Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 22
hagur heimilanna
Hægt er að fara yfir úttekt-
arheimild þó að síhringikort
séu notuð og geta korthafar
lent í því að fara á „FIT“.
Þetta gerist þegar færslur
tefjast í níu daga, til dæm-
is vegna bilunar. Börn og
unglingar mega ekki stofna
til skulda.
Hægt er að fara yfir úttektarheim-
ild á reikningum þegar debetkort
sem eru síhringikort eru notuð þó
að slíkt eigi ekki að geta komið
fyrir. Notendur slíkra korta geta
lent í því að greiða svokallaðan
FIT-kostnað upp á minnst 750 krón-
ur nema þeir mótmæli við bank-
ann.
Jóhannes Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Neytendasamtak-
anna, kannast við að kvartað sé
yfir því að börn og unglingar sem
hafi síhringikort fari yfir á reikn-
ingum sínum vegna þess að kortin
hringi ekki inn og séu látin greiða
„FIT“-kostnað.
„Þegar fólk fær svona kort fyrir
börnin sín gengur það út frá því að
alltaf sé kannað hvort til sé inni-
stæða. Fólk telur sig vera að
tryggja sig fyrir því að unglingar
fari fram yfir og svo er ekki hægt
að treysta á það,“ segir hann og
bendir á að kostnaðurinn geti verið
himinhár, til dæmis þegar dagvext-
ir leggjast ofan á. „Hreint okur,“
segir hann.
„Síhringikortin virka þannig að
það er alltaf hringt eftir heimild og
féð tekið frá þannig að korthafinn
getur ekki farið yfir á reikningn-
um. Sérstaklega gildir þetta um
debetkort fyrir börn og unglinga
sem eru ófjárráða. Þau mega ekki
stofna til skulda en mega ráðstafa
sínu sjálfsaflafé og gjafafé,“ segir
Ragnar Már Vilhjálmsson, vöru-
stjóri hjá Glitni.
Halla Leifsdóttir, deildarstjóri
hjá Visa Íslandi, segir að síhringi-
kort hringi alltaf inn en færslur
geti tafist. Ef þær skili sér ekki inn
á níu dögum, til dæmis vegna bil-
unar í tækjabúnaði, geti korthafinn
fengið hina fráteknu peninga aftur
inn á reikninginn sinn, eytt þeim
óvart og farið á „FIT“.
Reglur bankanna eru mismun-
andi. Ragnar segir að Glitnir rukki
ekki „ófjárráða krakka um nein
færslugjöld eða „FIT“-kostnað.
Þessir aðilar séu allir án þjónustu-
gjalda. „Ef upp koma tilfelli um
slíkt þá undantekningarlaust leið-
réttum við slíkan kostnað,“ segir
hann.
Anna Bjarney Sigurðardóttir,
forstöðumaður hjá Landsbankan-
um, kannast við vandamálið með
síhringikortin og segir að þegar
slíkt gerist sé málið skoðað og
leyst með sanngjörnum hætti.
Friðrik Halldórsson, forstöðu-
maður hjá Kaupþingi, kannast við
vandamálið með síhringikortin en
segir að það sé löngu liðin tíð hjá
Kaupþingi.
Fara yfir heimild þrátt
fyrir síhringikortin
Umfelgun á venjulegum fólksbíl
með 13-15 tommu dekk á stálfelg-
um er ódýrust hjá Vöku og dýrust
hjá N1. Hjá Vöku kostar umfelgun-
in 4.800 krónur en hjá N1 kostar
hún 6.090. Munurinn nemur 1.290
krónum eða um fjórðungi af kostn-
aðinum við umfelgunina hjá Vöku.
Fréttablaðið kannaði nýlega
kostnaðinn við umfelgun á sjö
stöðum á landinu: Vöku, Pitstop,
Gúmmívinnslunni Akureyri, Bílkó,
Dekkjaverkstæði Grafarvogs,
Dekkjaáttunni og N1. Umfelgunin
var næstódýrust hjá Pitstop og
næstdýrust hjá Dekkjaáttunni.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, rifjar upp að
hæsta verð á samskonar umfelgun
hafi verið 5.800 krónur samkvæmt
verðkönnun ASÍ, sem gerð var síð-
asta haust, og það hafi verið innan
N1-keðjunnar. „Ég hefði átt von á
að því að þeir sem voru með hæsta
verðið í haust myndu halda í við
sig en svo virðist ekki vera,“ segir
Runólfur. Hann telur bersýnilegt
að neytendur geti sparað í umfelg-
un með því að skoða framboð. „Það
munar umtalsvert um 1.200 krón-
ur.“
Lögreglan hefur heimild til að
sekta bíleigendur fyrir nagladekk
frá 15. apríl. Runólfur segir að
hefð sé fyrir því að bíða fram að
mánaðamótum þar sem aðstæður
geta verið með þeim hætti að
nagladekkja sé þörf. Sektin nemur
5.000 krónum á dekk.
Munar 1.200 krónum
Milli þess sem plötusnúðurinn Kitty
Lapka skankar skífum mallar hún
gulrætur og þrífur eftir ketti.
Reykhyltingar ´67
Okkar tími er kominn!
Með komandi vori eru liðin 40 ár síðan við vorum útskrifuð úr
gagnfræða- og landsprófi frá Reykholtsskóla í Borgarfirði.
Er ekki tími til kominn að hittast?
Maggnús Víkingur Grímsson á land við Flúðir í Hrunamannahreppi
sem nefnist “Laufskálabyggð”. Þar hefur hann ákveðið að efna til úti-
hátíðar helgina 21.-22. júlí ´07, sér-hannaða fyrir okkur Reykhyltinga,
nægt pláss fyrir tjöld, hjólhýsi og þess háttar, maka, börn og jafnvel
barnabörn, eftir því hvað hver vill.
Samkomutjald, útisalerni, flatbökusala, glens og gaman.
Auk þess mun Maggnús fljúga útsýnisflug með þá sem þess óska ef
veður leyfir, engan glannaskap.
Í undirbúningsnefnd eru:
Fyrir landsprófið: sími
Stefán Magnús Böðvarsson stebo@visir.is 899 1726
Stefanía Ólafsdóttir stella@grindavik.is 6607319
Fyrir gagnfræðinga:
Maggnús Víkingur Grímsson maggnus@laufskalar.is 893 65 99
Einar Axelsson einarax@simnet.is 899 2478
Þorvaldur Aðalsteinsson gudrid@simnet.is 893 3269
Látið nú heyra frá ykkur, til einhvers af nefndarfólkinu,
því við verðum jú að vita þátttöku.
Byrjið strax að rifja upp skemmtisögur og Sturlungar,
byrjið nú að æfa nokkur lög t.d. I´m on an Island og Undir bláhimni.
Rykfrakki á slikk