Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 4
Byrjendanámskeið
Vinsælt námskeið ætlað fólki á öllum aldri sem hefur
enga tölvukunnáttu. Á þessu námskeiði er allt tekið
fyrir sem byrjandinn þarf til að komast vel af stað
í notkun tölvu.
Aðalmarkmið námskeiðsins er að gera þátt-
takendur færa um að nota tölvuna sjálfstætt
m.a. til að skrifa texta, læri að nota internetið
og að meðhöndla tölvupóst.
Kennt er mánudaga og miðviku-
daga og er hægt að velja um
morgun- eða kvöldnámskeið.
Kennsla hefst 23. apríl og lýkur 16. maí.
Lengd 42 std. Verð kr. 32.900,-
Kennslubók innifalin.
FAXAFEN 10
108 REYKJAVÍK
GLERÁRGATA 36
600 AKUREYRI
WWW.TSK.IS
SKOLI@TSK.IS
SÍMI: 544 2210
Gífurleg eyðilegging varð í miðbæ
Reykjavíkur í gær þegar húsin að
Lækjargötu 2 og Austurstræti 22
urðu eldi að bráð. Allt tiltækt lið
lögreglu og slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins barðist við eldinn í
allan gærdag. Engin slys urðu á
fólki þegar eldurinn braust út eða í
aðgerðum á staðnum. Talið er að
eldsupptök hafi verið í söluturni
sem stendur á milli húsanna sem
eru tvö af þeim elstu og sögufræg-
ustu í Reykjavík. Ljóst er að mikið
menningarsögulegt tjón hefur
orðið. Húsið við Lækjargötu 2 er
stórskemmt og húsið við Austur-
stræti 22 er gjörónýtt.
Tilkynnt var um eldinn laust
fyrir klukkan tvö í gær og var allt
tiltækt lið lögreglu og slökkviliðs á
höfuðborgarsvæðinu þegar sent á
staðinn. Voru um 100 manns, bæði
lögreglu- og slökkviliðsmenn, á
vettvangi þegar mest var. Reyk-
kafarar fóru inn í húsin strax við
komuna á vettvang og lögregla
hófst handa við að rýma svæðið.
Voru starfsskilyrði slökkviliðs afar
erfið í allan gærdag á meðan
slökkvistörfum stóð.
Jón Viðar Matthíasson slökkvi-
liðsstjóri segir ljóst að slökkviliðs-
menn hafi lagt sig í mikla hættu en
slökkvistarfið hafi gengið vonum
framar miðað við hversu aðkoman
var ljót. „Við þurftum að rífa þakið
af Austurstræti 22 vegna þess hvað
var mikil hrunhætta og ég treysti
því ekki að senda inn menn í þessar
hættulegu aðstæður.“ Jón Viðar
telur að eldvarnir húsanna hafi
ekki verið nægilega góðar, enda
séu húsin gömul og erfitt að koma
slíku við.
Björn Karlsson, forstöðumaður
Brunamálastofnunar, segir ljóst að
eldvörnum hafi verið ábótavant í
húsunum. „Annars hefði eldur ekki
náð svona langt. En það er erfitt að
fara að ítrustu kröfum í brunavörn-
um í gömlum friðuðum húsum því
þau eru byggð eftir gömlum reglu-
gerðum.“ Björn segir að við nýja
starfsemi, eins og veitingahúsa-
rekstur, verði að uppfylla bygginga-
reglugerðir á þeim tíma. Það er hins
vegar ekki alltaf hægt.“ Björn segir
að eldvarnareftirlit þurfi stundum
að slaka á kröfum vegna þess að
viðkomandi hús sé menningarverð-
mæti og þeim megi ekki breyta.
Talið er að eldurinn hafi kviknað
út frá loftljósi í söluturni sem
stendur á milli húsanna tveggja, að
sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglu-
stjóra höfuðborgarsvæðisins.
Þórður Halldórsson, vettvangs-
stjóri lögreglunnar, segir að þrátt
fyrir að mikinn fjölda fólks hafi
drifið að og fylgst með brunanum
hafi gengið mjög vel að rýma
svæðið. „Fólk hefur verið mjög
samvinnufúst og farið eftir öllum
fyrirmælum lögreglu.“
Slökkviliðsmenn Brunavarna
Suðurnesja stóðu vaktina í höfuð-
stöðvum Slökkviliðs höfuðborg-
arsvæðisins eftir að allt tiltækt
slökkvilið af höfuðborgarsvæð-
inu hafði verið sent á vettvang.
Þeirra hlutverk var að manna
slökkvistöðina til að annast önnur
útköll ef af yrði. Reykjarkófið frá
eldinum sást úr nágrannabyggð-
arlögunum en reykurinn lagðist
yfir miðborgina, bæði til suðurs
og vesturs.
Gífurleg eyðilegging í stór-
bruna í miðbæ Reykjavíkur
Tvö sögufræg hús urðu eldi að bráð í mesta bruna í Reykjavík í áratugi. Mikil mildi þykir að enginn slasað-
ist í eldsvoðanum. Allt tiltækt slökkvilið barðist við eldinn. Eldvarnir eru taldar hafa verið ófullnægjandi.
16.48