Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 13.04.2007, Blaðsíða 68
Kl. 12.00 Sýning á ljósmyndaverkum fjórtán alþjóðlegra listamanna stendur yfir í Listasafni Akureyar. Sýningarstjóri er Isabelle de Montfumat og þátt- takendur flestir franskir eða búsett- ir þar um slóðir og er sýningin liður í frönsku menningarkynningunni Pourquoi pas? Íslenska kvikmynda- og sjón- varpsakademían stendur fyrir fundum í hádeginu á föstudögum næstu vikurnar þar sem fjallað verður um kvikmyndir og sjón- varp, stöðu þeirra og framtíð hér á landi. Fundirnir verða haldnir hálfsmánaðarlega í fyrirlestra- sal Þjóðminjasafns Íslands og verður sá fyrsti í dag í hádeginu og hefst kl. 12. Það verður Baltasar Kormákur sem ríður á vaðið og gerir að um- talsefni hvernig hann snaraði hinni kunnu og víðlesnu skáld- sögu Arnalds Indriðasonar, Mýr- inni, yfir á tjald. Eftir hálfan mánuð ætlar svo Anna María Karlsdóttir að velta upp svörum við spurningunni: Hverjir sjá íslenskar kvikmynd- ir? , en hún starfar sem framleið- andi. Í maí verður svo Björn Björns- son með fyrirlestur um krimm- ann sinn, Kalda slóð en 25. maí mun nýr dagskrárstjóri sjón- varps gera grein fyrir dagskrár- stefnu RUV ohf. Fundirnir hefj- ast stundvíslega kl. 12 á því að framsögumenn flytja hálftíma erindi en að því loknu gefst tæki- færi til fyrirspurna og umræðna en fundunum lýkur kl 13. Fund- irnir eru öllum opnir og aðgang- ur er ókeypis. Fundað um bíó Stórsveitir landsins í maraþoni Hið sígilda ævintýri um konungs- dótturina ungu, Mjallhvíti, sem hrekst undan illri stjúpu inn í skóg- inn og lendir þar í vist hjá dvergun- um sjö hefur haldið lesendum hug- föngnum frá því hún kom út á ís- lensku. Ævintýrið var túlkað á sviði Þjóðleikhússins á sjöunda áratug síðustu aldar með Bryndísi Schram í titilhlutverkinu og löngu kunn er mynd framleiðandans Walts Disney eftir ævintýrinu. Í dag hefur brúðu- leikhúsið Tíu fingur sýningar í Kúl- unni, smæsta sýningarsal Þjóðleik- hússins, á sögunni góðkunnu. Það er leikbrúðuleikkonan Helga Arn- alds sem stendur á bak við tiltækið. Hér er á ferðinni sagan sígilda um Mjallhvíti og dvergana sjö eins og við þekkjum hana flest en í sýning- unni leiðir sögukonan, Helga Arn- alds börnin í gegnum hana á nokk- uð óvenjulegan hátt með töfra- brögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng. Helga Arnalds hlaut menntun sína í Instituto del Teatro í Barce- lona og í leikhúsháskólanum DAMU í Prag. Tíu fingur er eins manns ferðaleikhús sem var stofnað árið 1994 af Helgu Arnalds og hefur ferðast milli nánast allra skóla og leikskóla í landinu auk leikferða erlendis. Þá hefur Helga um árin fengið til samstarfs marga lands- þekkta listamenn á sviði myndlist- ar, leiklistar og tónlistar. Allar sýn- ingar leikhússins eru mjög mynd- rænar og eru byggðar upp með brúðum, grímum og skuggaleik- húsi. Þessi sýning er skreytt ljós- myndum eftir Áslaugu Snorradótt- ur. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son. Sýningin um Mjallhvít kom upp fyrst 2004 en þá sagði Silja Aðal- steinsdóttir um frammistöðu Helgu í DV: „Best af öllu er að heyra hana flytja textann sinn fyrir börn. Þar fer ekkert orð forgörðum og innlif- un hennar og ákafi smitar áheyr- endur, hvort sem þeir eru þriggja ára, þrítugir eða tvisvar sinnum það, svo að þeir sitja hugfangnir og fylgjast með.“ Og nú geta foreldra sótt í þann brunn með ung börn sín næstu helgar í Kúluna. Mjallhvít komin í Kúluna Vonnegut allur Bandaríska skáldið Kurt Vonnegut er látinn á áttugasta og fimmta aldursári. Hann lést á miðvikudag af völdum meiðsla sem hann hlaut á höfði eftir fall á heimili sínu á Manhattan í New York. Eftirmæli hans í banda- rískum blöðum eru mjög á einn veg: ljúfur söknuður og þökk, einkum frá þeim sem nutu verka hans, deildu með honum grárri gamansemi og kosmískri sýn á veröldina. Vonnegut var fæddur í Indianapolis og stundaði nám í efnafræði við Cornell-háskóla, sem kann að skýra að hann leit veröldina ólíkum augum öðrum mönnum. Hann var kornung- ur þegar hann var kallaður til herþjónustu og barðist – og hélt lífi við orrustuna frægu í Ardennafjöllum sem kölluð er „The Battle of the Bulge“. Þar féll hann í hendur óvininum og var fangi í landi forfeðra sinna. Hann var í Dresden þegar borg- in hvarf í eldsprengjuhafið. Eng- inn þeirra sem sluppu lifandi frá Dresden voru samir eftir og það tók Vonnegut alla ævi að ná áttum á ný. Hann sinnti ýmsum störfum eftir stríð en tók þá til við skrift- ir og samdi með öðrum störfum röð skáldsagna sem voru á jaðri þess að vera vísindaskáldskapur og fantasíur. Hann skrifaði per- sónulegan stíl, skóp aragrúa af eftirminnilegum persónum og lét engin bönd halda sér í skáld- heimum. Hann eignaðist fljótt ákafa aðdáendur í hópi unn- enda vísindaskáldskapar en upp úr 1970 var viðurkenning hans orðin almenn og nýrra verka hans beðið með eftirvæntingu. Hann var mannvinur, van- trúaður á öll kerfi og yfirvöld þeirra, andstöðumaður sem kím- inn dró flest í efa. Hann var snjall í að teygja mál og merkingu og samdi óafvitandi spakyrði og var því vinsæll fyrirlesari. Vonnegut bjó jöfnum hönd- um á Manhattan og í Hamptons, hann var tvíkvæntur og átti fjögur börn en ól upp þrjú börn systur sinnar. Nú hrannast upp lofsyrð- in um hann en því hefði hann mætt með bros á vör og spurn í augum. Tvær sögur hans eru til í þýð- ingum, en flest allar bækur hans, skáldsögur, umræðurit, minn- ingabrot og smásögur má finna á flestum bókasöfnum. Þær eru skemmtileg og holl lesning. MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Með miklum húmor og skemmtilegu innsæi ... ...tekst þessari sýningu að hlæja bæði að þeim sem eru með og þeim sem mótmæla stóriðjuvæðingu Íslands... notið tækifærið segi ég. Martin Regal Mbl. Má vel ráðleggja þeim sérstaklega að sjá þessa sýningu sem ekki hafa lesið bókina, þeim mun verða dillað. Umgerðin er mögnuð og tónlistin áhrifarík. Silja Aðalsteinsdóttir TMM. Sýningin er allt í senn stórskemmtileg, háalvarleg og hárbeitt. Ef þú ætlar bara einu sinni í leikhús á þessu ári sjáðu þá Þröstur Sverrisson Ómar Ragnarsson … býsna áhrifamikil… á köflum dásam -leg… einhver heillandi blær yfir þessari leikmynd. Smellpassar inní tíðarandann. Þorgerður E. Sigurðardóttir Víðsjá Draumalandið – Tær snilld. Sara Dögg Jónsdóttir Strandgata 50, Hafnarfirði. Miðasala í síma 555 2222 og á www.midi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.