Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 88

Fréttablaðið - 13.04.2007, Side 88
Að sumu leyti er aðdragandi kosninga ánægjulegur tími. Yfirleitt get ég haft af því nokkuð gaman að horfa upp á stjórnmála- menn smyrja vitsmunum sínum og sjálfsvirðingu ofan á brauð og éta frammi fyrir alþjóð. Að reyna að halda andlitinu með frosna bros- grettu a la fótósjopperaður Björn Bjarnason, eins og það viti ekki allir að það er ekkert gott að borða svona mikið af smjöri í einu. er kannski óhjákvæmilegt þetta gólftuskuelement sem virð- ist heltaka stjórnmálalíf á kosn- ingavori, þegar fara að birtast myndir af pólitíkusum með börn- unum sínum (sem þarf jú yfirleitt ekki að fótósjoppa) og þeir drekka glaðir samsull af sinnepi, lýsi og ammoníaki í beinni útsendingu til að ná til unga fólksins. Fólk væri jú ekki að þessu ef það vildi ekki láta kjósa sig. sem er öllu ömurlegra er kapphlaupið um Sannleikann, sem virðist stundum vera meginstoðin í málefnavinnu stjórnmálaflokka fyrir kosningar. Þá keppast menn um að hrifsa til sín vænleg mál- efni og stinga þeim í eigin vasa eins og börn sem rífast um sæl- gæti. Ég á´etta. Rétt eins og hjá börnunum finnst þeim meira til málefnisins koma eftir því sem fleiri langar í það. er það sem flokkarnir keppast nú af mestum þrótti við að smyrja á sitt eigið brauð. Við erum grænir í gegn. Nehei, þið eruð bara í grænni sauðargæru. Við höfum alltaf haft grænt merki. Það er víst hægt að vera hægri grænn! Eini flokkur- inn sem er alveg saklaus af kapp- hlaupinu um græna sannleikann er Frjálslyndi flokkurinn, öðru nafni Hvítt afl, sem er lítið hrifinn af litrófinu almennt. þessu fagurgræna fjaðrafoki er umhverfisvernd hætt að vera málefni sem hægt er að ræða. Það byrjar alltaf einhver að æpa, og bregða upp slædsmyndum af jökulbreiðum með undirleik strengjasveitar, eða spá dómsdegi og draugabæjum í öllum víkum og fjörðum. Þetta er Sannleikurinn, versogúð – og við eigum hann. það er stórhættulegt að eigna sér Sannleikann, af því að honum fylgir ákveðin helgi sem enginn stjórnmálaflokkur í lýðræðisríki getur haft. Lýðræðið virkar ekki þannig. Lýðræðið gengur út á að það sé enginn Sannleikur heldur margar hliðar á hverju máli. Það er kannski hvorki spennandi né skemmtilegt – en þetta er nú bara það skásta sem við höfum. Kapphlaupið um Sannleikann F í t o n / S Í A www.kringlan.is / upplýsingasími 588 7788 / skrifstofa 568 9200 Mán. til mið. 10.00–18.30 Fimmtudagur 10.00–21.00 Föstudagur 10.00–19.00 Laugardagur 10.00–18.00 Sunnudagur 13.00–17.00 Nú eru verslanir Kringlunnar fullar af nýjum og spennandi vörum. Komdu og skoðaðu allt það flottasta og ferskasta í vor- og sumartískunni. Vor og sumar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.