Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 68
Listform síðustu aldar er ljós-
myndin og hefur ekkert form per-
sónulegrar túlkunar á umhverfi
mannsins náð jafn sterkum tökum
á höfundum og njótendum og ljós-
myndin. Fyrirbærið teygði sig
fljótt inn í sálir þjóðanna og naut
snemma gríðarlegrar lýðhylli. Al-
menningur tók þessa skráningar-
tækni í sína þjónustu og múr milli
hinna menntuðu listamanna aka-
demíunnar og almúgans brotnaði.
Hvert sem augum er litið talar
ljósmyndin til okkar. Um lang-
an aldur var litið á iðnaðarljós-
myndun sem annars flokks form:
tískuiðnaðurinn naut þess í skjóli
mikillar afkomu að geta kallað til
verka færustu ljósmyndara hvers
tíma en lítið var látið með verk
þeirra sem listrænt efni. Það er
fyrst á síðustu áratugum liðinn-
ar aldar að tískuljósmyndin fær
verðugan sess sem sérstakt list-
form þar sem saman koma svið-
setning módelsins í rýminu, snið
og áferð flíkurinnar og sköpunar-
kraftur þess sem nemur andartak-
ið í réttri lýsingu.
Í dag kl. 17 verður opnuð í
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, sýning á
verkum franska ljósmyndarans
Gilles Bensimon en hann hefur
á ferli sínum fylgst með fram-
vindu tískunnar á síðustu áratug-
um og á sýningunni eru mynd-
ir af mörgum glæsilegum konum
sem hann hefur með störfum
sínum sem ljósmyndari tekið þátt
í að skapa. Þar í flokki eru tísku-
sýningastúlkurnar Naomi Camp-
bell, Linda Evangelista, Claudia
Schiffer og Christy Turlington,
en einnig margar þekktar persón-
ur úr kvikmyndaheiminum, eins
og Madonna, Gwyneth Paltrow,
Sharon Stone, Uma Thurman og
Naomi Watts. Módellistinn leiðir
það í ljós í hvaða áliti Bensimon
er: hann er kominn á efri ár en á
að baki glæsilegan feril og mörg
verka hans eru í dag eftirsótt sem
listaverk, rétt eins og margra ann-
arra ljósmyndara sem sinna fata-
bransanum sér til lífsviðurværis
beggja vegna Atlantshafsins.
Bensimon hefur ferðast víða
um heim til að finna ljósmyndum
sínum umgjörð og hefur komið
nokkrum sinnum hingað til Ís-
lands með aðstoðarmenn sína og
fyrirsætur.
Hann hefur starfað sem rit-
stjóri og aðalljósmyndari ELLE
tískutímaritsins síðan 1999 en allt
frá því að tímaritið kom fyrst út
í Bandaríkjunum árið 1985 hefur
Bensimon verið listrænn stjórn-
andi þess. Eru áhrif hans á samtíð
sína því víðtæk og liggja þræðir
hans víða. Gilles Bensimon hefur
hlotið mikið lof fyrir störf sín og
þykja verk hans sameina afburða
ljósmyndun, tísku og hönnun.
Þá hefur hann líka haldið sýn-
ingar og gefið myndir sínar út á
bókum. Á sýningunni í Hafnar-
borg eru ljósmyndir sem spanna
30 ára feril listamannsins.
Frítt er í hafnfirsk söfn í boði
Glitnis en þessi ljósmyndasýning
er hluti af Frönsku vori á Íslandi.
Tískumyndir í Hafnarfirði
9 10 11 12 13 14 15
NÁNARI UPPLÝSINGAR
LAUGARD. 14. APRÍL 2007
APAR
RDANSLEIKUR
PAPAR
STÓRDANSLEIKUR
PAPA
STÓRDANSLE
HÚSIÐ OPNAR KL. 23.00
MIÐAVERÐ 1500 KR.
ALDURSTAKMARK 20 ÁRA
Draumalandið
eftir Andra Snæ Magnason
Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala
í síma 555 2222 og á www.midi.is
Frumsýning
16.mars föstudagur kl. 20:00
22.mars fimmtud. 2.sýn kl. 20:00
23.mars föstud. 3.sýn kl. 20:00
24.mars laugard. 4.sýn kl. 20:00
„ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“
GRETTIR
Miðasala 568 8000
www.borgarleikhús.is
grettir.blog. is