Fréttablaðið - 19.04.2007, Síða 12
57,2 prósent þjóð-
arinnar eru fylgjandi aðskilnaði
ríkis og kirkju, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
42,8 prósent eru því mótfallin og er
munurinn marktækur.
Ef litið er til afstöðu fólks eftir
kyni segjast 62,0 prósent karla
vera fylgjandi aðskilnaði ríkis og
kirkju. Aðeins rétt rúmur meiri-
hluti kvenna, 51,6 prósent, segist
hlynntur aðskilnaði.
Ef litið er til afstöðu fólks eftir
því hvaða stjórnmálaflokk það seg-
ist myndu kjósa er marktækur
munur á afstöðu þeirra sem myndu
kjósa Frjálslynda flokkinn, Sam-
fylkingu og Vinstri græn. Meiri-
hluti stuðningsfólks allra flokk-
anna þriggja er fylgjandi
aðskilnaði. 69,6 prósent þeirra sem
styðja Frjálslynda flokkinn, 62,8
prósent þeirra sem styðja Sam-
fylkingu og 70,7 prósent þeirra
sem styðja Vinstri græn segjast
hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju.
Þá er marktækur munur á afstöðu
þeirra sem ekki gefa upp hvaða
flokk þeir myndu kjósa og segjast
56,2 prósent þeirra vera fylgjandi
aðskilnaði þessara tveggja stofn-
ana.
Tæpur meirihluti stuðnings-
manna Framsóknarflokksins, 51,5
prósent, er fylgjandi aðskilnaði, en
tæpur minnihluti stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokkins, 49,7 prósent,
segist andvígur aðskilnaði ríkis og
kirkju. Hringt var í 800 manns
laugardaginn 14. apríl og skiptust
svarendur jafnt eftir kyni og hlut-
fallslega eftir kjördæmum. Spurt
var: Ertu fylgjandi eða andvíg(ur)
aðskilnaði ríkis og kirkju? 75,1 pró-
sent tók afstöðu til spurningarinn-
ar.
Margir nemendur og nokkrir kennarar
við Virginia Tech-háskólann höfðu haft áhyggjur af
Cho Seung-Hui, hinum 23 ára gamla nemanda sem
framdi fjöldamorð í skólanum á mánudaginn. Sumir
óttuðust að hann ætti eftir að fremja einhver voða-
verk.
„Við vorum alltaf að grínast með að við værum bara
að bíða eftir að hann gerði eitthvað, bíða eftir að
frétta af einhverju sem hann hefði gert,“ sagði
Stephanie Derry, ein af skólasystrum hans. „En þegar
ég fékk símtal um að það hafi verið Cho sem gerði
þetta, þá fór ég bara að gráta, ég veinaði og grét.“
Cho hafði verið kærður til lögreglu fyrir að leggja
tvær skólasystur sínar í einelti og árið 2005 var farið
með hann á geðsjúkrahús vegna þess að talin var
hætta á að hann fremdi sjálfsvíg. Cho stundaði nám
við enskudeild skólans og skrifaði bæði leikrit og ljóð
sem vöktu óhug meðal samnemenda hans og kennara.
Textarnir voru ofbeldiskenndir, þóttu barnalegir og
fullir af heift. Öllum sem þekktu hann var ljóst að eitt-
hvað mikið var að.
„Ég veit við erum að tala um ungmenni,“ segir
Nikki Giovanni, einn af kennurum hans við enskudeild
skólans, „en það var einhver illska í þessum dreng.“
Hún segir að margir nemenda sinna hafi hætt að
mæta vegna þess hvernig Cho hagaði sér. Hún fékk
því framgengt að hann var rekinn úr tímunum en
annar kennari, Lucinda Roy, tók þá að sér að kenna
honum í einkatímum.
„Hann var svo fjarlægur og einmana,“ sagði Roy.
„Það var næstum eins og að tala út í tómið, eins og
hann væri ekki á staðnum. Hann var með sólgleraugu
og dró hattinn svo langt niður að það sást varla í
andlitið.“
Vakti óhug meðal nemenda