Fréttablaðið - 13.04.2007, Page 72

Fréttablaðið - 13.04.2007, Page 72
Sænska ofurpopptríóið Peter Bjorn and John treður upp á Nasa í kvöld. Steinþór Helgi Arnsteinsson ræddi við hinn síðastnefnda, trommarann John Eriksson, um heimsóknina. Það lá beinast við að spyrja John hvort hann væri ósáttur með að vera nefndur síðastur í hljóm- sveitarnafninu (sem á að skrifa án kommu milli Peters og Bjorns). „Nei, alls ekki. Nafnið hljóm- ar langbest svona,“ svarar John hlæjandi. Í kjölfarið kemur einnig í ljós að piltarnir kjósa mun frek- ar að láta bera nafnið á sveitinni fram með enskum hreim held- ur en sænskum. John sagði það meira að segja fara örlítið í taug- arnar á sér þegar nafnið er borið fram á sænsku. Hljómsveitin var stofnuð í Stokkhólmi árið 1999 en sjálf- ir koma meðlimir sveitarinnar að mestu frá norðurhluta Svíþjóð- ar. „Við hljómuðum líkt og skítur í byrjun en núna held ég að okkur hafi tekist að finna okkar eigin hljóm,“ en þurfti heilar þrjár plöt- ur til þess? „Já, ég held það. Mér finnst síðasta plata okkar [Writer‘s Block sem kom út í fyrra] hljóma virkilega vel. Þrátt fyrir að hún sé mjög fjölbreytt og ýmsum stílum blandað saman þá held ég að allir geti heyrt að hér sé eina og sama hljómasveitin á ferð.“ Eru það orð að sönnu. Lagið sem skaut Peter Bjorn and John upp á stjörnuhimininn var án efa slagarinn Young Folks. Tríóið virtist greinilega mjög sátt með lagið, jafnvel áður en það kom út, því upphafsstef plötunnar er Young Folks leikið á píanó. „Við vissum kannski ekki að það yrði svona vinsælt. Áður en platan kom út, þá spiluðum við lagið á diskó- tekum og þá var fólk strax byrj- að að spyrja okkur með hverjum þetta lag væri eiginlega. Við erum allavega glaðir með að eiga lag sem mörgum líkar við og ef því líkar vel við meira af plötunni þá er slíkt náttúrulega frábært. Þetta lag hefur gert okkur kleift að spila á stöðum eins og Íslandi, sem er að sjálfsögðu frábært.“ Næsta plata hljómsveitarinn- ar mun alls ekki litast af Young Folks, heldur gerir John ráð fyrir að næsta plata verði öll án söngs. „Okkur langar bara að gera það sem okkur dettur í hug, við stefn- um ekkert að því að verða næsta U2 eða neitt þannig. Ég meina, lögin sem við höfum verið með í vinnslu að undanförnu þarfnast líklegast ekki söngs. Björn gerði djassplötu fyrir nokkrum árum síðan, sem ég spilaði reyndar líka á, og ég held að þar hafi hugmynd- in kviknað. Ég held samt að við eigum pottþétt eftir að gera aðra plötu með hefðbundnum popplög- um mjög fljótlega.“ Hljómsveitin hlakkar mikið til að koma til landsins, venju sam- kvæmt. Piltarnir þrír mæta hing- að án aukahljóðfæraleikara en John segir að það komi ekki í veg fyrir að þeir muni halda þrusu tónleika. {Ég notast sem dæmi við ásláttarsamplerplatta. Ég er samt hrifnastur af því þegar hljómsveitir hljóma öðruvísi á tónleikum en á plötum. Við erum líka mikið fyrir það að jafnvel lengja lögin og setja þau í nýjan búning, við leikum af fingrum fram semsagt,“ segir John að lokum með sínum skemmtilega sænska hreim. Ég er einn af þeim sem geta auðveld- lega gleymt sér í plötubúðum. Ef sá tími sem ég hef eytt í plötubúðum um ævina væri reiknaður saman þá held ég að útkoman yrði ansi mögn- uð. Plötubúðin hefur heldur átt undir högg að sækja undanfarið, ekki bara vegna niðurhals og iPod-væðingar heldur líka vegna sölu á geisladisk- um á netinu. Nú eru sumar útgáfur eingöngu seldar á netinu, t.d. afurð- ir Hip-O undirmerkis Universal, en sú útgáfa sérhæfir sig í veglegum endurútgáfum. En þó það sé gaman að vafra um plötubúðir á netinu þá jafnast það ekki á við það að gramsa í alvöru þrívíðum plötubúðum. Hér á Íslandi eru nokkrar fínar plötubúðir. Skífan hefur lengi verið með mesta úrvalið þó að það hafi reyndar farið minnkandi undanfar- in misseri. 12 Tónar og Smekkleysubúðin við Klapparstíg bjóða báðar upp á ágætt úrval af íslenskri og erlendri tónlist þó að það sé mis- jafnt hvað er til þar, enda verið að taka inn plötur í litlu upplagi og það sem klárast kemur kannski ekki strax aftur eða jafnvel aldrei. Nýlega uppgötvaði ég svo forvitnilega plötubúð í Skipholti, Rafgrein, en þar er töluvert til af efni sem maður sér ekki annars staðar, bæði nýtt og endurútgáfur, mikið af djassi, soul, heimstónlist og gömlu rokki. En þó að það sé gaman að grúska í plötubúðunum hér heima þá jafnast það auðvitað ekki á við gnægtaborð stórborganna. Í London er mikið af flottum búðum af öllum stærðum og gerðum. Þar á meðal eru Rough Trade-búðirnar tvær við Talbot Road og Neals Yard. Rough Trade hefur verið Mekka indie-tónlistarinnar allt frá því að Geoff Travis opn- aði fyrstu búðina 1976. Það er þess vegna mikið gleðiefni að á þessum tímum samdráttar og ráðaleysis (Tower-keðjan hrundi t.d. eins og hún lagði sig á síðasta ári) hefur Rough Trade ákveðið að opna 500 fermetra stórverslun á Brick Lane í austurhluta London. Að baki ákvörðuninni liggja veigamiklar markaðsrannsóknir. Sókn er besta vörnin. Stefnt er að opnun fyrir maílok þannig að nú er bara að panta sér far … Rough Trade opnar stórverslun „Something Wrong með Bang Gang er komið í sextugasta og níunda sæti á CMJ listan- um, strax í annarri viku,“ segir Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson, framkvæmda- stjóri From Nowhere Records sem gefur plötuna út í Bandaríkjunum. „Þetta er listi sem er unninn úr spil- unarlistum um 450 háskólaútvarps- stöðva um öll Bandaríkin þannig að hann er mjög marktækur.“ Þess má geta að útvarpsstöðv- ar úti um allan heim, jafnt jaðarstöðvar sem þær sem eru meira á miðjunni, horfa til þessa lista þegar verið er að velja nýja tón- list í spilun. Þetta verður því að teljast góður ár- angur og ekki oft sem ís- lenskar hljómsveitir ná að komast inn á þennan lista, „Platan kom út í Bandaríkjunum í síðustu viku,“ heldur Sigurður Pálmi áfram. „Við gerðum samning við dreif- ingarfyrirtæki sem heitir Ryko sem er dótturfyrirtæki Warn- er Group þannig að henni verð- ur dreift um öll Bandaríkin, í um fimmtán þúsund búðir.“ Something Wrong kom út á Íslandi og á meginlandi Evrópu árið 2004 þannig að marga er eflaust farið að lengja eftir nýrri plötu frá hljómsveitinni. Að- spurður segist Barði vera á fullu að vinna að nýrri plötu og stefnt er á að hún komi út síðar á þessu ári. Barði vinsæll vestra

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.