Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 28
Danir eru hugsandi yfir horfum
á fasteignamarkaði þessa dagana
en sjaldan hafa jafn margar íbúð-
ir verið til sölu. Spáð hefur verið
verðlækkunum, sem þegar eru
orðnar að veruleika, ekki síst á
Stór-Kaupmannahafnarsvæðinu.
Margir fasteignasalar hafa tekið
upp bandarískar aðferðir til að
að selja fasteignir víðs vegar um
landið.
Danska viðskiptablaðið Börsen
bendir á að sala á íbúðamarkaði
hafi dregist saman á svæðinu og
sé af sem áður var þar eð margir
haldi að sér höndum.
Í ljósi þessa hafi fasteigna-
félög á borð við Corell Ejend-
omme hætt við að auglýsa 42
nýjar leiguíbúðir með kauprétt-
arákvæði. Margir veigri sér við
því að festa sér fasteign af ótta
við að markaðsverðmæti eigna
þeirra eigi eftir að falla.
Blaðið segir marga fasteigna-
sala í Danmörku hafa gripið til
ýmissa ráða til að hleypa lífi
í fasteignamarkaðinn. Þannig
bjóði sumir flatskjái eða bifreið-
ar í kaupbæti með íbúðum eða
húsum auk þess sem ýmiss ann-
ars konar góðgæti fylgir með
kaupum á fasteignum svo sem
líkamsræktarkort og utanlands-
ferðir.
Bent er á að þessi aðferð sé vel
þekkt í Bandaríkjunum en það
var fyrst í ár sem löglegt varð
að freista neytenda með þessum
hætti í Danmörku.
Fasteignasalar gegn samdrætti
Breska kauphöllin í Lundúnum
(LSE) er sögð hafa hug á samstarfi
við þýsku kauphöllina í Frank-
furt og samnorrænu kauphall-
arsamstæðuna OMX, sem rekur
kauphallir í Eystrasaltslöndun-
um og á Norðurlöndunum, þar á
meðal hér. Ólíklegt er að af sam-
starfi LSE verði í bráð því stjórn
bandaríska hlutabréfamarkaðar-
ins Nasdaq er sögð ætla að gera
allt sem í hennar valdi standi til
að koma í veg fyrir samstarf LSE
við hlutabréfamarkaði á alþjóð-
legum vettvangi.
Ástæðan fyrir þessu er and-
staða Cörlu Furse, forstjóra LSE,
gegn yfirtökutilboði Nasdaq á
síðasta ári og í byrjun þessa árs.
Furse fékk mikið lof fyrir af-
stöðu sína. Það virðist koma í bak
hennar nú því Nasdaq tryggði sér
tæpan 30 prósenta hlut í breska
markaðnum á meðan yfirtökutil-
raununum stóð og mun nýta
eignastöðuna til að hefna sín, að
sögn breska blaðsins Financial
Mail.
Nasdaq hefur leitað eftir sam-
starfi við kauphallir á meginlandi
Evrópu síðastliðin tvö ár og er
sagt hafa gert tilboð í OMX upp
á 23 milljarða sænskra króna,
jafnvirði 221 milljarðs íslenskra
króna, í síðustu viku. Talsmaður
OMX vísaði orðróminum á bug
og sagði stjórnina eiga í viðræð-
um við nokkrar kauphallir um
samstarf á ýmsum sviðum.
Nasdaq hefnir sín á LSE
Micheal O‘Leary,
forstjóri írska lág-
gjaldaflugfélagsins
Ryanair, er sagður
velta því alvarlega
fyrir sér að stofna
lággjaldaflugfé-
lag sem muni sinna
flugi á milli Evrópu
og Bandaríkjanna á
næsta ári. Ástæðan
er samningur á milli
Bandaríkjanna og
Evrópusambands-
ins um auknar heim-
ildir flugfélaga til
að fljúga álfanna á
milli.
Mörg flugfélög sjá fram á verð-
stríð á flugleiðunum og spá því að
farmiðaverð yfir hafið muni hríð-
lækka í kjölfarið.
Breska fréttastofan Sky segir
að flugfélagið sem O‘Leary íhug-
ar að setja á laggirnar muni ekki
fljúga undir merkj-
um Ryanair. Haft hefur
verið eftir O‘Leary, að
verðmiðinn geti farið
allt niður í sjö pund,
jafnvirði rétt rúmra 900
króna. Markaðsaðilar
telja verðið alltof lágt.
Talsverð samkeppni
liggur þegar í loftinu
því annað breskt flug-
félag, Zoom Airlines,
hefur í bígerð að fljúga
daglega á milli Gat-
wick og John F. Kenn-
edy flugvallarins í New
York þegar samningur-
inn tekur gildi á næsta
ári.
Gert er ráð fyrir því að fyrstu
vélar Zoom Airlines fari í loftið
undir lok júní á næsta ári og mun
farmiðaverð liggja í 129 pund-
um, tæpum 17 þúsund íslenskum
krónum.
Ryanair stofnar félag
Allt fyrir bílinn – á afbragðsverði
aðeins í dag kl. 12–16
rýmingarsala
Kíktu á Klettháls 9 og gríptu tækifærið:
Alls kyns aukahlutir í fjölmargar tegundir bíla
– á hreint einstöku rýmingarverði.
50 til 80%
afsláttur:
Loftsíur
Vindskeiðar
Lexusljós
Bassabox
Rúðuþurrkur
Hátalarabox
Álfelgur
Perur
Sport-stýri
Aukaljós
Spoiler Kit
Króm-stútar
ÁG Mótorsport – Kletthálsi 9