Fréttablaðið - 13.04.2007, Síða 38
BLS. 6 | sirkus | 13. APRÍL 2007
É g trúði þessu varla þegar ég stóð þarna upp á sviðinu. Auðvitað stefndi ég að því að vinna en að
það skyldi gerast með þessum
yfirburðum er ótrúlegt. Ég var aldrei
sigurviss, ekki í einum einasta þætti. Ég
reyndi bara að gera mitt besta og það
var gaman að það féll íslensku þjóðinni
í geð,“ segir Jógvan og viðurkennir að
hann sé afar upp með sér að hafa
fengið slíka yfirburðakosningu sem
raun bar vitni í úrslitaþættinum en þar
fékk hann rétt rúmlega 70% atkvæða.
„Ég er afar stoltur og veit ekki alveg
hvernig ég á að segja takk fyrir við allt
fólkið sem kaus mig,“ segir hann.
Guð er ekki í kirkjunni
Það vakti nokkra athygli þegar
úrslitin í X-factor lágu fyrir að sá fyrsti
sem Jógvan þakkaði fyrir var ekki Einar
Bárðarson, þjálfari hans, heldur sjálfur
guð almáttugur. En er hann mjög
trúaður?
„Já, ég er það. Færeyingar eru mjög
trúuð þjóð. Ég er alinn upp á mjög
trúuðu heimili og ég held að ég hafi
aldrei þurft meira á trúnni að halda
heldur en þegar ég kom til Reykjavíkur.
Til að halda geðheilsunni í öllum þeim
látum sem eru hér. Fyrir mér er það
mikilvægt að vera ekki að tala út í loftið
heldur vera að tala til guðs. Ég hef
reyndar ekki verið duglegur við að fara
í kirkju en ég trúi ekki að guð sé í
kirkjunni heldur í hjartanu. Það er
alltaf gott að fræðast meira en ég hef
ekki verið duglegur við að sækja kirkju
hér á Íslandi. Ég gerði það hins vegar í
Færeyjum þegar ég bjó þar.“
Lærði níu ára á fiðlu
En hvenær skyldi Jógvan fyrst hafa
komist í kynni við tónlist?
„Ég kynntist tónlist fyrst þegar ég var
níu ára og byrjaði að læra á fiðlu. Ég er
var lítill feitur fiðluleikari,“ segir Jógvan
og hlær. „Allur bekkurinn minn byrjaði
að læra á fiðlu en ég var kannski sá eini
sem hélt áfram. Ég spilaði í níu ár á
fiðlu. Þegar ég var þrettán ára var ég í
Sinfóníuhljómsveit Færeyja og fannst
það hundleiðinlegt. Ég þoldi ekki
Mozart og Bach. Þetta var hins vegar
dýrmætur tími því klassísk tónlist er
besti grunnurinn sem hægt er að fá í
tónlist. Ég get næstum gert allt eftir
þetta. Ég get lesið nótur og spilað á
gítar þótt ég sé ekki besti gítarleikari í
heiminum. Ég er mjög góður í að halda
uppi stemningu í partíum sem er mjög
mikilvægt í Færeyjum þar sem það er
fátt annað hægt að gera en að skella sér
í partí á þessari litlu einangruðu eyju,”
segir Jógvan og á þar við Færeyjar, ekki
Ísland.
Jógvan var aðeins sextán ára þegar
hann varð frægur í Færeyjum. Hann
segist hafa verið uppgötvaður fyrir
tilviljun þegar hann spilaði lag fyrir
frænku sína. „Ég var að spila og syngja
lag, „Leaving on a Jetplane“, sem ég var
nýbúinn að læra, fyrir frænku mína
þegar ég var sextán ára. Það voru
einhverjir hljómsveitarkarlar sem
heyrðu í mér og sögðu: „Heyrðu, þetta
er flott. Ertu ekki til í að koma og
syngja með okkur?“ Ég gaf út plötu
með þeim með frumsömdum lögum og
þetta var alveg frábær reynsla. Tvö
þessara laga eru enn mjög vinsæl í
Færeyjum þótt það sé liðinn svona
langur tími. Þetta var góð byrjun. Við
spiluðum ótrúlega mikið á stuttum
tíma og ég skemmti mér alveg
konunglega,“ segir Jógvan. Fjórum
árum seinna sló hann aftur í gegn í
Færeyjum þegar hann söng inn á þrjár
feikivinsælar barnaplötur með
Íslandsvininum Brandi Enni.
Í förðunarnám til Íslands
Eftir að Jógvan lauk skyldunámi í
Klakksvík 16 ára tók við fjögurra ára
tímabil þar sem hann hafði ekki
hugmynd um hvað hann vildi gera.
Hann fór í verslunarskóla í eitt ár og dó
nærri úr leiðindum. Eftir það vann
hann sem garðyrkjumaður, í fisk-
vinnslu og sem barþjónn allt þar til að
hann fann köllun sína þegar hann var
tvítugur. Þá byrjaði hann nám í
hárgreiðslu í Þórshöfn og eftir það varð
ekki aftur snúið. „Þetta var æðislegt
strax frá byrjun,“ segir Jógvan sem var
eini strákurinn með tólf stelpum í bekk.
„Ég viðurkenni að það var skrýtið í
byrjun en síðan vandist það og var fínt.
Ég var síðan nýbúinn með skólann um
jólin 2004 þegar vinkona mín, sem
lærði í Danmörku, spurði mig hvort við
ættum ekki að læra meira. Ég var opinn
fyrir því og hún fór að tala um
förðunarnám. Ég hafði alltaf mikinn
áhuga á leikhúsförðun og hjálpaði
leikfélaginu í Klakksvík með förðun,
greiðslu og búninga þegar ég hafði tíma
frá náminu í Þórshöfn. Mig langaði til
að læra leikhúsförðun. Við ræddum
saman um mögulega staði til að læra á
og valið stóð á milli Svíþjóðar og
Íslands. Og Ísland var landið,“ segir
Jógvan um ástæður þess að hann
endaði á Íslandi snemma árs 2005.
Eftir að hafa farið í þriggja mánaða
nám hér á landi útskrifaðist Jógvan
sem förðunarfræðingur og hann segir
þann tíma hafa verið ótrúlega
skemmtilegan. „Ég bjó á færeyska
sjómannaheimilinu og það var
eiginlega stanslaus skemmtun allan
tímann. Vá, hvað það var gaman. Þetta
var eins konar heimavistartilfinning,“
segir Jógvan og brosir.
Eftir að förðunarnáminu lauk
rambaði Jógvan inn á stofuna Unique í
Grafarvogi þar sem hann bað um að fá
að vinna frítt sem hárgreiðslumaður.
Það var auðsótt mál og var hann þar í
nokkra mánuði. Þá bauðst honum
vinna á Tony & Guy sem hann þáði
með þökkum en eftir tæpt ár á þeirri
stofu var hann kominn aftur á Unique
þar sem hann leigði stól. Honum var
svo fljótlega boðið að gerast meðeig-
andi í stofunni sem opnaði á nýjum
stað í janúar í Borgartúni. „Við erum
þrír eigendur, ég, Sæunn Ósk Unn-
steinsdóttir og Jóhanna María
Gunnarsdóttir. Svona er sagan mín á
Íslandi,“ segir Jógvan.
Enginn Michael Jackson
Það er hægt að þakka systrunum
Rakel og Hildi Magnúsdætrum úr
Hveragerði, sem skipuðu Hara í X-
factor, að íslenska þjóðin fékk að
kynnast söngvaranum Jógvan Hansen.
Margir Íslendingar þekktu fyrir
hárgreiðslumanninn Jógvan en þær
systur skráðu Jógvan til leiks í X-factor
að honum forspurðum og allir vita nú
hvernig það ævintýri endaði. Jógvan
kynntist þeim systrum í gegnum
fyrrverandi kærustu sína sem er einnig
úr Hveragerði. „Það var auðvitað
frábært að kynnast stúlkum eins og
Rakel og Hildi. Þær eru yndislegar
manneskjur og það er ekki hægt annað
en að vera í góðu skapi í kringum þær.
Það eru í raun og veru forréttindi að
hafa fengið að kynnast þeim,“ segir
Jógvan um Hara-systurnar hressu sem
skráðu hann í X-factor og töpuðu svo
fyrir honum í úrslitum síðastliðið
föstudagskvöld. Jógvan ætlaði sér allan
tímann að sigra í keppninni og segir
þáttinn frábæran stökkpall fyrir þá sem
ná lengst í honum.
„X-factor er frábær stökkpallur. Þetta
er snilldarþáttur því það var svo mikið
af góðu fólki í kringum mann. Ég var
eiginlega sá eini sem gat klúðrað þessu.
Kristjana [Stefánsdóttir] er snillingur
bæði sem söngkona og kennari, Yesmin
Olsson er með frábæran bakgrunn til
að kenna framkomu og Einar, sem er
umboðsmaður Íslands. Það besta við
þetta fólk var að það talaði aldrei niður
til mín. Kristjana kom aldrei og sagði
við mig: „Ég skal kenna þér að syngja.“
Hún sagði mér bara að vinna með það
sem ég kunni. Það var snilldin við hana.
Ég var með henni á hverjum degi og
hún kenndi mér alltaf eitthvað nýtt en
ekki þannig að hún þröngvaði því upp á
mig heldur sem eðlilega þróun á
söngrödd minni.
Það sama gilti um Yesmin. Hún sá
strax að ég er enginn Michael Jackson
og hún reyndi ekki að breyta mér í einn
slíkan. Hún kenndi mér hins vegar
einfaldar hreyfingar og líkamsstöður
sem hjálpuðu mér mikið á sviðinu. Í
Færeyjum var ég alltaf ömurlegur á
sviði. Ég var svo lélegur að það var
talað um það hversu ömurlegur ég
væri. Yesmin breytti því. Hún fékk mig
til að gera ótrúlega hluti og þegar ég
horfi aftur á þættina þá trúi ég ekki að
þetta sé ég. Þrátt fyrir að ég hafi verið
vanur að standa á sviði í Færeyjum var
ég alls ekki vanur að standa á sviði hér
á Íslandi fyrir framan tíu til fimmtán
myndavélar, talandi annað tungumál
og á flottasta sviði sem ég hef séð. Ég
var algjör nýgræðingur eins og allir
hinir. Ég var svo stressaður að ég var að
skíta á mig í hvert einasta skipti sem ég
fór á sviðið. Það vandist eitthvað og ég
lærði kannski að hafa betri stjórn á því
en vá, hvað ég var alltaf stressaður,“
segir Jógvan.
Stressið og álagið hefur líklega gert
það að verkum að hann léttist um hátt í
tíu kíló meðan á X-factor stóð. Það var
eftir því tekið í úrslitaþætti X-factors
síðastliðið föstudagskvöld að Jógvan
var pínu þybbinn í æsku og hafði líka
grennst töluvert frá því að áheyrnar-
prufurnar fóru fram í september á
síðasta ári. „Ég er búinn að grennast
mikið og það er mest vegna þess að ég
hafði einfaldlega ekki tíma til að borða.
Álagið er búið að vera mikið undan-
farna mánuði og eitthvað varð að láta
undan. Ég vann eins mikið og ég gat á
stofunni og síðan tóku við æfingar fram
undir miðnætti á hverjum degi,“ segir
Jógvan og þvertekur fyrir það að hann
hafi verið feitur þegar hann mætti í
áheyrnarprufurnar. „Ég var meira
svona rómantískt búttaður,“ segir hann
og hlær.
Færeyski folinn verður til
Það er óhætt að segja að framkoma
og frammistaða Jógvans í Smáralind-
inni hafi brætt mörg meyjarhjörtun og
ekki leið langur tími þar til hann var
orðinn að hálfgerðu kyntákni. Má
mikið vera ef hann verður ekki ofarlega
í árlegri könnun á kynþokkafyllsta
Jógvan Hansen
er 28 ára gamall
Færeyingur sem
fæddur er í
Klakksvík. Hann
kann að spila á
fiðlu. Hann kann
að klippa hár og
farða konur.
Hann kann líka
að syngja og það
gerði hann að
fyrsta X-factor-
sigurvegara
Íslands síðastliðið
föstudagskvöld.
Hann er sætur –
og stelpur! Hann
er á lausu.
VEIT EKKI HVERNIG
ÉG Á AÐ SEGJA TAKK
„ÚTLIT MITT SKIPTIR ENGU MÁLI OG ÞAÐ HVORT KONUR
HAFA ÁHUGA Á MÉR ER ALGJÖRT AUKAATRIÐI SEM ÉG
ÆTLA EKKI AÐ RÆÐA.“
KYNTÁKN Það
er óhætt að
segja að Jógvan
hafi hitt í mark
hjá íslensku
kvenþjóðinni
með þátttöku
sinni í X-factor.
SIRKUSMYND/VALLI
FRAMHALD Á NÆSTU OPNU >>