Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 26

Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 26
greinar@frettabladid.is Forystueðli íslenskra kinda og sauðfjárkynið okkar er ein- stakt í heiminum, sagði í frétt RÚV 7. apríl, og jafnframt að bera megi saman eðli forystukinda og mann- skepnunnar. Kannski tilviljun en samt skemmtilega táknrænt að sama dag var kynnt Gallupkönn- un um vinsældir stjórnmálaleiðtog- anna. Geir er vinsælastur, þá Stein- grímur og svo Ómar. Í fréttinni kom líka fram að forystufé hefur löngum þótt til vandræða í smala- mennsku þar sem sjálfstæður vilji þess stangast stundum á við vilja bændanna. Kannski Geir sé bónd- inn og nýliðinn Ómar hin óstýriláta forystugimbur? Eitt af því sem vekur athygli eru óvinsældir Ingibjargar Sólrúnar. Ekki síst vegna þess að hún hefur verið talin foringjaefni frá upp- hafi stjórnmálaferils síns. Án þess að leggja mat á pólitískar áherslur hennar eða tengsl við sauðfjár- kynið er áhugavert að grípa niður í stjórnmálasögu hennar út frá styrkleikamælingu skoðanakann- ana. Slíkar kannanir endurspegla einmitt það þrástef tíðarandans að stjórnmál snúist sífellt meira um einstaklinga en málefni. Á tímabilinu 1997-2001 mældi Gallup ánægju fólks með störf nokkurra þekktra Íslendinga, þ.m.t. forsætisráðherra og borg- arstjóra sem á þessum tíma voru Davíð Oddsson og Ingibjörg Sól- rún. Ánægja með störf Ingibjarg- ar á tímabilinu mældist frá 63% til 78%. Ánægja með Davíð Oddsson mældist umtalsvert lægri eða frá 43% til 69%, en hann er af mörg- um talinn eiga einn glæsilegasta feril íslenskra stjórnmálamanna. Hér þarf auðvitað að hafa í huga að borgarstjóraembættið er alla jafna ekki eins „pólitískt“ eða um- deilt og forsætisráðherraembætt- ið. Í desember 2001 mældi Gallup ánægju með borgarstjórn Reykja- víkur. Tæp 39% sögðust ánægð með meirihlutann en miklu fleiri voru ánægðir með borgarstjórann eða 62% og ljóst að Ingibjörg naut meiri hylli en meirihluti borgar- stjórnar (Gallup 2002). Í aðdraganda kosninganna 2003 spurði Gallup um viðhorf til stjórn- málaforingja sem forsætisráð- herraefna. Ingibjörg hafði yfir- burðastöðu en 73% töldu að hún myndi „standa sig vel“ sem forsæt- isráðherra, næstur kom Davíð með 62% og aðrir foringjar neðar. Ríf- lega helmingur bar „mikið traust“ til hennar, talsvert fleiri en treystu hinum foringjunum. Þá töldu 78% Ingibjörgu „málefnalega“, þar sem hún deildi fyrsta sætinu með Stein- grími J. (Gallup 2003). Í rannsókn Ólafs Þ. Harðarsonar eftir kosn- ingarnar 2003 var enn spurt um afstöðu til leiðtoganna. Af þeim sem tóku afstöðu sögðu jafnmarg- ir að Ingibjörg og Davíð Oddsson „endurspegluðu skoðanir sínar vel“ eða 29%, aðrir leiðtogar voru miklu neðar. Þessar kannanir voru gerðar eftir umdeilt brotthvarf hennar úr stóli borgarstjóra. Hvað hefur eiginlega gerst síðan 2003 þegar Ingibjörg var talin trú- verðugur og áhrifamikill leiðtogi af þjóð sinni, hefur hún gert eitt- hvað af sér? Verðskuldar hún þess- ar óvinsældir – og það meðal kyn- systra sinna? Það er rannsóknar- efni fyrir fræðinga hvað skýri þennan viðsnúning. Hvaða þýðingu hafði formannsslagur Samfylkingar- innar 2005 og nýtt hlutverk Ingi- bjargar? Gleymum ekki að það var ný reynsla fyrir þjóðina að kona felli sitjandi stjórnmálaforingja. Jóhanna Sigurðardóttir tapaði jú þegar hún skoraði Jón Baldvin á hólm í formannskjöri árið 1994. (Nei, hér er ekki verið að gleyma formannsslag Margrétar Frímanns- dóttur og Steingríms J. en munur- inn er sá að þá var formannssætið laust). Að sækjast eftir forystu- hlutverki er auðvitað áhættusamt uppátæki fyrir konur, eins og Halla Gunnarsdóttir fékk að reyna á dög- unum í KSÍ og Siv í Framsóknar- flokknum. Nema kannski að taka rækilega fram fyrst að maður bjóði sig EKKI fram sem kona held- ur á eigin verðleikum. Rétt eins og konur séu almennt án verðleika eða bjóði sig iðulega fram á forsend- um kynsins en ekki hæfileikanna – öfugt við karla? Og hvaða þýðingu og áhrifa- mátt hafa fjölmiðlar? Rannsókn- ir sýna að fjölmiðlaumfjöllun um stjórnmálakonur gengur mikið út á útlit, framkomu, klæðnað og tilvís- anir í kyn fremur en gerendamátt og athafnir. Arna Schram skrifaði skemmtilega grein í Morgunblað- ið árið 2003 þar sem hún lagði út af frétt í DV með yfirskriftinni „Lipp- onen gæti misst völdin í hendur konu“, en „konan“ var Anneli Jäätt- eenmäki þáverandi formaður Mið- flokksins í Finnlandi. Ein af þeim sem hefur rannsakað hlut fjölmiðla í að skapa eða draga úr trúverðug- leika kvenna í stjórnmálum er fjöl- miðlafræðingurinn Karen Ross. Þeir sem vilja fræðast meira ættu endilega að drífa sig á fyrirlest- ur hennar í hádeginu í dag í Há- skóla Íslands um stjórnmálakon- ur sem fréttaefni. Þótt samlíking- in við sauðfjárkynið sé skemmtileg er sá grundvallarmunur á kind- um og fólki að kindahjörðina skort- ir tungumál, menningu og sjálfs- vitund. Rollur hvorki lesa blöð né fylgjast með fjölmiðlum, þær myndu aldrei spyrja: „Hvar hún fékk þessa skó?“ Íslenska forystukindin Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Fram-sóknarflokks í Reykjavík hefur ákveð- ið að láta hendur standa fram úr ermum í umhverfismálum í borginni og vera um leið öðrum sveitarfélögum til fyrirmyndar. Borgarbúar munu nú reglulega verða varir við vistvænar breytingar í borginni. Reykjavíkurborg ætlar t.d. að leggja sitt af mörkum til að gera þjónustu Strætó betri. Þannig munu reykvískir námsmenn fá ókeypis í strætó næsta vetur. Þetta atriði felur í sér fjölmörg tæki- færi og ég hvet reykvíska framhaldsskóla og há- skólanemendur til að nýta sér það. Samgöngur eru helsti orsakavaldur mengunar í borginni og ef náms- menn taka að líta á Strætó sem góðan valkost mun draga úr þessari mengun – auk þess draga þeir úr eigin samgöngukostnaði til og frá skóla. Ég er viss um að einhverjir námsmenn munu fresta kaupum á bifreiðum og nota hagstæðar al- menningssamgöngur í borginni. Einnig má nefna að það verður betra að ferðast með strætisvögnum en áður því að allar lykilbiðstöðvar munu birta raun- tímaupplýsingar og biðstöðvar fá heiti sem birtast mun á ljósaskiltum um borð í vögnun- um. Þá fær strætó oftar forgang í umferðinni á völdum stofnbrautum. Græn skref í Reykjavík eru í tíu flokkum og er þar fjölmargt að nefna sem borgarbúar eru hvattir til að kynna sér, t.a.m. munu öku- menn visthæfra bifreiða geta lagt ókeypis í bílastæði borgarinnar. Visthæfar bifreiðar teljast þau ökutæki sem nota bensín eða dísil en hafa lítinn útblástur og eru sérlega spar- neytin. Þetta græna skref er m.a. hvatning til borgarbúa um að nota slíkar bifreiðar í borginni. Þá vil ég einnig nefna að göngu- og hjólreiðastíg- urinn frá Ægisíðu upp í Elliðaárdal verður breikkað- ur, upphitaður og vatnshönum þar fjölgað. Þetta er viðleitni til þess að gera hjólreiðar að raunveruleg- um samgöngumáta í borginni. Ég hvet borgarbúa til að kynna sér á heimasíðu Reykjavíkurborgar framkvæmdaáætlun í umhverfis- málum sem við höfum nú hrint í framkvæmd, m.a. um visthæfari leik- og grunnskóla, göngugötu, meiri endurvinnslu og betri loftgæði í borginni. Höfundur er formaður ungra framsóknarmanna og varaformaður umhverfisráðs Reykjavíkurborgar. Strætó raunhæfur valkostur E itt stærsta vandamál Samfylkingarinnar hefur verið skortur á stöðugleika í málflutningi. Oft og tíðum hafa viðbrögð í röðum flokksins einkennst af tilviljana- kenndum viðbrögðum við einstökum atburðum í sam- félaginu og ekki alltaf verið ljóst af hvaða heildarsýn þau hafa verið sprottin. Slíkt er fremur einkenni smáflokka, en þeirra sem ætla sér leiðandi stöðu í litrófi stjórnmálanna. Í vikunni kynnti Samfylk- ingin skýrslu í ritstjórn Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi ráð- herra, Seðlabankastjóra og forstjóra Norræna fjárfestingar- bankans. Skýrslan gefur greinargóða mynd af helstu vanda- málum efnahagskerfisins og helstu úrlausnarefnum sem bíða ábyrgra stjórnvalda á komandi kjörtímabili. Í skýrslunni eru með efnislegum hætti gagnrýnd lausa- tök í efnahagsstjórninni og togstreitan milli ákvarðana ríkis- stjórnar og Seðlabanka sem hefur hamlað því að tök hafi náðst á þenslunni í efnahagslífinu. Um leið og finna má harða gagn- rýni á ríkisstjórnina verður ekki annað séð en að um leið sé færð fram býsna óvægin sjálfsgagnrýni. Samfylkingin gerði mistök í umræðu um fjárlög þegar einungis var að finna frá hennar hendi tillögur um aukin útgjöld í bullandi þenslu í hagkerfinu. Skýrslan nú, sem er afar vönduð og sjónar- miðin vel rökstudd, er mikilvægt skref og stefnubreyting frá upp- hlaupsstjórnmálum til umræðu á grundvelli heildarsýnar á sam- félagið og þróunar þess á komandi árum. Slíkt er fagnaðarefni og mikilvægt að flokkurinn nýti landsfund sinn til að sýna í verki að hentistefnan sé að baki og fram undan sé tími yfirvegaðrar fram- tíðarsýnar sem byggð sé á raunsæi og ábyrgð. Slík sýn er einkenni stórflokka, líka þegar á móti blæs í skoðanakönnunum. Eins og við er að búast er svo yfirgripsmikið útspil gagnrýnt á ýmsa vegu. Það er fyllilega eðlilegt. Hins vegar er nauðsynlegt að svara jafn vel rökstuddri og yfirvegaðri sýn með sama hætti. Meðal þess sem leiðari Morgunblaðsins gagnrýnir með gífur- yrðum er fullyrðingar skýrslunnar um frumkvæði Íbúðalána- sjóðs á lánamarkaði sem höfðu í för með sér aukna þenslu. Slík gagnrýni lýsir lítilli þekkingu á lögmálum frjáls markaðar og þarf í sjálfu sér ekki að koma á óvart. Leiðarar Morgunblaðs- ins hafa tíðum verið eins og nátttröll í morgunskímu þess dags þegar þjóðin innleiddi opið vestrænt hagkerfi eins og það tíðk- ast hjá nágrannaþjóðum okkar. Samfylkingin þarf að senda skýr skilaboð á landsfundi sínum um að hugur fylgi máli. Sjálfstæðisflokkurinn heldur einnig landsfund og spennandi verður að sjá hvort milduð verður hin Thatcheríska sýn á evruna sem ásamt þögn hefur verið inntakið í afstöðu flokksins til framtíðarstöðu þjóðarinnar í alþjóðamálum síðustu ár. Mikilvægt skref í átt að heildarsýn Skráðu þig fyrir 15. maí 2007. MA í skattarétti

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.