Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 20
fréttir og fróðleikur
Vettvangur átaka jafnt sem samstöðu
Undirbúning-
ur að hefjast
Vestfirðingar, sem reiða sig
mikið á fiskveiðar, fengu að
kenna á frjálsri kvótasölu á
tíunda áratug síðustu aldar.
Veiðiheimildir hurfu jafnt
og þétt þar til tíu árum
seinna. Síðan 2001 hefur
kvótinn aukist töluvert en
skiptar skoðanir eru um
ástæðurnar.
Lög sem heimiluðu sölu og leigu á
fiskveiðiheimildum tóku gildi árið
1991 og í kjölfarið tók Vestfjarða-
kvótann að þverra. Svo virðist
sem vestfirskir útgerðarmenn séu
farnir að rétta úr kútnum því á
síðustu sex árum hafa veiðiheim-
ildir þeirra nær tvöfaldast. Þær
eru nú um 41 þúsund þorskígildis-
tonn.
Samkvæmt upplýsingum um
aflaheimildir sem Landssamband
íslenskra útgerðarmanna (LÍÚ)
hefur tekið saman var Vestfirð-
ingum heimilt að veiða um 54 þús-
und tonn árið 1991, eða 15,5 pró-
sent af heildarafla fiskveiðiflotans.
Árið 2001 var kvótinn kominn
niður í 22 þúsund tonn, eða 8,1 pró-
sent heildaraflans. Síðan þá hefur
hann vaxið upp í 41 þúsund þorsk-
ígildistonn.
Þorskígildistonn er það afla-
magn eða veiðikvóti af tiltekinni
tegund sem telst jafnverðmætt og
eitt tonn af þorski.
Þrátt fyrir að kvótinn á Vestfjörð-
um hafi aukist síðan 2001 þýðir
það ekki endilega að aflinn hafi
aukist, að sögn Gunnlaugs Arnars
Finnbogasonar, útgerðarmanns á
Ísafirði.
Hann segir að árið 2001 hafi
verið sett aflahámark á krókabáta
vegna veiða á ýsu, ufsa og steinbít
sem var ekki áður. Einnig hafi
dagabátar farið yfir í kvótakerfið
árið 2004, en þeir fengu áður
úthlutað veiðidögum. Þannig hafi
kvótinn aukist án þess að aflinn
hefði endilega aukist.
Björn Jónsson hjá kvótamiðlun
LÍÚ segir að um aldamótin virðist
sem Vestfirðingar hafi áttað sig á
því að það gangi ekki til lengdar
að selja kvótann grimmt til ann-
arra landshluta. Þeir hafi farið að
kaupa kvóta aftur til Vestfjarða,
og það sé helsta ástæðan fyrir
betra ástandi þar í dag.
„Það er sérstaklega á Flateyri
og Bolungarvík sem fyrirtæki
hafa verið að bæta við sig. Þar
hafa menn verið að styrkja sig
undanfarin þrjú til fjögur ár.“
Kvótasala er ekki eina ástæðan
fyrir því að kvóti hverfur úr sveit-
arfélögum heldur geta heilu
útgerðirnar flutt sig um set og
tekið kvótann með sér. Sú var
raunin í Þorlákshöfn, sem missti
helming kvóta síns á árunum 2002
til 2006.
Einar Sigurðsson hjá útgerðinni
Auðbjörgu á Þorlákshöfn segir
mikinn kvóta hafa horfið þegar
útgerðin Meitill sameinaðist
Vinnslustöðinni, sem flutti síðan
til Vestmannaeyja og tók kvótann
með. „Sameining átti að leysa
vandann en það fór ekki betur en
svo að fyrirtækið hvarf úr
bænum,“ segir hann.
Kjálkinn sem missti kvótann sinn
Arngrímur Þorgrímsson
Sölustjóri hjá RV
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
Lotus Professional
Rekstrarvörur
1982–200725ára
R
V
62
30
A
3.982 kr.
1.865 kr.
Blár sápuskammtari Foam
Blátt WC Compact statíf fyrir tvær rúllur
Blár enMotion snertifrír skammtari
1.865 kr.
Á tilboði
í apríl 2007
Valdar gerðir af Lotu
s
Professional skömm
turum
og tilheyrandi áfyllin
gum
fyrir snyrtinguna.