Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 8
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
/
LB
I
37
09
7
03
/0
7
Skráning á landsbanki.is
Skráning á fjármálakvöld fer fram á landsbanki.is
Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í Ráðgjafa-
og þjónustuveri í síma 410 4000.
Verið innilega velkomin.
Fimmtudagskvöld eru
fjármálakvöld
Fræðslukvöld fyrir almenning
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld”, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning.
Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um helstu þætti sem lúta að skattamálum, fjármálum heimilisins,
fjárfestingum, ávöxtun eigna og lífeyrissparnaði. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.
Í kvöld, Höfðabakka: Farið verður yfir fjárfestingarkosti sem í boði eru, til dæmis
skráð hlutafélög í kauphöll og verðbréfasjóði. Einnig verða gefin hagnýt ráð um
uppbyggingu eignasafna. Jafnframt verður greint frá því hvar hægt er að nálgast
upplýsingar um fjármálamarkaðinn og hvernig þær eru nýttar. Námskeiðið er
ætlað þeim sem vilja nýta tækifæri á fjármálamarkaði til að ávaxta eignir sínar.
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Námskeiðin hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stöðum:
12. apríl Höfðabakki Fjárfestingar og ávöxtun eigna
26. apríl Laugavegur 77 Fjármál heimilisins
Í kvöld
www.hi.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
70
06
0
4/
07
UMSÓKNARFRESTUR Í MEISTARANÁM
VIÐ VIÐSKIPTA- OG HAGFRÆÐIDEILD ER TIL 16. APRÍL
Viðskipta- og hagfræðideild býður upp á fjölbreytt og metnaðarfullt meistaranám
sem tekur mið af því besta sem gerist í heiminum í dag. Námið er þekkt fyrir góða
fræðilega undirstöðu og nemendur öðlast víðtæka innsýn í verkefni og áskoranir
atvinnulífsins.
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
Námsleiðir í meistaranámi:
Fjármál fyrirtækja
Fjármálahagfræði
Hagfræði
Heilsuhagfræði
Mannauðsstjórnun
Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
Reikningshald og endurskoðun
Stjórnun og stefnumótun
Viðskiptafræði
Umhverfis- og auðlindafræði (þverfaglegt)
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
um námsleiðir er að finna á heimasíðu
viðskipta- og hagfræðideildar, vidskipti.hi.is
Árleg skráningargjöld eru 45.000 kr.
Deildin býður einnig upp á MBA-nám.
Óvíst er hvort
nokkuð verður af fundi George W.
Bush Bandaríkjaforseta og leið-
toga demókrata á Bandaríkjaþingi
um aukafjárveitingu til stríðsins í
Írak. Bush bauð demókrötum upp
á fund, en tók strax fram að hann
hefði engan áhuga á að semja um
neitt.
„Við getum rætt um það hvern-
ig framhaldið verður með frum-
varp sem er hreint frumvarp,“
sagði Bush, „frumvarp sem veitir
fé til hermanna okkar án nokkurra
gervitímasetninga fyrir brott-
hvarf hersins og án þess að binda
hendur herforingja okkar á staðn-
um.“
Þar með er ljóst að hann er alls
ekki til umræðu um að verða við
kröfum demókrata um að í frum-
varpinu verði einhver ákvæði um
tímasetningu brotthvarf hersins
frá Írak. Demókratar verði að fall-
ast á hans afstöðu.
„Ég vil benda á að þetta eru ekki
samningaviðræður,“ tók Dana
Perinu, talsmaður Hvíta hússins,
fram til frekari áréttingar.
Leiðtogar demókrata í báðum
deildum þingsins, þau Harry Reid
og Nancy Pelosi, höfnuðu strax
þessum skilyrðum forsetans og
sögðu hann þurfa að horfast í
augu við það að nú séu breyttir
tímar eftir að repúblikanar misstu
meirihluta í báðum þingdeildum.
„Nú þarf forsetinn að semja við
þingið,“ sagði Reid. „Hann hefur
aldrei áður þurft að gera það. For-
setinn hefur til þessa bara gert
það sem hann hefur viljað. Hann
hefur haft stóran stimpil til um-
ráða hér í þinginu.“
Bandaríkjaþing samþykkti seint
í síðasta mánuði aukafjárveitingu
til stríðsins í Írak með ákvæði
um að brotthvarf hersins hæfist
á næsta ári, en Bush hefur hótað
því að beita neitunarvaldi á þau
lög. Um leið væri hann hins vegar
að beita neitunarvaldi á aukafjár-
veitinguna, sem herinn þarf á að
halda.
Öldungardeildarþingmaðurinn
John McCain, sem berst fyrir því
að verða forsetaefni repúblikana,
sakar demókrata um þrjósku í
Íraksmálinu. Einungis óvinir
Bandaríkjanna í Írak fagni því að
demókratar setji brotthvarfi hers-
ins tímamörk.
„Ósigur Bandaríkjanna væri
sorgarefni, ekki fagnaðarefni,“
sagði hann og bætti því við að
stríðið í Írak væri bæði „nauðsyn-
legt og réttlátt“.
Bush stendur
fast á sínu
Bush neitar enn að semja við demókrata um brott-
hvarf hersins frá Írak. Leiðtogar demókrata segja þá
tíma liðna að hann geti gert það sem honum sýnist.
Neyslumynst-
ur vestrænna þjóða ein-
kennist af óhófi og sóun
sem leiðir af sér ógn
við vistkerfi jarðar-
innar. Stjórnvöld og al-
menningur þurfa í sam-
einingu að vinna gegn
neyslukapphlaupinu og
beina sjónum að hinum
raunverulegu þörfum
fólks.
Þetta segir í Grænni fram-
tíð, riti Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs um sjálf-
bæra þróun.
Í ritinu er fjallað um
sautján málaflokka er
snerta umhverfi og sjálf-
bæra þróun. Lagt er til
að dregið verði úr losun
gróðurhúsalofttegunda
fyrir miðja öldina um að
minnsta kosti sextíu pró-
sent. Þá vill VG að hvatt
verði með skattalegum að-
gerðum til notkunar bíla knúinna
endurnýjanlegum orkugjöfum.
Vinna þarf gegn
neyslukapphlaupinu
Sænska lögreglan
sagði í gær að þörf væri á að
kanna betur bakgrunn hælisleit-
enda sem til Svíþjóðar koma, en
til þess þyrfti lögreglan meira fé
og mannafla. Sé það ekki gert er
hætt við því að landið verði ör-
uggt skjól fyrir stríðsglæpamenn
hvaðanæva úr veröldinni.
Rausnarleg stefna sænskra
yfirvalda gagnvart hælisleitend-
um hefur gert landið að eftirsótt-
um áfangastað fyrir flóttamenn
frá Balkanskaga, Afríku, Íran og
ekki síst Írak.
Lögreglan óttast að hundr-
uð manna, sem grunaðir eru
um stríðsglæpi í heimalöndum
sínum, hafi getað fengið hæli í
Svíþjóð þar sem ekki hafi reynst
unnt að kanna bakgrunn þeirra
nægilega vel. Yfir 24.000 manns
fengu hæli í Svíþjóð í fyrra.