Fréttablaðið - 13.04.2007, Qupperneq 88
Að sumu leyti er aðdragandi kosninga ánægjulegur tími.
Yfirleitt get ég haft af því nokkuð
gaman að horfa upp á stjórnmála-
menn smyrja vitsmunum sínum og
sjálfsvirðingu ofan á brauð og éta
frammi fyrir alþjóð. Að reyna að
halda andlitinu með frosna bros-
grettu a la fótósjopperaður Björn
Bjarnason, eins og það viti ekki
allir að það er ekkert gott að borða
svona mikið af smjöri í einu.
er kannski óhjákvæmilegt
þetta gólftuskuelement sem virð-
ist heltaka stjórnmálalíf á kosn-
ingavori, þegar fara að birtast
myndir af pólitíkusum með börn-
unum sínum (sem þarf jú yfirleitt
ekki að fótósjoppa) og þeir drekka
glaðir samsull af sinnepi, lýsi og
ammoníaki í beinni útsendingu til
að ná til unga fólksins. Fólk væri
jú ekki að þessu ef það vildi ekki
láta kjósa sig.
sem er öllu ömurlegra er
kapphlaupið um Sannleikann, sem
virðist stundum vera meginstoðin
í málefnavinnu stjórnmálaflokka
fyrir kosningar. Þá keppast menn
um að hrifsa til sín vænleg mál-
efni og stinga þeim í eigin vasa
eins og börn sem rífast um sæl-
gæti. Ég á´etta. Rétt eins og hjá
börnunum finnst þeim meira til
málefnisins koma eftir því sem
fleiri langar í það.
er það sem
flokkarnir keppast nú af mestum
þrótti við að smyrja á sitt eigið
brauð. Við erum grænir í gegn.
Nehei, þið eruð bara í grænni
sauðargæru. Við höfum alltaf haft
grænt merki. Það er víst hægt að
vera hægri grænn! Eini flokkur-
inn sem er alveg saklaus af kapp-
hlaupinu um græna sannleikann
er Frjálslyndi flokkurinn, öðru
nafni Hvítt afl, sem er lítið hrifinn
af litrófinu almennt.
þessu fagurgræna fjaðrafoki
er umhverfisvernd hætt að vera
málefni sem hægt er að ræða.
Það byrjar alltaf einhver að æpa,
og bregða upp slædsmyndum
af jökulbreiðum með undirleik
strengjasveitar, eða spá dómsdegi
og draugabæjum í öllum víkum og
fjörðum. Þetta er Sannleikurinn,
versogúð – og við eigum hann.
það er stórhættulegt að eigna
sér Sannleikann, af því að honum
fylgir ákveðin helgi sem enginn
stjórnmálaflokkur í lýðræðisríki
getur haft. Lýðræðið virkar ekki
þannig. Lýðræðið gengur út á að
það sé enginn Sannleikur heldur
margar hliðar á hverju máli. Það
er kannski hvorki spennandi né
skemmtilegt – en þetta er nú bara
það skásta sem við höfum.
Kapphlaupið um
Sannleikann
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
www.kringlan.is / upplýsingasími 588 7788 / skrifstofa 568 9200
Mán. til mið.
10.00–18.30
Fimmtudagur
10.00–21.00
Föstudagur
10.00–19.00
Laugardagur
10.00–18.00
Sunnudagur
13.00–17.00
Nú eru verslanir Kringlunnar fullar af nýjum og
spennandi vörum. Komdu og skoðaðu allt það
flottasta og ferskasta í vor- og sumartískunni.
Vor og
sumar