Fréttablaðið - 19.04.2007, Blaðsíða 82
Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir tekur formenn stjórn-
málaflokkanna á teppið í Ráðhúskaffi. Þar sýnir hún and-
litsmyndir sínar af stjórnmálamönnunum.
„Þetta eru í raun og veru teppi sem eru strengd upp á ramma. Aðferðin
kallast textíl collage. Þetta er straujað á og límt, ekki saumað eins og stóru
teppin mín eru,“ útskýrir Sigríður. Hún hefur unnið að andlitsmyndunum í
vetur og segir meiri vinnu felast í þeim en margan gruni.
Að sýningarstaðurinn sé Ráðhúskaffi segir Sigríður ekki bara hljótast af
beintengingunni við stjórnmálin. „Þessi veggur er bara alveg rakinn fyrir
þessar myndir, en auðvitað er þetta vel við hæfi svona í tilefni kosning-
anna,“ sagði hún. Sigríður segir verkin enda fjalla um það lýðræðislega
frelsi okkar að fá að velja og kjósa.
Sviptingar í stjórnmálum undanfarnar vikur urðu til þess að auka álag-
ið í vinnu Sigríður. „Það má segja að ég hafi verið alveg í spreng að klára
myndina af Ómari,“ sagði Sigríður. Hún hefði gjarnan viljað sjá fleiri
konur í formannsstöðum, en ekki eingöngu vegna jafnréttishugsjónar-
innar. „Ég var orðin svo hundleið á þessum skeggjuðu köllum. Það er svo
erfitt að ná skegginu góðu,“ sagði sposk. „En það var mikil áskorun fyrir
mig að vinna þetta, að reyna að ná svipnum og örlitlu af karakter hvers
og eins,“ sagði Sigríður. „Stundum tóku þeir völdin og útkoman varð allt
önnur en ég ætlaði mér.“
Í gær voru liðin tvö ár frá því að Sigríður opnaði sína fyrstu sýningu, en
listinni sinnir hún í tómstundum. „Þá sýndi ég tólf pólitísk teppi. Ég fjall-
aði um frelsi og kúgun kvenna,“ sagði Sigríður, sem hefur því markað sér
ákveðna sérstöðu.
Aðspurð hvort hún óttist ekki að einhver gæti fallið þá freistni að kaupa
mynd af formanni til að nota sem gólfmottu segist Sigríður vona að svo
verði ekki. „Þetta eru nú veggteppi. Ég held við séum ekki svo illa inn-
rætt,“ sagði hún og hló við. Sýningin stendur fram yfir kosningar.
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður
sem fram fór á Ísafirði um páska-
helgina hefur vakið mikla athygli
út fyrir landsteinana.
„Það voru tíu eða ellefu erlendir
blaðamenn hér á hátíðinni. Bresk-
ir, bandarískir, þýskir og einhverj-
ir frá Skandinavíu líka,“ segir Örn
Elías Guðmundsson, betur þekktur
sem Mugison, einn aðalskipuleggj-
andi hátíðarinnar. „Þeir tóku fullt
af viðtölum við tónlistarfólkið sem
var að spila hérna. Við erum ekkert
að borga listafólkinu þannig að það
er mjög fínt að það sé smá tækifæri
að spila hér.“
Koma blaðamannanna er þegar
farin að skila sér. Veftímaritið
Drowned in Sound, sem er eitt mest
skoðaða tónlistartímaritið á netinu,
fjallaði ítarlega um hátíðina í gær.
Sérstaklega er blaðamaður hrif-
inn af Esju, nýstofnaðri hljómsveit
Daníels Ágústs og Krumma úr
Mínus, og ofurhljómsveitinni Dr.
Spock með Óttarr Proppé fremstan
í flokki. Auk þess talar hann fallega
um Pétur Ben, Lay Low, Ampop og
fleiri.
Aðrir blaðamenn sem komu voru
meðal annars frá bresku blöðun-
um The Guardian og The Times og
Musik Woche sem er eitt stærsta
bransablaðið í Þýskalandi.
„Mér fannst reyndar skrýtið að
hafa þessa blaðamenn þarna því
hugmyndin á bak við hátíðina var
alltaf að hafa hana litla og heimil-
islega,“ segir Mugison. „Þetta rétt
slapp núna, þeir voru nógu fáir til
að falla inn í hópinn.“ Blaðamaður
Drowned in Sound er sammála Mu-
gison og talaði sérstaklega um það
að nálægðin við listafólkið, aldurs-
breidd áhorfendahópsins og vest-
firsku böndin væru stór hluti af því
sem gerði hátíðina svona frábæra.
Aldrei fór ég suður
á allra vörum
Söngvarinn Bryan Ferry hefur beð-
ist afsökunar á jákvæðum ummæl-
um sínum um nasista. Ferry sagði í
viðtali að valda-
tími nasista
væri „hreint
frábær“.
Brian Ferry,
sem er fyrr-
um söngvari
Roxy Music,
lét ummælin
falla í viðtali
við þýskt dag-
blað. Þar talaði
hann um aðdá-
un sína á verk-
um Leni Rief-
enstahl sem gerði áróðursmyndir
fyrir nasista, og arkitektúr Albert
Speer. Í viðtalinu, sem birtist í Welt
am Sonntag, viðurkenndi Ferry
einnig að hann kallaði hljóðver sitt
í London „Führerbunker“.
„Ég biðst innilega afsökunar
ef ummæli mín hafa móðgað ein-
hvern. Þau voru eingöngu hugsuð
út frá listrænu og sögulegu sjón-
arhorni. Eins og öðrum finnst mér
nasistatíminn hræðilegur.“
Ferry biðst
afsökunar
GLEÐILEGT SUMAR
Frábær sumartilboð í gangi