Fréttablaðið - 12.04.2007, Side 74
Danski bruggmeistarinn
Jens Eiken kom til Íslands á
dögunum. Einar Logi Vignis-
son ræddi við hann um
Jacobsen-bjórinn sem kem-
ur á markað hér um næstu
mánaðamót.
Íslendingar eru á góðri leið með
að ná í skottið á hinum Norður-
löndunum í bjórdrykkju þótt enn
sé einhver vegur að ná frænd-
um okkar Dönum. Ljós lagerbjór
er um 99 prósent af sölunni en þó
hefur sala á öli og öðrum bjórteg-
undum aukist hægt og bítandi.
Í Evrópu er þessi þróun komin
lengra og sífellt meiri áhugi og
sala á gæðabjórum. Helst sá áhugi
í hendur við aukinn áhuga á vínum
og iðulega fylgist það að þeir sömu
og komast á bragðið með góð vín
vilja kynna sér flóknari bjór.
Svokölluð örbrugghús eða
míkróbrugghús hafa skotist upp
eins og gorkúlur um alla álfuna. Í
Danmörku einni eru slík brugghús
hátt í hundrað. Bjórrisinn Carls-
berg stefnir að því að vera leiðandi
í þessari þróun og stofnaði fyrir
tveimur árum míkróbrugghúsið
Jacobsen. Það er nefnt eftir stofn-
anda fyrirtækisins, J.C. Jacobsen,
og þótti löngu tímabært að nafn
hans væri dregið fram. Jacobsen
skírði hið heimsfræga brugghús
eftir Karli syni sínum og hæðinni
sem brugghúsið stendur á. Hóla
og hæðir kalla Danir berg og vöru-
merkið Carlsberg var fætt.
Það er alltaf gaman að hitta fólk
sem hefur gríðarlega ástríðu fyrir
starfi sínu. Talar um það af slík-
um ákafa að vonlaust er að hríf-
ast ekki með. Bruggmeistarinn
Jens Magnus Eiken virkaði á mig
eins og unglingur sem nýbyrjaður
er í popphljómsveit þegar ég hitti
hann fyrir nokkrum vikum. Jens
er lyfjafræðingur að mennt sem
lét drauminn rætast og gerðist
bruggmeistari. Hann hafði mikinn
áhuga á íslensku hráefni og þeim
miklu möguleikum sem væru
fyrir hendi hérlendis að búa til
gæðabjór. „Ég nota hvönn í bjór-
ana mína, þið eigið nóg af henni,“
sagði Jens. Hann var staddur hér
á landi til að kynna Jacobsen-bjór-
inn sem fást mun í vínbúðum frá
1. maí en er þegar kominn í sölu
á nokkrum betri veitingastöðum.
Á veitingastaðnum Silfri á Hótel
Borg voru haldnir Jacobsen-dagar
þar sem settur var saman matseð-
ill þar sem mismunandi tegundir
Jacobsen-bjórs rímuðu við réttina.
„Við hugsum þennan bjór fyrst
og fremst með mat. Það er mikil-
vægt að hafa það í huga þegar fólk
smakkar bjórinn okkar. Hann er
sterkur til að kalla fram öll helstu
einkenni hráefnisins. Þetta er ekki
bjór til að drekka í miklu magni
heldur að njóta í rólegheitum.“
„Við búum til nokkrar ólíkar týpur
til að para við mismunandi mat.
Saaz Blonde er ljós bjór í belgísk-
um stíl þar sem við notum tékk-
nesku saaz humlana og hvönnina
sem ég minntist á. Þetta er bjór
sem hefur komið einstaklega vel
út með íslenska fisknum og ræður
vel við miklar sósur. Dökki bjór-
inn, Brown Ale, er ristaður og á
vel við allan grillaðan mat. Margir
hafa bent mér á að þessir bjórar
gætu virkað vel með dæmigerð-
um íslenskum jólamat og þorra-
mat. Það væri gaman að fá að
prófa þennan skrítna mat sem ég
hef heyrt miklar sögur af. Sumt
þekki ég frá Danmörku eins og
hamborgarhrygginn og get stað-
fest að dökki bjórinn á einstaklega
vel við hann. Reyndar skiptir nor-
ræn matarmenning mjög miklu
máli fyrir framgang bjórsins á al-
þjóðavettvangi því Norðurlöndin
eru orðin mjög þekkt fyrir gæði
í matreiðslu og norræna veitinga-
staði má finna í öllum helstu stór-
borgum Vesturlanda.“
Jens segist fá mjög frjálsar
hendur hjá Carlsberg og að mik-
ill metnaður ríki hjá fyrirtækinu.
„Þetta verður aldrei nein massa-
framleiðsla og það vita stjórn-
endur. Og gæðin skipta gríðar-
lega miklu máli fyrir ímynd fyr-
irtækisins. Enda hafa allir glaðst
yfir þeim feiknarlega góðu mót-
tökum og gagnrýni sem bjór-
inn hefur fengið, t.d. hjá hinum
fræga enska bjórrýni Michael
Jackson. Hann benti mér í sam-
tali á mikilvægi tilraunastarf-
semi og að opna huga fólks fyrir
ólíkum tegundum bjórs. Ég reyni
að prófa mig eins mikið áfram
og mér er unnt og starfa tölu-
vert með öðrum míkróbrugghús-
um í Danmörku. Við eigum okkar
eigin samtök og vinnum saman
að gæðastöðlum og fræðslu en
það er gífurlega mikilvægt í jafn
viðkvæmri framleiðslugrein að
gæðin séu í lagi.“
Suður-afrískar kanónur
Borðar skjaldbökur en ekki lifur
Kanonkop er eitt frægasta vínhús Suður-Afríku þótt ekki sé það stórt.
Þau fjögur vín sem fyrirtækið framleiðir komu á markað hér nýverið.
Langt er um liðið síðan ég hef fagnað jafn innilega nýju innleggi í vín-
flóruna hérlendis. Vínin eru aldeilis frábær og vonandi taka íslenskir
vínáhugamenn þeim fagnandi til að þau haldist inni í vínbúðum. Það
gæti reynst þrautin þyngri því vínin eru ekki ódýr og það hafa verið
örlög flestra samlanda þeirra sem kosta mikið meira en þúsundkall
að detta úr hillum vínbúðanna eftir nokkra mánuði. Mörg ódýr suður-
afrísk vín hafa náð miklum vinsældum hér á landi. Þannig er Drostdy-
Hof mest selda kassavínið. En dýrari vínin hafa átt erfiðara um vik
og ekki náð að kveikja í vínáhugamönnum. Mörgum þykja þau gróf
og meiri um sig en góðu hófi gegnir. Kanonkop gæti breytt þessari
mynd. Vínin eru afar fínleg og evrópsk í stíl enda yfirlýst markmið
fyrirtækisins að vera álitið svar Suður-Afríku við fremstu vínhúsum
Bordeaux sem flokkuð eru í fyrsta yrki.
Ekki verður annað sagt en að Kanonkop sé með fókusinn í lagi.
Framleiðir aðeins fjögur rauðvín. Kanonkop Kadette (1.680 kr.) er
ágætur byrjunarreitur. Blanda þar sem pinotage er ríkjandi. Pinotage
er höfuðþrúga Suður-Afríku. Blendinsþrúga sem var búin til fyrir
tæpri öld, bræðingur pinot noir og cinsaut. Vín úr henni eru jafnan
djúprauð, kröftug og heit. Sumum finnst þau minna á brennt gúmmí,
á jákvæðan hátt þó. Vín úr pinotage eru ekki allra. Vinkona mín Dom-
inique Plédel Jónsson, skólastjóri Vínskólans, er ekki
mikill aðdáandi pinotage en segir Kanonkop Pinotage
(2.690 kr.) besta vín úr þrúgunni sem hún hafi smakk-
að. Get ég tekið undir þau orð. Var ekki síður hrifinn
af Kanonkop Cabernet Sauvignon (2.690 kr.), en leikni
Afríkumannanna með þá þrúgu er einstök og ekki oft
nægur gaumur gefinn í allri pinotage-umfjölluninni.
Flaggskipið er svo Kanonkop Paul Sauer (2.980 kr.).
Klassísk Bordeaux-blanda sem gagnrýnendur halda
ekki vatni yfir. Einn aðdáandi er Einar Thoroddsen vín-
læknir, sem telur vínið það fremsta úr álfunni.
Kanonkop er fjölskyldufyrirtæki og heldur
nú fjórða kynslóðin um taumana. Er staðsett í
Stellenbosch, einu helsta vínræktarsvæði lands-
ins. Nafnið er dregið af hæð sem gnæfir yfir vín-
ekrurnar og mætti íslenska sem „Hólkahóll“.
Þar var hleypt af fallbyssu fyrr á tíð þegar skip
sáust stefna á Höfðaborg. Streymdu þá bændurn-
ir úr héraðinu til borgarinnar að selja sjómönn-
um varning sinn.
... að blanda sítrónusafa og vatni í skál og
láta það rúlla í örbylgjuofninum í stutta
stund. Hann mun ilma eins og nýr.
UMHVERFISSMIÐJA
VISTVERND Í VERKI
Umhverfisvernd frá degi til dags!
Ung vinstri-græn standa fyrir umhverfissmiðju,
vistvernd í verki.
Smiðjan verður í Suðurgötu 3,
Reykjavík, kl: 20:00
Allir velkomnir
UVG
UNG VINSTRI GRÆN