Fréttablaðið - 12.04.2007, Blaðsíða 22
hagur heimilanna
Gott að endurnýta hluti
Námslokatilboð Kaupþings
um afborgunarlaust íbúða-
lán fyrstu fimm árin geta
gefið sautján þúsund krón-
um meiri ráðstöfunartekjur
á mánuði á þeim tíma ef
ekkert íbúðalán er tekið til
viðbótar. Lántakinn greið-
ir fjárhæðina tvöfalda til
baka.
Ef tekið er íbúðalán, til fyrstu
íbúðarkaupa, sem eru afborgunar-
laus fyrstu fimm árin, er hægt að
spara um sautján þúsund krónur í
afborgunum á mánuði fyrstu fimm
árin, þegar einungis vextir eru
greiddir. Miðað er við tuttugu
milljóna króna lán til fjörutíu ára
hjá Kaupþingi sem er afborgunar-
laust fyrstu fimm árin. Vextir af
láninu eru 4,95 prósent. Þá er ekki
gert ráð fyrir verðbólgu í þessum
útreikningum.
Ef tekið er tuttugu prósenta
íbúðalán til tíu ára til viðbótar, upp
á fimm milljónir, er sparnaðurinn
aðeins minni, eða um þrettán þús-
und á mánuði í afborgunum fyrstu
fimm árin, en afborganir af þeim
lánum hefjast strax. Vextir af lán-
inu eru 5,95 prósent. Að fjörutíu
árum liðnum hefur upphaflega
lánsupphæðin verið greidd tvöföld
til baka, án verðbóta kostar lánið
rúmar 54 milljónir króna. Eftir
fyrstu fimm árin eru afborganir
hins vegar tæpum fimm þúsund
krónum hærri en ef afborganir
hafa verið greiddar allan tímann.
Greiddar eru rúmar 214 þúsund
krónur í fyrstu afborgun, en síðar
tæpar 139 þúsund krónur á mánuði
í fimm ár. Eftir fimm ár hækkar
greiðslan í tæpar 157 þúsund krón-
ur. Eftir tíu ár þarf að greiða 101
þúsund krónur út lánstímann.
Ef tekið er sams konar lán hjá
Kaupþingi með afborgunum allan
tímann er einni milljón minna
greitt til baka, eða tæpar 53 millj-
ónir króna, miðað við enga verð-
bólgu. Þá er gert ráð fyrir sömu
lánsupphæð, með sömu vöxtum og
í sömu hlutföllum og áður. Greidd-
ar eru tæplega 227 þúsund krónur
í fyrstu afborgun og svo tæplega
152 þúsund krónur á mánuði eftir
það. Þegar fimm milljóna króna
lánið hefur verið greitt upp eru
borgaðar tæpar 96 þúsund krónur
á mánuði auk verðbóta.
Afborgunarlausu lánin eru
íbúðalán sem Kaupþing býður
námsmönnum upp á. Einungis er
hægt að fá lán fyrir áttatíu pró-
sentum af markaðsvirði íbúðar og
þarf einungis að greiða vexti af
láninu fyrstu fimm árin. Lántaki
þarf að ljúka námi, vera að fara út
á vinnumarkaðinn, kaupa sína
fyrstu íbúð og standast greiðslu-
mat.
Aðrir bankar bjóða ekki upp á
slík námslokatilboð.
Afborganir eru hærri
eftir fyrstu fimm árin
Skráðu þig í MA í Evrópufræði.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2007.
Evrópa.
Ræturnar.
Framtíðin.
Þórhallur Þórhallsson, nýkjörinn
fyndnasti maður Íslands, segir sitt
besta húsráð vera að skella tannkremi
á rispaða geisladiska.