Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 13
Það líður að því að gerð jarðganga milli Bolungar- víkur og Hnífsdals verði boðin út. Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra segir að eftir útboð geti framkvæmdir hafist fljótlega; vonandi í vetur. Áætlað er að gangagerðin kosti á sjötta milljarð króna. Í vegaáætlun til 2010 sem samþykkt var á lokadögum þingsins í mars er gert ráð fyrir göngum milli Bolungarvíkur og Hnífsdals og að því stefnt að gerð þeirra verði lokið árið 2010. Gerð jarðganga hefst á árinu Nítján ára piltur hefur verið ákærður fyrir líkamsárás, eignaspjöll, nytjastuld og umferð- arlagabrot í Héraðsdómi Reykja- ness. Piltinum er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist á mann í slagtogi við óþekktan mann, slegið hann með hafnaboltakylfu og misþyrmt með öðrum hætti þannig að hann hlaut mikla áverka af. Þá er hann ákærður fyrir að hafa stolið bátnum Gísla KÓ10 úr Kópavogshöfn og siglt honum í strand í Skerjafirði. Þess er krafist að pilturinn verði dæmdur til refsingar. Sigldi stolnum bát í strand Sjálfvirk hjartastuð- tæki hafa verið sett í nokkra af útkallsbílum öryggisvarða Securitas á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn fyrirtækisins eru oft fyrstir á vettvang þegar slys eða óhöpp verða og því þótti brýn ástæða til að útbúa bíla með þessum tækjum. Nú þegar hafa tækin bjargað mannslífi. Tækið sem Securitas hefur fest kaup á nefnist Samaritan AED. Það sendir rafstraum í gegnum hjartað og getur komið því í eðlilegan takt. Heilbrigðisyfir- völd um allan heim hafa mælt með fjölgun slíkra tækja enda sannað að þau auka lífslíkur þeirra sem fá hjartastopp. Nú þegar hafa Samaritan AED tækin verið sett í sjúkrabifreiðar, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, skip, lögreglubíla, íþróttamið- stöðvar og víðar. Hefur þegar bjargað lífi Dr. Þorsteinn I. Sigfússon, prófessor við Háskóla Íslands, hlýtur alþjóðlegu orkuverðlaunin, Global Energy International Prize, í júní næstkomandi. Verðlaunin eru veitt fyrir rannsóknir Þorsteins á sviði orkumála og hljóða upp á tíu milljónir rúblna, eða um 26 milljónir íslenskra króna. Þorsteini var tilkynnt þetta formlega í rússneska sendiráðinu í gær, en það verður svo Vladimír Pútín Rússlandsfor- seti sem afhendir honum þau í sumar. Þorsteinn sagðist við athöfnina vera afar hrærður vegna viðurkenningarinnar. Hann hafi heyrt fyrir nokkrum dögum að hann stæði eftir til úrslita ásamt fjórum öðrum, en upphaflega komu um hundrað vísindamenn til greina. „Þetta eru verðlaun sem ég veiti viðtöku fyrir hönd hins breiða hóps Íslendinga, sem í gegnum árin hafa staðið að rannsóknum á endurnýjanlegum orkugjöfum. Mér finnst ég standa á öxlum mikilmenna í þeim efnum og það er mér heiður að taka við þessum verðlaunum,“ sagði Þorsteinn. Viktor Tatarintsev, sendiherra Rússlands á Íslandi, sagði Þorstein vísa veginn til framtíðar fyrir sambræður sína. Rannsóknir hans væru afar mikilvægar fyrir Rússland, sem og heiminn allan. „Að vera olíu- og gasauðugt land er eitt, en það er ekki hægt að treysta á það til allrar framtíðar. Endurnýj- anleg orka er framtíðin.“ GLEÐILEGT SUMAR Krítar og myndlist Vinstri grænt sumar, kíktu í kaffi á Suðurgötuna milli 15 - 18 HAPPY SUMMER FELIZ VERANO WSZYSTKIEGO NAJLEPSZEGO Z OKAJI PIERWSZEGO DNIA LATA Einnig opið á Kosningamiðstöðvum VG í Hamraborg 1-3 og á Grensásvegi 16a. Allir velkomnir Teiknum framtíðina á götuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.