Fréttablaðið - 13.04.2007, Page 28
Karl Popper kenndi mér, að vís-indin ættu að vera frjáls sam-
keppni hugmynda. Mér hefur
blöskrað, hversu ákaflega stuðn-
ingsmenn kenningarinnar um
verulega hlýnun jarðar af manna-
völdum hafa reynt að kveða niður
keppinauta sína. Hvað veldur
þessari ákefð? Ef svarið er, að
við séum í lífsháska, þá hefur það
heyrst oft áður. Til dæmis var
fyrirsögn fréttar Morgunblaðs-
ins 10. júní 1977 um blaðamanna-
fund, sem fyrirlesarar á alþjóð-
legri umhverfisráðstefnu á Íslandi
héldu: „Lítil ísöld fyrir aldamót?“
Þar kvað Reid Bryson, sérfræð-
ingur um veðurfar á Norðurslóð-
um, líkur á nýrri ísöld. Mannkyn
yrði að búa sig undir harðindi og
gæti lært af íslenskum bændum,
sem hefðu ákveðið einu sinni á ári,
hversu margt fé væri á vetur setj-
andi. Aðrir fyrirlesarar tóku undir
með Bryson.
Kólnað hafði í veðri frá um 1940
til um 1970, en eftir það hefur
hlýnað. Árið 1977 töluðu vísinda-
menn um nýja ísöld. Þrjátíu árum
síðar vara þeir við nýju hita-
skeiði. En ályktunin er jafnan hin
sama: Veita verður meira fé til vís-
indamanna og taka meira mark á
niðurstöðum þeirra! Ég rifja þetta
upp vegna skrifa þeirra Tómas-
ar Jóhannessonar jarðeðlisfræð-
ings og Jóns Egils Kristjánsson-
ar veðurfræðings í Fréttablað-
inu 11. apríl. Þar gagnrýndu þeir
grein eftir mig í Fréttablaðinu 30.
mars, þar sem vitnað var í nýja
breska heimildarmynd, Blekking-
una mikla um hlýnun jarðar (The
Great Global Warming Swindle).
Framlag þeirra Tómasar og Jóns
Egils er skætingslaust, og er mér
ljúft að svara athugasemdum
þeirra eftir bestu getu.
Ein at-
hugasemd-
in er, að við-
mælandi í
heimildar-
myndinni
bresku, Carl
Wunsch,
telji orð sín
þar hafa
verið slitin
úr samhengi.
Mér fannst
Wunsch ekki
tala neina
tæpitungu. En í bresku mynd-
inni eru rök með og á móti tilgát-
unni um verulega hlýnun jarðar
af mannavöldum vissulega ekki
vegin og metin, enda hentar sjón-
varp illa til slíks, heldur hiklaust
reynt að hrekja hana. Fræðileg
gagnrýni á þessa mynd er þó hjóm
eitt miðað við það, sem komið
hefur fram um heimildarmynd Als
Gores, Óþægilegan sannleik (In-
convenient Truth). „Þegar sann-
leikurinn missir stjórn á sér, verð-
ur hann að ýkjum.“
Í annarri athugasemd er því
hafnað, sem segir í bresku heim-
ildarmyndinni, að vatnsgufa sé
98% gróðurhúsalofttegunda. Þeir
Tómas og Jón Egill telja, að vatns-
gufa valdi um 50-60% gróðurhúsa-
áhrifa. Ég hafði töluna 98% úr
bók Björns Lomborgs, Hið sanna
ástand heimsins, en hann tók hana
úr verkum danskra og breskra vís-
indamanna. Í fjölmörgum ádeilum
á verk Lomborgs hefur þessi tala
ekki verið véfengd, svo að ég viti.
Hins vegar eru magn og áhrif sitt
hvað: Hugsanlega veldur vatns-
gufa ekki langmestum gróðurhúsa-
áhrifum, þótt hún sé langmestur
hluti gróðurhúsalofttegunda.
Þriðja athugasemdin er um
þessa fullyrðingu mína: „Þegar
lífverur anda frá sér eða rotna
og þegar eldfjöll gjósa, streym-
ir meiri koltvísýringur út í and-
rúmsloftið en vegna brennslu olíu
eða kola.“ Þeir Tómas og Jón Egill
segja á móti, að í eldgosum sé að-
eins losað um 1% af því, sem menn
losi. En þetta er engin leiðrétt-
ing á orðum mínum: Hvers vegna
minnast þeir Tómas og Jón Egill
ekki á áhrif öndunar frá lífverum
og rotnunar þeirra? Og bera þetta
saman við áhrif brennslu olíu eða
kola? Samkvæmt nýlegri skýrslu
Matvæla- og landbúnaðarstofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna, Löngum
skugga húsdýranna (Livestock´s
Long Shadow), má rekja 18% gróð-
urhúsaáhrifa til húsdýra, aðallega
kúa.
Fjórða athugasemdin er um
svokallaða sólvirknikenningu, en
samkvæmt henni má skýra breyt-
ingar á hitastigi á jörðu niðri með
virkni sólar á hverjum tíma. Þeir
Tómas og Jón Egill segja, að virkni
sólar hafi ekki aukist hin síðari ár,
þótt hlýnað hafi á jörðinni. Þetta
er ekki rétt. Virknin hefur sveifl-
ast upp og niður þetta tímabil.
En sólvirknikenningin er nokkru
flóknari, eins og sjá má í nýrri
bók eftir danska vísindamanninn
Henrik Svensmark og enska rit-
höfundinn Nigel Calder, Kælandi
stjörnur (Chilling Stars). Ég ætla
ekki að öskra mig hásan með eða
á móti einhverri einni tilgátu um
loftslagsbreytingar, enda væri það
fáránlegt. En ég hef iðulega séð,
hvernig reynt hefur verið að nota
vísindin eins og sleggju til að slá
niður andstæðinga frekar en kast-
ljós til að lýsa upp veruleikann.
Höfundur er prófessor í
stjórnmálafræði.
Í nafni vísindanna
Árið 1977 töluðu vísindamenn
um nýja ísöld. Þrjátíu árum
síðar vara þeir við nýju hita-
skeiði.
Samfylking-in hamast
við að klára alla
stefnumótun
áður en lands-
fundur henn-
ar hefst. Lands-
fundurinn virðist því bara eiga að
klappa en ekki ákveða neitt. Nýj-
asta dæmið um þessa viðleitni for-
ystunnar er heilt rit eftir Jón Sig-
urðsson fyrrverandi ráðherra um
efnahagsmál. Meginniðurstaða
ritsins virðist vera að Samfylking-
in stefni beinlínis að „harðri“ lend-
ingu með harkalegum samdrætti
í opinberum umsvifum og niður-
skurði í samneyslu, opinberum
framkvæmdum og – væntanlega
þá einnig óhjákvæmilega – í vel-
ferðarframlögum.
Í ritinu birtist misskilningur
varðandi lækkun virðisaukaskatts
á matvörum í mars sl. Ekki virðist
fylgt viðurkenndum upplýsingum
um verðlækkanir í smásöluversl-
unum. Ekki virðist heldur reynt
að meta hvernig lækkun virðis-
aukaskatts staðfestir árangur ríkis-
stjórnarinnar í hagstjórninni. Í
ritinu virðist gengið út frá því að
ríkisstjórnin hafi ýtt undir þenslu
á fasteignamarkaði og íbúðalána-
markaði. Þó liggur fyrir að það
voru viðskiptabankarnir sem hófu
innrás inn á fasteignalánamarkað-
inn með það yfirlýsta markmið að
brjóta Íbúðalánasjóð á bak aftur.
Almennar kannanir hafa staðfest
að almenningur þekkir og virðir
mikilvægi Íbúðalánasjóð. Að því
er virðist hefur Samfylkingin ekki
lengur áhuga á þessu.
Til samanburðar við svartsýnar
lýsingar í þessu riti Samfylking-
arinnar mætti benda á leiðara í
Fréttabréfi Samtaka atvinnulífs-
ins í þessari viku, en þar er bent á
margs konar takmarkanir í opin-
beru hagtalnaefni. Meðal annars
bendir Vilhjálmur Egilsson fram-
kvæmdastjóri SA og hagfræðingur
á að trúlega sé viðskiptahallinn of-
metinn tvöfalt í nýjustu hagtölum
Seðlabankans.
Í riti Samfylkingarinnar virð-
ist ekki tekið tillit til þess að ætl-
unin er að nýta afrakstur af sölu
Landssímans beinlínis í jöfnun-
arskyni fyrir hag ríkissjóðs og þá
hagsveiflu sem virðist framundan
– til að draga úr samdrætti. Lítið
tillit er tekið til þess að viðskipta-
hallinn – svo ofmetinn sem hann
kann að vera – er þegar tekinn að
minnka vegna efnahagsaðgerða
ríkisstjórnarinnar, og mun halda
áfram að minnka þegar dregur úr
stórframkvæmdunum fyrir aust-
an á þessu ári. Ennfremur virðist
það lítið metið að viðskiptahallinn
tengist að hluta til arðvænlegum
umsvifum og mun að því leytinu
standa undir sér. Á kynningar-
fundi Samfylkingarinnar um þetta
nýja rit var því haldið fram að kjör
lífeyrisþega og barnafjölskyldna
hefðu dregist aftur hér á landi síð-
ustu ár. En einmitt nú stendur yfir
eitthvert stærsta átak í eflingu vel-
ferðarkerfanna og í hækkunum
bótagreiðslna sem sögur fara af.
Og samanburðarathuganir sýna að
jöfnuður á Íslandi er meiri en tíðk-
ast í langflestum Evrópulöndum.
Landsfundarmenn Samfylking-
arinnar hafa nóg að lesa og læra
enda varla til þess ætlast að þeir
fari að móta stefnu úr því að for-
ystan er búin að birta stefnuna
fyrirfram.
Höfundur er alþingismaður.
Hvað á landsfundur-
inn að gera?
Polo-veisla10
0%
lá
n
No
ta
ði
r b
íla
r í
to
pp
sta
nd
i!
Bjóðum glæsilegt úrval Polo-bíla á frábærum kjörum
árgerð 2004 13.750 kr. á mánuði* verð 850.000 kr
árgerð 2003 11.150 kr. á mánuði* verð 690.000 kr.Volkswagen Polo
*
M
ið
að
v
ið
1
00
%
lá
n
fr
á
SP
F
já
rm
ög
nu
n
í 7
2
m
án
.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
9
5
9
Opið á Kletthálsi 11
mánudaga til föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16