Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 6
Umhverfisráð
Reykjavíkurborgar, ásamt borgar-
stjóra, kynnti í gær tillögur um að
felld yrðu niður stæðisgjöld fyrir
bíla sem eyða minna en um það bil
fimm lítrum á hundraðið. Gjald-
frjálst yrði því að leggja þeim í
miðbæ Reykjavíkur. Einnig yrði
námsmönnum í borginni gefið frítt
í strætó frá og með næsta hausti.
Þetta er meðal „grænna skrefa“
Reykjavíkurborgar, en svo nefn-
ist áætlun í umhverfismálum til
næstu þriggja ára. Meðal þeirra
eru hugmyndir um að gróðursetja
hálfa milljón trjáa og stytta leyfi-
legan tíma nagladekkjanotkunar
um einn mánuð.
„Við ætlum að bjóða borgarbúum
upp á það að ferðast öðruvísi en
bara með bílnum,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson, formaður
umhverfissráðs. „Ef við náum
námsmönnum upp í strætóinn
getum við alið þá svolítið upp til
að nota þennan ágæta samgöngu-
máta.“
Í heild sinni kosta grænu skref-
in um milljarð króna. Þá eru með-
taldir peningar sem hefðu hvort eð
er farið í rekstur borgarinnar, til
dæmis í bílakaupum starfsmanna.
Þar verði ekki keyptir fleiri bílar
en ella, aðeins vistvænni bílar.
„Við erum aðeins að bæta í og
færa peninga til. En við erum ekki
að hækka skatta til að gera þetta,“
segir Gísli. „Það verður auðvitað
eitthvert tekjutap af því að leyfa
bílum að leggja ókeypis. Við telj-
um hins vegar að við fáum tekjur
á móti. Með því að fá fólk í strætó
og á vistvæna bíla erum við að
spara jafnvel milljarða í uppbygg-
ingu gatnamannvirkja til lengri
tíma litið. Við lítum því ekki á
þetta sem kostnað heldur sem
fjárfestingu.“
Svipuð rök eru færð fyrir nýrri
blárri ruslatunnu fyrir dagblöð
og pappír. Afgangspappír sé nú
tæpur þriðjungur sorps íbúa.
Hann fari gjarnan með almennu
rusli og því ekki í endurvinnslu.
Með því að bjóða borgurum upp
á dagblaðatunnu verði auðveldara
að safna saman þessum verðmæt-
um og selja til Svíþjóðar í endur-
vinnslu.
Minnihluti borgarstjórnar hefur
lýst sig sammála áætlun meiri-
hlutans, enda byggi hún að nokkru
leyti á eldri tillögum Reykjavíkur-
listans. „Í umhverfismálum þurf-
um við að stíga saman skrefin til
að ná árangri og um þessi skref er
samstaða í umhverfisráði,“ segir
Björk Vilhelmsdóttir Samfylk-
ingu.
Ókeypis bílastæði
fyrir vistvæna bíla
Umhverfisráð leggur til að ókeypis verði í bílastæði fyrir litla vistvæna bíla.
Gjaldfrjálst verði í strætó fyrir námsmenn og nagladekkjanotkun bönnuð ein-
um mánuði lengur en nú er. Minnihluti borgarstjórnar er samþykkur tillögum.
Bæjarstjórar Sel-
tjarnarness og Kópavogs eru ekki
fráhverfir tillögum umhverfisráðs
Reykjavíkur um að gefa náms-
mönnum frítt í strætó.
Jónmundur Guðmarsson, bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi, segir
„ekki fullljóst“ hvort þetta sé
besta leiðin til að bæta samgöng-
ur. „Hins vegar sér maður á Ak-
ureyri og Reykjanesbæ að notk-
un vagnanna virðist hafa aukist.“
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri
í Kópavogi, tekur í sama streng.
Hugmyndina eigi að skoða gaum-
gæfilega. „Það er ekkert frítt í raun
og veru,“ segir hann. Ekki náðist í
bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
Ekki útilokað í
grennd borgar
Líður þér betur í millilanda-
flugi eftir að öryggisreglur voru
hertar?
Myndir þú vilja að barnið þitt
ynni í álveri í framtíðinni?
Ásatrúarmenn vonast til
að framkvæmdir við hof safnaðar
þeirra geti hafist í maí eða júní.
Í fréttabréfi Ásatrúarfélagsins,
Vorum sið, segir Egill Baldursson
lögsögumaður frá því að enn séu
arkitektar og skipulagsfræðing-
ar borgarinnar að velta fyrir sér
aðstæðum þar sem hofinu er ætl-
aður staður í Leynimýri í Öskju-
hlíð. Segir Egill tvo staði koma til
greina sem endanlegt stæði. Þess-
ir staðir séu á „svipuðum slóðum“
og ásatrúarmenn tóku táknræna
skóflustungu að nýja hofinu.
„Við Hilmar Örn [Hilmarsson
allsherjargoði] gengum um svæð-
ið með jarðfræðingi og verkfræð-
ingi ásamt arkitektinum okkar
Magnúsi Jenssyni í marslok og
voru menn sammmála um að báðir
staðirnir væru góðir og hentugir
til hofbyggingarinnar. Við trúum
því að skipulagsvinna borgarinnar
sé á lokastigi og að framkvæmdir
geti hafist í maí-júní,“ segir Egill
í Vorum sið og minnir liðsmenn
Ásatrúarfélagsins á bankareikn-
ing sem stofnaður var til að safna
í byggingarsjóð.
Þrátt fyrir að hofið sé enn ekki
risið í Öskjuhlíðinni stendur Ása-
trúarfélagið fyrir helgistund á lóð
sinni á sumardaginn fyrsta, sem
er eftir viku.
Vilja byrja á hofinu strax í vor
Ástandið í Írak fer „sífellt
versnandi“ að mati Rauða kross-
ins þrátt fyrir að öryggisástandið
hafi sums staðar lagast nokkuð.
„Að minnsta kosti höfum við
ekki séð að ástandið fyrir borg-
ara landsins sé neitt að verða
stöðugra,“ sagði Pierre Krähen-
bühl, framkvæmdastjóri Alþjóða-
nefndar Rauða krossins. Hins
vegar eigi starfsmenn Rauða
krossins erfitt með að meta hvern-
ig ástandið er í Bagdad vegna þess
hve hættulegt er að vera þar á
ferli.
Samkvæmt nýrri skýrslu Rauða
krossins um stöðu almennings
í Írak segir að átökin í landinu
„valdi þjóðinni allri gífurlegum
þjáningum“. Á hverjum einasta
degi eru tugir manna myrtir og
miklu fleiri særist.
Í líkhúsum liggja þúsundir líka
sem ekki hefur verið vitjað um,
annaðhvort vegna þess að ættingj-
ar vita ekki af þeim eða þora ekki
að ná í þau.
Læknar og hjúkrunarfólk
hafa flúið land sem veldur því að
„gífurlegur skortur er á starfs-
fólki í sjúkrahúsum og annarri
lykilþjónustu,“ sagði Krähenbühl.
Ríkisstjórn Íraks á einnig undir
högg að sækja. Í gær hótuðu fylgis-
menn sjía-klerksins Muktada al-
Sadr því að segja sig úr stjórninni
til þess að mótmæla því að Nouri
al-Maliki forsætisráðherra hefði
ekki sýnt stuðning við kröfur um
að Bandaríkjaher hyrfi á brott
innan tiltekins tíma.