Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 22

Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 22
[Hlutabréf] TM Software hefur samið um sölu á öllum hlutabréfum í Mari- tech International til AKVA Group ASA í Noregi fyrir 91 millj- ón norskra króna, eða sem nemur um einum milljarði króna. Samn- ingurinn kemur í framhaldi af viljayfir- lýsingu sem gerð var milli félaganna í lok desember. Í tilkynningu TM Software kemur fram að í fyrstu hafi ein- göngu staðið til að selja sjávarútvegs- hluta Maritech en í framhaldi af áreiðanleikakönnun hafi umfang samningsins aukist. Þá hafi stjórn- endur TM Software talið hags- munum viðskiptavina best borgið ef Maritech yrði selt í heilu lagi. Salan er háð samþykki stjórna bæði TM og AKVA Group, en í til- kynningu AKVA til Kauphallarinn- ar í Ósló kemur fram að stefnt sé að því að ljúka sölunni fyrir lok þessa mánaðar. Greitt verður fyrir með peningum við gildistöku sölunnar, en AKVA fjár- magnar kaupin með lán- töku að hluta. Ráðgjafi um kaupin var fyrir- tækjaráðgjöf Glitnis. Þá liggur ekki fyrir hver áhrif samrunans verði á starfsemi Mar- itech hér heima og er- lendis, en alls starfa um 180 manns hjá fyrirtæk- inu í átta löndum, þar af um 60 starfsmenn hér. Frekari upplýsingar eiga, samkvæmt tilkynn- ingu AKVA, að liggja fyrir eftir að stjórnir félaganna hafa samþykkt samrunann. Í tilkynningu er haft eftir Ágústi Einarssyni, forstjóra TM Soft- ware, að salan geri félagið betur í stakk búið til að mæta tækifærum sem eru á markaði, en ekki náðist í hann við vinnslu fréttarinnar. Selja Maritech á einn milljarð króna Álrisinn Alcoa hagnaðist um 662 milljónir Bandaríkjadala á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 44,5 milljörðum íslenskra króna, níu prósentum meira en á sama tíma í fyrra og besti fyrsti fjórðungur hjá fyrirtækinu. Álverð hækkaði um 15 prósent á fjórðungnum og hefur rúmlega tvöfaldast í verði á síðastliðnum fimm árum. Þá jókst eftirspurn eftir áli talsvert. Bandaríski bankinn Citigroup segir eftirspurn eftir áli eiga enn eftir að aukast. Horfir Alcoa til þess að geta sinnt eftirspurninni með aukinni framleiðslu frá álver- um sínum í Brasilíu og Reyðarfirði þar sem framleiðsla er nýhafin. Gert er ráð fyrir að full framleiðsla verði komin á skrið í álverinu í okt- óber. Gróði Alcoa eykst milli ára Bandaríski bankinn Citigroup ætlar að segja upp 17.000 manns, eða um fimm prósentum af starfs- liði bankans. Að auki verða 9.500 störf flutt til og sum til landa þar sem laun eru lægri. Horft er til þess að með aðgerðunum sparist 4,6 milljarðar dala, jafnvirði 309 milljarða íslenskra króna, á næstu þremur árum. Citigroup segir upp starfsfólki Kredittilsynet, norska fjármála- eftirlitið, varar við því að Kaup- þing eignist meira en fimmtungs- hlut í fjármálafyrirtækinu Store- brand og óttast um stöðu félagsins ef Kaupþing eykur hlut sinn. Þetta kemur fram í skýrslu frá stofn- uninni sem Dagens Nærlingsliv greinir frá. Kaupþing er stærsti hluthafinn í Storebrand með áætlaðan sextán prósenta hlut sem metinn er á um 44 milljarða króna. Stofnunin segir að Kaupþing skorti reynslu af trygginginga- rekstri sem meginstarfsemi Store- brands byggist á, skorti eigið fé og sé of áhættusækinn. Þá hefur hún áhyggjur af því að bankinn sé við- kvæmur gagnvart skakkaföllum í brothættu íslensku hagkerfi. Kaupþing hefur heimild til að eignast allt að fimmtungshlut í Storebrand, rétt eins og norska vá- tryggingafélagið Gjensidige, en hafði óskað eftir leyfi að eignast fjórðungshlut sem eftirlitið hafn- aði. Að mati fréttaskýrenda er af- staða Kredittilsynet talin styrkja stöðu Gjensidige ef til yfirtöku kemur. „Við erum ekki sammála norska fjármálaeftirlitinu og teljum að niðurstöður þeirra séu ekki byggð- ar á traustum grunni,“ segir Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður samskiptasviðs Kaupþings, í sam- tali við Fréttablaðið. Jónas gefur lítið fyrir meint reynsluleysi Kaup- þings af tryggingarekstri og bend- ir á að bankinn hafi tekið þátt í vá- tryggingum, eigi KB Líf og í stjórn bankans sitji forstjóri eins stærsta tryggingafélags Svíþjóðar. Talið er að tilgangur fjárfest- ingar Kaupþings í Storebrand sé öðrum þræði sá að eignast hluta- bréf í öflugu fjármálafyrirtæki á góðu verði fremur en að taka félag- ið yfir. Á fundi stjórnenda bankans með markaðsaðilum í Lundúnum á dögunum kom fram að fjárfesting- argeta Kaupþings sé um 270 millj- arðar króna sem er sama fjárhæð og markaðsvirði Storebrands. Viðbrögð norska fjármálaeftir- litsins koma ef til vill ekki á óvart. Reuters-fréttastofan bendir á að sögulega séð hafi ítök ríkisins verið sterk í norsku athafnalífi og oft hefur stjórnvöldum tekist að koma í veg fyrir að erlendir fjár- festar tækju yfir norsk fjármála- og iðnaðarfyrirtæki. Kaupþing er því ekki eitt um að fá móttökur sem þessar. Talsmaður Kaupþings segir að gagnrýnin sé ekki byggð á traustum staðreyndum. Ekki í fyrsta sinn sem erlent fyrirtæki fær kaldar kveðjur frá opinberum aðilum. Peningaskápurinn...
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.