Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 88
Ævintýraleg
símatilboð
Allir símar frá Vodafone afhendast forhlaðnir,
forstilltir og með 2 ára ábyrgð.
Með Vodafone live! kemst þú á Netið í símanum
þínum og getur til dæmis skoðað hvað er í bíó,
náð í brandara, skoðað stjörnuspána þína og
halað niður hringitónum og skjámyndum.
Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í
1414 eða smelltu þér inná www.vodafone.is til
að fá nánari upplýsingar.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.
Vodafone live!
Nokia 6234
Miklu meira en bara sími.
Með Bluetooth, myndavél,
útvarpi, steríó heyrnartólum
og styður minniskort.
Vodafone live!
Nokia 6085
Krúttlegur með Bluetooth,
myndavél, útvarpi, steríó
heyrnartólum, styður
minniskort. Fæst í fleiri litum.
Vodafone live!
Sharp GX-17
Mjög fjölhæfur á ótrúlegu
verði.Með Bluetooth,
myndavél og USB
tengjanlegur.
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Ævintýraverð
16.900 kr.
Ævintýraverð
9.900 kr.
Ævintýraverð
19.900 kr.
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
Fátt er leiðinlegra en kosninga-fundir sem fjölmiðlar finna
sig nú knúna til að bjóða upp á.
Því ríður á að passa sig að opna
ekki fyrir útvarp eða sjónvarp
næsta mánuðinn því alls staðar
er hætta á að þaulæft froðusnakk
fólks sem æst er í að ná sér í þægi-
lega innivinnu næstu fjögur árin
skelli á með offorsi. Leiðindi eru
ekki eftirsóknarverð þótt séu
lýðræðisleg.
sitja þeir í settinu, fram-
bjóðendurnir. Sumir þrútnir og
iðandi, aðrir glottandi og tilbún-
ir með það sem þeim finnst leiftr-
andi lúmskar athugasemdir. Svo
er talið í og tuðið hefst. Munnar
frambjóðenda fara á krúskontról
og moka út vaðli sem aldrei kemur
á óvart. Frumleg hugsun virðist
bönnuð og einlægni illa séð. Aldrei
fæst svar við því sem er spurt um,
bara loðið röfl um eitthvað allt
annað. Umsjónarmenn standa í
ströngu við að segja frambjóðend-
um að halda kjafti á kurteislegan
hátt þegar frammígjammið fer úr
böndunum. Frambjóðendur setja
fram sannfærandi tölur sem eru
dregnar sannfærandi í efa. Einn
segir eitt, annar segir annað, nei
nei og jú víst, sumir urra, aðrir
setja upp hundshaus. Fúllyndir
frambjóðendur reyna sitt besta
til að líta vel út en springa oftast á
limminu svo skín í ólundina. Eina
leiðin til að hafa örlítið gaman af
þessu er að ímynda sér að allir séu
allsberir.
lofa allir unaðs-
legri framtíð í besta landi í heimi.
Sokkafólkið í stofum landsins á í
mestu erfiðleikum með að ákveða
sig því allir virðast svo góðir: ætla
að leysa brýnustu vandamálin
fljótlega eftir kosningar og auð-
vitað redda vandamálum öryrkja
og öldraðra eins og síðast – og þar-
síðast.
hefur svo sem ekki yfir
miklu að kvarta í landi þar sem
helsta tilvistarspurningin er hvort
maður eigi að fá sér karamellu-
eða súkkulaðisósu á ísinn sinn. Og
þó: fákeppni, okur og vinnuálag
eru mál sem mætti ræða. Þau sitja
á hakanum í tuðbylgjunni. Flest
önnur mál eru talin merkilegri en
það hvort við eigum bara áfram
að þurfa að vinna mest allra til að
hafa efni á dýrasta mat og dýrustu
lánum í heimi.
allt kemur til alls geta
kjósendur verið vissir um að-
eins eitt, sama hver vinnur kosn-
ingarnar: Komin í þægilega inni-
djobbið verður þeirra allra fyrsta
verk að hækka kaupið sitt.
Lýðræðisleg
leiðindi