Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 42
fréttablaðið tækni og afþreying 13. APRÍL 2007 FÖSTUDAGUR2
Samkvæmisleikir eru ekki alveg
málið. Séu þeir á tölvutæku formi
horfir málið öðruvísi við enda fátt
skemmtilegra en að gera sig að
fífli með nútímatækni. Hérna eru
fimm leikir sem hægt er að skella
í tölvuna ef partíið er dauft og viti
menn, verði stuð!
1. Guitar Hero I & II á PS2. Ein-
hver almesta snilld sem gefin
hefur verið út. PA2, plastgítar,
rokk og ról, vein og gól. Keppt er
um titilinn besti gítarleikarinn
með þar til gerðum gítar og svo
má alltaf gleyma því hvort nóturn-
ar eru réttar og reyna bara að líta
vel út (sem er jafn erfitt og það
hljómar með lítinn plastgítar).
2. Singstar á PS2. Æðið sem
reyndar er búið en hafir þú ekki
verið partur af því veistu ekki
af hverju þú misstir. Að keppa
í söng hætti skyndilega að vera
einungis fyrir Eirík Hauksson og
aðra Evróvisjónfara og „battlið“
var fært heim í stofu. Í rauninni
er leikurinn bara heimakarókí, og
eins og það er hallærislegt þá er
alltaf eitthvað við það.
3. FIFA Soccer eða PES á allar
gerðir. Þessir leikur, rétt eins og
flestir knattspyrnuleikir, henta
betur í pulsupartíið. Fullt af fjar-
stýringum, slatti af bjór, góður
leikur og stórt sjónvarp eru
trygging fyrir öruggri skemmtun.
4. Buzz á PS2. Tónlistarspurn-
ingakeppni er ágætis skemmt-
un en kannski ekki í fjörugustu
teitunum. Stendur samt fyrir
sínu.
5. Dance Dance Revolution:
Hottest Party á Ninteno Wii.
Ein allra mesta partísnilld-
in. Tengdu þar til gerða dans-
mottu (sem sumir kunna að eiga
eftir dansdagana á Gamecube)
og æfðu fótavinnuna á meðan
hendurnar hreyfast í takt við
Wii fjarstýringuna. Nú loks-
ins fá þeir sem líta út eins og
asnar á dansgólfinu tækifæri til
að líta út eins og asnar en samt
skemmta sér.
Bestu partíleikirnir
Guitar Hero er einn allra besti partíleikurinn. Svo er Rock
band-leikurinn á leiðinni þar sem hægt verður að spila á ekki
bara gítar heldur líka trommur og bassa auk þess sem míkra-
fónn fylgir.
Singstar-æðið er búið en enn má hafa vel gaman
af leiknum.
Buzz er nokkuð öflugur.
Fótboltadraumurinn getur orðið að veruleika heima í stofu.
Dance Dance Revolution er heimadiskó sem svíkur engan.
1
2
3
4
5
Plötufyrirtækið EMI hefur
fjarlægt afritunarvörn á
tónlist á netinu. Búist er við
að önnur plötufyrirtæki fylgi
í kjölfarið.
Afritunavörn á tónlist á netinu
hefur lengi verið hitamál í tón-
listar- og tölvubransanum. Talið
er að ólögleg dreifing og fjöl-
földun stuðli að milljóna tapi
ár hvert. Forstjóri tölvurisans
Apple, Steve Jobs, segir hins
vegar afritunarvörnina hindra
þróun á löglegri dreifingu.
Jobs hefur lengi hvatt plötu-
fyrirtæki til að afnema afritun-
arvörn og í byrjun maí verður
plötufyrirtækið EMI það fyrsta
til að stíga það skref í samvinnu
við Apple.
EMI hefur lengi barist í bökk-
um, einkum eftir misheppnaða
tilraun með afritunarvörn sem
reytti marga neytendur til reiði.
Margir vilja því meina að fyrir-
tækið sé að reyna að bæta fyrir
þessi mistök, ásamt því að reyna
að öðlast forskot á tónlistarmark-
aðnum á netinu.
Með fyrsta skrefi EMI er þó
sennilegt að hin fyrirtækin verði
að fylgja í kjölfarið. Enda hafa
plötufyrirtækin búið sig undir
þetta skref og þó að Steve Jobs
sé sýnilegastur í baráttunni eru
það plötufyrirtækin sem stjórna
ferðinni.
„Þetta er tvímælalaust skref
í rétta átt. Fólki er treystandi í
flestum tilvikum og þetta snýst
um að treysta neytandanum og
svara óskum hans,“ segir Stein-
grímur Árnason hjá Apple-um-
boðinu á Íslandi.
Afnám afritunarvarna á þó
ekki aðeins við um tónlistarversl-
unina iTunes frá Apple því búist
er við að verslanir bæði hérlend-
is og erlendis muni fylgja í kjöl-
farið.
Microsoft sakaði Jobs á sínum
tíma um ábyrgðarleysi og ein-
feldningshátt en hefur nú skipt
um skoðun. Microsoft mun nú
fylgja fordæmi Apple og bjóða
tónlist á netsvæði Zune-spilar-
ans, sem er svar Microsoft við
iPod. Samhliða breytingunum
mun verðið einnig hækka og þeir
sem þegar hafa keypt tónlist
geta keypt afnámsrétt.
Íslendingar geta enn ekki
verslað við iTunes og segir Stein-
grímur ekki liggja ljóst fyrir enn
hvort af því verði. „Ísland er lít-
ill markaður en við vonumst að
sjálfsögðu til þess að geta boðið
Íslendingum upp á þjónustu
úr iTunes í framtíðinni,“ segir
Steingrímur. rh@frettabladid.is
EMI afnemur
afritunarvarnir
Steve Jobs hefur loksins náð eyrum tónlistarbransans. Frá byrjun maí mun EMI
afnema afritunarvörn á tónlist á netinu.