Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 6
„Það er óljóst á þessu stigi hvort
við ráðumst í endurbyggingu,“
sagði Garðar Hannes Friðjóns-
son, framkvæmdastjóri Fast-
eignafélagsins Eikar, sem er eig-
andi Lækjargötu 2 og húsnæðisins
þar sem söluturninn Fröken
Reykjavík var til húsa, en talið er
að eldurinn hafi kviknað. „Þetta
er auðvitað skelfilegt en við þökk-
um fyrir að enginn hafi slasast í
þessum mikla eldi. Það er erfitt
að gera sér grein fyrir skaðanum
en það er ljóst að hann er mjög
mikill sökum elds, reyks og vatns.
Þetta er tryggt en það er erfitt að
gera sér grein fyrir því að hve
miklu leyti. Það væri gott ef við
gætum byggt upp húsnæðið í
upprunalegri mynd en það er
ótímabært að gera sér grein fyrir
stöðu mála núna.“
Eik leigði út húsnæði til Rósen-
berg, Kaffi Óperu, Landsbankans
og Iceland visitors, sem leigði út
húsnæðið undir söluturninn.
Þórður Pálmason, sem leigir
reksturinn á Rósenberg af Eik, var
að vonum daufur í dálkinn er hann
sat á stéttarkanti við Lækjargötu
og horfði á staðinn brenna. „Ég er
mjög lítið tryggður og þetta er
gríðarlegt tjón fyrir mig. Í raun
var þetta allt sem ég átti. Ég var
með ýmsa persónulega muni þarna
inni sem ég held því miður að séu
ónýtir.“
Bjarni Jónsson, sem er í for-
svari fyrir félagið Austurstæti 22
hf. sem á og leigir út húsið þar
sem skemmtistaðurinn Pravda
var en húsið gjöreyðilagðist í
brunanum, sagði ótímabært að
svara því hvort ráðist verði í end-
urbyggingu. „Það þarf að byrja á
því að meta tjónið og síðan skoð-
um við okkar mál. Það er auðvitað
hræðilegt að horfa upp á þetta
gerast. Við erum tryggð en það er
ekki ljóst enn þá hvernig þessi
mál fara. Það er alltof snemmt að
reyna að meta tjónið til fjár.“
Á morgun föstudaginn 20. apríl:
• Eurovision-stemmning í öllum útibúum SPRON.
• Eiríkur Hauksson mætir í SPRON, Ármúla 13a, kl.14.
Allir velkomnir!
• Taktu þátt í leik á spron.is sem stendur frá
20. apríl til 1. maí og þú gætir unnið ferð fyrir tvo
til Helsinki og verið með í fylgdarliði Eiríks.
EUROVISION
MEÐ EIRÍKIFERÐ ÞÚ
TIL HELSINKI?
A
RG
U
S
07
-0
28
9
Fylgstu með á spron.is
EUROVISION-UPPHITUN SPRON
„Við vorum langt komnir með að
gera upp staðinn,“ segir Tómas
Kristjánsson sem unnið hefur að
enduruppbyggingu húsnæðis
Kaffi Óperu að Lækjargötu 2.
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur,
ekki síst í ljósi þess að við erum
ekki að fara að opna veitingastað
eins og við ætluðum okkur. En við
erum tryggðir fyrir tjóni að
einhverju leyti en það er erfitt að
meta hvernig staða mála verður.“
Endurbætur
langt komnar
„Mér finnst þetta afskaplega
sorglegt,“ sagði Guðný Helga
Herbertsdóttir, sem stóð ásamt
barnabarni sínu, Andra Kjerúlf,
sjö ára, og horfði á slökkvi-
liðsmenn sinna störfum sínum.
„Þetta er mikill sorgardagur því
þessi hús settu mikinn svip á
miðborgina. Við komum úr Kópa-
voginum til þess að fylgjast með
þessu enda er þetta sorglegur og
mikill viðburður í senn.“
Nýtt brunavarnakerfi sannaði gildi
sitt á Hótel Borg í gær en loft-
ræstikerfi lokaðist um leið og
reykur tók að berast yfir miðbæ-
inn. „Við erum nýbúin að taka hér
allt í gegn og það munaði miklu.
Um leið og brunavarnakerfið fór í
gang lokaðist fyrir streymi inn í
húsið og það skipti sköpum.
Annars hefðum við þurft að
reykræsta allt húsið,“ sagði Ólafur
Þorgeirsson hótelstjóri skömmu
eftir að eldurinn kom upp. Um
áttatíu prósent gistirýma hótelsins
voru uppbókuð, en samtals eru 56
herbergi á hótelinu. „Við vorum
heppin að sleppa að mestu, þótt
lítils háttar reykur hafi komið inn
á veitingastaðina hérna á neðstu
hæðinni.“
Brunakerfi
skipti sköpum
Sorglegur dag-
ur í miðbænum
„Þegar við komum fyrst inn var
þar mikill hiti og gífurlegur reyk-
ur. Það var afar erfitt að eiga við
aðstæður í byrjun. Við vorum
nýkomnir inn í salinn á Óperu
þegar eldurinn kom aftan að okkur
og reyndar úr öllum áttum. Við
gátum ekkert gert nema að verj-
ast eldinum og átta okkur á því
hvað væri best að gera,“ sagði Sig-
urður Sigurðsson reykkafari sem
fór fyrstur inn í brennandi húsin í
miðbæ Reykjavíkur með félaga
sínum, Ásgeiri Halldórssyni.
Þegar reykkafarar fara inn í
byggingu þurfa þeir fyrst að skil-
greina hvar mesti eldurinn er í hús-
inu. Einnig að finna upptök eldsins
og brjóta sér leið að þeim. „Þannig
er reynt að finna hvar mesti eldur-
inn geisar og það eykur líkurnar á
að slökkvistarf gangi fljótt og vel,“
segir Eyþór Sveinsson reykkafari.
„Þegar við komum fyrst á staðinn
var mikill eldur í þaki söluturnsins.
Við náðum að slökkva það að mestu
og síðan fórum við inn á veitinga-
staðinn Pravda. Þar fórum við strax
að glíma við eldinn sem var gríðar-
lega mikill.“
Eyþór segir að allhvass vindur
hafi gert það að verkum að eldurinn
rauk upp þar sem mikill eldsmatur
sé í gömlum húsum. „Eldurinn
rýkur upp aftur og aftur og smýgur
út um allt. Vindurinn gerir okkur
þannig erfitt fyrir.“
Jón Viðar Matthíasson slökkvi-
liðsstjóri segir að fljótt dragi af
mönnum við þessar aðstæður.
„Menn fara inn í eldinn með nýtt
reykköfunarsett aftur og aftur. Það
tekur alveg rosalegan toll af mönn-
um. Við svona aðstæður kemur í
ljós hvað þrotlausar æfingar þess-
ara stráka er mikilvæg. Hún er
fyrir daga eins og þennan,“ segir
Jón Viðar.
Umkringdir eldhafinu
Reykkafarar sem fyrst fóru inn í brennandi húsin urðu að verjast eldi úr öllum
áttum. Reykur og hiti var gífurlegur og aðstæður erfiðar frá upphafi.
„Mér finnst mjög dapurlegt að
horfa á þessi hús brenna,“ sagði
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri þar sem hann stóð í
Austurstræti og horfði á aðgerðir
slökkviliðs í miðbænum í gær.
„En við munum reisa húsin aftur
í upprunalegri mynd, það er ekki
um neitt annað að ræða. Við
verðum að byrja strax á upp-
byggingarstarfinu. Þessi hús
munu standa hér áfram.“
Vilhjálmur segir mikilvægt að
götumynd miðbæjarins verði
komið í upprunalegt horf, þjóðin
hljóti að vera sammála um það.
Kaldhæðni örlaganna höguðu
því svo í gær að Vilhjálmur átti
skipulagðan fund við Jón Viðar
Matthíasson slökkviliðsstjóra
þegar hann heyrði af eldinum.
„Ég hefði gjarnan viljað funda
við aðrar kringumstæður,“ sagði
Vilhjálmur.
Húsin verða
endurreist
14.39
14.36
16.14
16.08
17.35