftir
Hansen.
Engin lög sett
um dreifinguna
Tæplega tvö þúsund
manns hafa rétt til setu landsfund-
ar Sjálfstæðisflokksins sem hefst
í Laugardalshöll síðdegis í dag og
stendur fram á miðjan sunnudag.
Fundurinn bæði hefst og lýkur
með ræðu formanns, Geirs H.
Haarde forsætisráðherra.
Nítján fagnefndir starfa á lands-
fundi og halda eigin fundi í Höll-
inni og öðru nærliggjandi funda-
rými, til dæmis í höfuðstöðv-
um flokksins í Valhöll, á Grand
hóteli við Sigtún og í félagsheim-
ili Þróttar og á Sporthóteli ÍSÍ í
Laugardal. Þá mun landbúnaðar-
nefnd funda í sal í nýreistri stúku
Laugardalsvallar.
Sérstakir kjördæmafundir
verða haldnir á morgun og dreif-
ast þeir um fundasali á Grand hót-
eli, Hótel Nordica og Hótel Sögu.
Á landsfundinum er kosið um
ellefu sæti í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins en enginn hefur tilkynnt
um framboð gegn sitjandi for-
ystu sem kjörin var fyrir tveim-
ur árum.
Við setninguna í dag munu
Diddú og Jóhann Friðgeir syngja
með Léttsveit Reykjavíkur áður
en Geir H. Haarde flytur ræðu
sína.
Í fyrramálið verða almennar
umræður, auk þess sem fram-
kvæmdastjóri flokksins, Andri
Óttarsson, flytur skýrslu sína.
Eftir hádegi verður fyrirspurnar-
tími ráðherra.
Landsfundurinn settur í dag
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Fiskveiðikvóti
jókst mest í Grindavík, Snæfells-
bæ og Vestmannaeyjum á árunum
2002 til 2006, samtals um 22 þús-
und þorskígildistonn. Á sama tíma
misstu Akureyri, Þorlákshöfn og
Skagafjörður mestan kvóta, eða
rúm sextán þúsund tonn.
Samkvæmt upplýsingum sem
Landssamband íslenskra útvegs-
manna hefur tekið saman voru
Vestmannaeyjar og Grindavík með
mestan fiskveiðikvóta af sveitar-
félögum landsins í fyrra, fjörutíu
þúsund þorskígildistonn hvort um
sig. Í þriðja sæti er Akureyri með
37 þúsund tonn.
Árið 2002 var Akureyri með af-
gerandi mesta kvótann af sveitar-
félögunum á landinu. Þá voru
Vestmannaeyjar í öðru sæti og
Grindavík í því fjórða.
Sé litið á kjördæmi landsins tap-
aði Norðausturkjördæmi mestum
kvóta frá 2002 til 2006 á meðan
Suðurkjördæmi og Norðvestur-
kjördæmi bættu við sig. Suð-
vesturkjördæmi og Reykjavíkur-
kjördæmi, bæði norður og suður,
bættu hvorki við né misstu mikið
af þeim kvóta sem þau hafa.
„Ég er ekkert hissa á þessum
tölum,“ segir Eiríkur Tómasson,
forstjóri útgerðarinnar Þorbjarnar
í Grindavík. „Hér hafa verið mjög
öflugar útgerðir í gegnum árin og í
raun aldrei orðið nein niðursveifla
eins og hefur gerst á öðrum stöð-
um.“ Hann segir útgerðir hafa
þurft að taka bæði erfiðleikum
og velgengni. „Mottóið er samt að
gefast ekkert upp.“
Einar Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri útgerðarinnar Auðbjargar
í Þorlákshöfn, telur meginorsök-
ina fyrir kvótatapinu vera sam-
einingu útgerðarinnar Meitils við
Vinnslustöðina, sem síðan fór til
Vestmannaeyja.
„Sameining átti að leysa vand-
ann en það fór ekki betur en svo að
útgerðin hvarf úr bænum. Miðað
við atvinnuástandið eru horfurnar
ekkert slæmar en útgerðin þyrfti
að vera öflugri en hún er. Það eru
fáar útgerðir eftir hérna.“
Grindvíkingar sópa
til sín aflaheimildum
Grindavík hefur bætt mestum kvóta við sig undanfarin ár en Akureyri hefur
tapað mestum kvóta. Á fjórum árum fór helmingur kvótans í Þorlákshöfn úr
bænum. Útgerðarmaður í Þorlákshöfn kennir brotthvarfi fyrirtækja um.
Kaþólska kirkjan hefur
keypt íbúðarhúsið að Kolla-
leiru í Reyðarfirði af Fjarða-
byggð til að stofna þar kaþólskt
munkaklaustur og prestakall. Að
því er segir í
frétt á vefsetri
Fjarðabyggð-
ar er gert ráð
fyrir að starf-
semi hefjist í
Kollaleiru í vor.
Þar segir einn-
ig að það séu
kapúsínar eða
hettumunkar
sem stofni
klaustrið. Það
sé hið fyrsta sem sé stofnað hér
á landi frá siðaskiptum. Íbúð-
arhúsið í Kollaleiru er 314 fer-
metrar og lóð klaustursins verð-
ur tveir hektarar. Kollaleira er
lögbýli rétt yfir innan þéttbýlið í
Reyðarfirði.
Stofna klaustur
á Kollaleiru
Íranar hafa veitt íröskum
uppreisnarmönnum úr röðum sjía
þjálfun í að setja saman skæð-
ar vegkantssprengjur sem geta
gatað í sundur brynvörn herbíla.
Þetta fullyrti talsmaður banda-
ríska herliðsins í Írak í gær.
„Við vitum að þessar sprengjur
eru framleiddar og þeim smyglað
inn til þessa lands, og við vitum
að þjálfunin á sér stað í Íran fyrir
menn sem læra að setja þær
saman og beita þeim,“ sagði tals-
maðurinn, William Caldwell, á
vikulegum blaðamannafundi.
Í byrjun þessa árs sögðu full-
trúar Bandaríkjahers að slíkar
vegkantssprengjur hefðu banað
að minnsta kosti 170 bandarískum
hermönnum í Írak.
Sakar Írana um
sprengjugerð
Vinstri grænir ríf-
lega fjórfalda fylgið í Suðurkjör-
dæmi frá síðustu kosningum, sam-
kvæmt könnun Félagsvísinda-
stofnunar fyrir Stöð 2. VG fær
17,6 prósent og tvo alþingismenn
en hefur engan þingmann í kjör-
dæminu nú. Sjálfstæðisflokkur
fær 30,4 prósent og þrjá menn.
Framsóknarflokkurinn tapar 7
prósentustigum, fær 16,7 prósent
og tapar öðrum þingmanna sinna.
Frjálslyndir fá 6,3 prósent og tapa
manni. Samfylkingin fær 25,4 pró-
sent, tapar 4 prósentustigum en
heldur þremur mönnum. Íslands-
hreyfingin fær 2,1 prósent og Bar-
áttusamtökin fá 1,5 prósent.
VG fjórfaldast í
Suðurkjördæmi