Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 4
Nýr formaður fram-
kvæmdastjórnar Samfylkingar-
innar verður valinn á landsfundi
flokksins sem settur verður í Egils-
höll í dag.
Gunnar Svavarsson, forseti bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar og oddviti
flokksins í Suðvesturkjördæmi,
óskar ekki endurkjörs. Embætt-
ið er eitt hið veigamesta í stjórn-
kerfi flokksins. Óvíst er hver mun
gegna því en heimildir Fréttablaðs-
ins segja það eitt að það verði kona.
Jafnréttismálum verða gerð sér-
stök skil á landsfundinum og taka
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður, Svafa Grönfeldt rektor og
forstjórarnir Bjarni Ármannsson
og Þórólfur Árnason þátt í umræð-
um. Þá verður kosningastefnuskrá
Samfylkingarinnar mótuð og af-
greidd. Við setningu landsfund-
ar í dag munu formenn jafnaðar-
mannaflokka Danmerkur og Sví-
þjóðar, þær Helle Thoring-Schmidt
og Mona Sahlin, flytja ávörp.
Tæplega tvö þúsund manns hafa
rétt til þátttöku í hefðbundnum
störfum landsfundar en hann mega
allir flokksmenn sitja.
Jafnréttismálin í öndvegi
„Minkurinn er nær
en margur heldur, það sást til
hans í Nauthólsvík um daginn og
í Elliðaárdalnum,“ segir Sigmar
B. Hauksson, formaður Skotveiði-
félags Íslands, sem hefur boðað
til minkaveiðiátaks.
Félagið gefur þeim sem drepa
mink vottorð og barmnælu, auk
þess sem þeir geta unnið verðlaun
á borð við riffil og utanlandsferð.
„Þetta hefur vakið gríðarleg við-
brögð,“ segir formaðurinn. Þótt
flestir landsmenn búi í þéttbýli
bendir Sigmar á að margir dvelji
í sumarhúsum og verði varir við
minkinn. „Hann er kominn út um
allt.“
Minkur á ferli
í Nauthólsvík
Fjórir pólskir sjómenn á sextugs-
aldri hafa búið í Bjarma BA-326 síðan í janúar.
Bjarmi var sviptur veiðileyfi fyrir áramót „vegna
afla umfram veiðiheimildir“. Sjómennirnir voru samt
fengnir til landsins og komu hingað hinn 13. janúar.
Einn mannanna, Marek Wozniak, segir að samið
hafi verið um grunnlaun upp á 35.000 krónur á viku
og sjö prósenta hlut af seldum afla. Síðan í janúar
hafi ekkert verið veitt né greitt.
Matur hafi borist þeim með stopulum hætti. „Fyrst
var keyptur matur sem átti að duga í fimm daga.
Þökk sé kokkinum dugði hann í tíu daga,“ segir
Marek og dæsir.
Níels Ársælsson er eigandi Steinbjargar, útgerðar
Bjarma. Hann segist „gáttaður“ á sögu sjómannanna.
„Þeim var gerð grein fyrir því að báturinn hefði
misst veiðileyfið og að ekki væri útséð hvenær það
fengist aftur,“ þegar þeir komu til landsins í janúar.
Hann hafi boðið þeim að bíða og sjá í bátnum, hvort
hann gæti ekki orðið sér úti um kvóta. Sem valkost
hafi hann boðist til að útvega far fyrir þá aftur heim.
Þeir hafi ákveðið að bíða um borð. Aðspurður segir
hann að flugfarið sé enn í boði.
„Það er ekki eins og hafi væst um karlagreyin. Þeir
fá vasapeninga vikulega, um tíu til fimmtíuþúsund á
mann. Ég tel að við höfum gert vel við þessa menn.
Þetta er dapurlegt, en svona æxluðust hlutirnir bara.
Við fjölskyldan höfum ekki síður átt bágt.“
Pólverjarnir taka undir það að aðstaða í bátn-
um hafi verið snyrtileg og góð. Þeir æpa hins vegar
reiðilega „absolútt nje!“ þegar tilboð Níels um flug-
far er borið undir þá. „Við hefðum aldrei setið í bátn-
um vinnu- og launalausir með fjölskylduna heima,
hefði okkur ekki sífellt verið lofað vinnu og pening-
um innan skamms.“ Níels hafi aldrei útskýrt stöðuna,
þvert á móti hafi hann oft sent þau boð til verkalýðs-
félagsins í Póllandi að í mars og apríl færu þeir að
veiða. Þá yrðu þeir í mikilli vinnu.
Aðspurðir um vasapeningana segjast sjómennirnir
hafa fengið alls um 45.000 á mann, eða fimmtán þús-
und á mánuði. Féð hafi útgerðarmaðurinn sent þeim í
smáskömmtum síðustu mánuði. Þetta sé fé sem Níels
skuldi þeim úr síðasta túr, síðan í fyrra, en þá hafi
hann haldið eftir 60.000 krónum, líklega til að tryggja
að þeir kæmu aftur í janúar. Þeir hafi glaðst mjög að
fá tíu þúsund fyrir páskana, annars hefðu þeir orðið
matarlausir og fjölskyldurnar úti einnig.
Biðu launalausir í
báti í þrjá mánuði
Pólskir sjómenn hafa búið í báti í þrjá mánuði á stopulum matargjöfum og
peningum sem haldið var eftir í síðasta túr. Hafa fengið 45.000 krónur á mann.
Útgerðarmaður segir „alfarið þeirra ákvörðun“ að vera hér verklausir og bíða.
Siv Friðleifsdóttir
heilbrigðisráðherra undirritaði í
gær nýja reglugerð um takmark-
anir á tóbaksreykingum.
Með nýju reglugerðinni munu
tóbaksreykingar um borð í fiski-
skipum, kaupskipum eða öðrum
skipum sem notuð eru í atvinnu-
rekstri lúta sömu takmörkunum
og á öðrum vinnustöðum. Hing-
að til hafa verið rýmri heimild-
ir til reykinga á skipum en öðrum
vinnustöðum.
Í reykingabanninu sem tekur
gildi 1. júní í sumar verður með
öllu óheimilt að reykja innanhúss
í þjónusturýmum stofnana, fyrir-
tækja og félagasamtaka auk veit-
inga- og skemmtistaða.
Bannað að
reykja í skipum
Varnarmálaráðherra
Þýskalands sagði í gær að hinn
áformaði eldflaugavarnabúnaður
Bandaríkjamanna í austanverðri
Evrópu myndi skilja sunnanverða
álfuna eftir utan slíks verndar-
skjaldar og þar með í raun skapa
nýjar klofningslínur í Evrópu.
Ráðherrann, Franz-Josef Jung,
sagði að það væri Evrópu í hag að
komið yrði upp eldflaugavarna-
kerfi, og hvatti Bandaríkjamenn
til að ræða áform sín á vettvangi
Atlantshafsbandalagsins.
„Suður-Evrópa yrði óvarin. Við
verðum að semja um kerfi fyrir
Evrópu alla,“ sagði Jung á fundi
með utanríkismálanefnd Evrópu-
þingsins í Brussel.
Eldflaugavarnir
fyrir alla álfuna
Wen Jiabao, forsætis-
ráðherra Kína, boðaði betri sam-
skipti við Japan, einkum í efna-
hagsmálum, í ávarpi sem hann
flutti á Japansþingi í Tókýó í
gær. Á þriggja daga ferð sinni
um Japan hafa hann og japanskir
ráðamenn reynt að „bræða ísinn“
eftir síversnandi samskipti ríkj-
anna undanfarið.
Wen hvatti engu að síður jap-
anska ráðamenn til að standa
við afsökunarbeiðni sína vegna
hrottalegs framferðis japanskra
hermanna gagnvart Kínverjum
þegar stór hluti Kína var herset-
inn af Japönum.
Boðar samstarf
og nýja þíðu
Eldur kviknaði í báti suð-
vestur af Ryti við Ísafjarðardjúp
um áttaleytið í gærkvöldi. Tveir
menn voru í bátnum og náðu þeir
að slökkva eldinn sjálfir, að sögn
varðstjóra lögreglunnar á Ísa-
firði. Báturinn varð þó vélarvana
og þurftu mennirnir hjálp björg-
unarsveitar við að koma honum
í land.
Sædísin frá Bolungarvík kom á
staðinn og kom báturinn til hafn-
ar í Bolungarvík um klukkan hálf
tíu. Upptök eldsins eru ókunn.
Skipverjar náðu
að slökkva eldinn