Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 8
 Sjálfsmorðssprengju- maður sprengdi sig í loft upp í mötuneyti íraska þingsins í gær, dró tvo þingmenn með sér í dauð- ann og særði tíu aðra. Árásin var mikið áfall, ekki síst fyrir þá sem bera ábyrgð á öryggismálum á „græna svæðinu“ svonefnda í miðborg Bagdad, en þinghúsið er innan þess. Þinghússprengingin varð fáein- um tímum eftir að ein af vegbrúm borgarinnar yfir fljótið Tígris var eyðilögð í sprengjutilræði. Mið- hluti brúarinnar steyptist í fljótið og nokkrir bílar vegfarenda með er vörubíll fullur af sprengiefni var sprengdur. Að minnsta kosti tíu manns fórust og tugir særð- ust og slösuðust. Lögregla vann að því að bjarga um 20 manns sem í bílunum voru sem fóru í fljótið. Al-Sarafiya-brúin tengdi súnní- hverfið Waziriyah og sjía-hverfið Utafiyah í norðurhluta Bagdad. Tilræðið í mötuneyti þingsins var gert er margir þingmenn sátu að hádegissnæðingi. Auk hinna tveggja látnu særðust átta þing- menn og tveir starfsmenn. Eftir sprenginguna lokuðu öryggisverð- ir byggingunni og hleyptu engum inn eða út á meðan rannsókn stóð yfir. Tveir mánuðir eru síðan banda- ríska herliðið, í félagi við íraskar öryggissveitir lögreglu og hers, efndi til víðtæks átaks til að bæta öryggisástandið í Bagdad með því meðal annars að láta til skarar skríða gegn þekktum uppreisnar- hópum í borginni. Markmiðið með átakinu var að tryggja nægileg- an stöðugleika til að íraska ríkis- stjórnin fengi svigrúm til að koma í framkvæmd vissum þjóðþrifa- málum fyrir lok júnímánaðar. Takist það ekki hafa bandarísku setuliðsyfirvöldin hótað að hætta stuðningi við stjórnina. Báðir þingmennirnir sem dóu voru súnníar, úr sínum hvorum flokknum. Khalaf al-Ilyan, einn þriggja leiðtoga súnníaflokksins IAF, sem hefur 44 fulltrúa á þinginu, sagði að tilræðinu væri „beint að öllum – öllum flokkum – þinginu í heild sem tákni og fulltrúa fyrir alla anga írasks þjóðfélags.“ Að sögn Mikhlis al-Zamili úr sjía-flokknum Fadhila voru sex hinna særðu úr flokki herskáa sjía-klerksins Muktada al-Sadr. Hadi al-Amiri, formaður örygg- is- og varnarmálanefndar þings- ins, sagði sprengiefni kunna að hafa verið smyglað inn í húsið með birgðum fyrir mötuneytið. Þingmenn drepnir í sjálfsmorðsárás Tvö alvarleg sprengjutilræði voru gerð í Bagdad í gær. Annað var sjálfsmorðs- sprengjutilræði í þinghúsinu inni á „græna svæðinu“. Hins vegar var ein af helstu umferðarbrúm borgarinnar eyðilögð með miklu sprengiefni. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingar- innar, vill að áfram verði unnið að rannsóknum og úttektum vegna áformaðra álvera við Helguvík á Reykjanesi og Bakka í grennd Húsavíkur við Skjálfanda. Eftir að stækkun álversins í Straumsvík sé komin út af borðinu séu fram- kvæmdir í Helguvík nærtækast- ar. „Við teljum að það eigi ekki að ráðast í þær framkvæmdir fyrr en búið er að gera úttekt á þeim nátt- úrusvæðum sem þar eru undir, bæði á Reykjanesi og Hellisheiði. Og varðandi Húsavík eru í gangi rannsóknir á jarðhitanum á Þeista- reykjum. Þær geta haldið áfram og jafnhliða er hægt að vinna út- tekt á náttúrufarinu þar.“ Í riti Samfylkingarinnar um efnahagsmál, sem Jón Sigurðsson stýrði, segir að mikilvægt sé að stjórnvöld geri grein fyrir áform- um um framkvæmdir á sviði virkj- ana og stóriðju, svo ekki skapist óþarfa væntingar. Ingibjörg Sól- rún segir áform flokks síns í þeim efnum liggja ljós fyrir og því sam- ræmast þeim tilmælum. Þó sé ekki hægt að gefa út nákvæma fram- kvæmdaáætlun fyrr en rannsókn- um sé lokið. „Við leggjum áherslu á að teknar séu upplýstar ákvarð- anir um virkjanir og stóriðju.“ Eins sé mikilvægt að ákvarðan- ir um virkjanir séu teknar á við- skiptalegum forsendum. „Þær verða að standast arðsemiskröfur markaðarins, það á að fjármagna þær sérstaklega og ekki með ríkis- ábyrgð.“ Rannsóknum verði haldið áfram Ármúla 23 • Reykjavík Sími: 510 0000 Mi›ási 7 • Egilsstö›um Sími: 470 0000 Brekkustíg 39 • Njar›vík Sími: 420 0000 Grundargötu 61 • Grundarfir›i Sími: 430 0000 - hrein fagmennska! SparCreme ræstikrem Frábært til a› fjarlægja erfi›a bletti, uppsöfnu› óhreinindi, fitu, gúmmíför, kísil og sápuskánir. Notist á postulín, keramik, ry›frítt stál o.fl. Au›velt a› skola og skilur ekki eftir himnu. NABC Hlutlaus, sótthreinsandi ba›herbergishreinsir. Hentar vel til daglegra flrifa á ba›herbergjum. Hreinsar, sótthreinsar og ey›ir lykt. ATTRACTIVE RYKKÚSTUR Afflurrkunarkústur sem afrafmagnar. Langir flræ›ir sem ná í afskekktustu kima og skilja ekkert eftir! Ótrúlega sni›ugt! EXPRESS MOPPUSKAFT fiú flarft enga fötu, fyllir bara handfangi› me› vatni og hreinsiefni! Ótrúlega einfalt! BESTA VÖRURNAR ÚR Innlit/útlit Félagsmálaráðuneytið hefur óskað eftir skýringum Ragnheiðar Ríkharðsdóttir, bæjar- stjóra í Mosfellsbæ, á því hvers vegna ósk hjóna um skráningu um lögheimili í Mosfellsbæ var hafnað. Hjónin fluttu í sumarhúsið Himnaríki í Miðdalslandi árið 1996 og hafa tilkynnt búsetu þar á hverju ári síðan en Mosfellsbær hefur hafnað því að þau fái skráð lög- heimili þar. Nú vísa hjónin í dóm Hæstaréttar í sam- bærilegu máli frá 2005. Lögunum var breytt eftir þann dóm og vitnar Mosfellsbær til þeirra. Félagsmálaráðuneytið hefur nú bent bæjaryfirvöld- um á að hjónin hafi sótt um lögheimilsskráninguna áður en nýju lögin tóku gildi. Bærinn þurfi að koma með lögmætar ástæður fyrir því að hafna ósk hjón- anna í Himnaríki. Ef slíkar ástæður séu ekki fyrir hendi sé þess vænst að Mosfellsbær eigi frumkvæði að því að Þjóðskrá afgreiði flutningstilkynningu þeirra. Hjónin hafa ítrekað sagst munu afsala sér rétti til allrar þjónustu frá bæjarfélaginu fái þau búsetuleyfið. „Við viljum halda því fram að á okkur hafi verið brotin lög, þar með talin stjórnsýslulög. Við förum fram á leiðréttingu og löglega meðferð,“ segja hjónin í Himnaríki bréfi til félagsmálaráðuneytisins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.