Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 20
fréttir og fróðleikur
Strangar reglur fyrir smábátasjómenn
Ótvírætt gagn
Fjöldamorðin í Virginia
Tech-háskólanum á mánu-
dag hafa enn á ný vakið
upp umræðu um byssueign
í Bandaríkjunum. Litl-
ar líkur þykja þó á því að
sú umræða verði hávær í
kosningabaráttunni næstu
misserin.
Skotárásir í skólum virðast vera
algengari í Bandaríkjunum en víð-
ast hvar annars staðar. Voðaverk
af því tagi vekja jafnan óhug og
mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Í
hvert sinn sem slíkt gerist fer
einnig af stað umræða um byssu-
eign í Bandaríkjunum. Sú umræða
er þegar komin á fullt skrið, bæði
innan Bandaríkjanna og utan
þeirra.
Strax daginn eftir voðaverkin
voru margir leiðarahöfundar í
evrópskum dagblöðum snöggir að
varpa skuldinni á það hve frjáls-
lega Bandaríkjamenn umgangast
byssur. Samtök bandarískra byss-
ueigenda, National Rifle Associat-
ion, með hinn aldna leikara Charl-
ton Heston í fararbroddi, eru gerð
meðsek hinum 23 ára gamla Cho
Seung-Hui sem varð bæði sjálfum
sér og 32 nemendum og kennurum
að bana, vopnaður tveimur
skammbyssum sem hann átti í litl-
um vandræðum með að útvega sér
með löglegum hætti í Virginíu-
ríki.
Aðra byssuna keypti Cho í byssu-
búð í bænum Roanoke hinn 13.
mars og greiddi fyrir með kredit-
korti sínu, en hina fékk hann hjá
veðlánara í Blacksburg hinn 9.
febrúar.
„Hann var viðkunnanlegur og
snyrtilegur háskólastrákur,“ sagði
John Markell, eigandi búðarinnar
í Roanoke, í viðtali við AP-frétta-
stofuna. „Við seljum ekki byssu ef
við höfum minnsta grun um að
eitthvað sé bogið við kaupin.“
Samkvæmt lögum Virginíuríkis
er litlar hömlur lagðar við vopna-
kaupum. Heimilt er að kaupa sér
byssu einu sinni í mánuði.
Talið er að um 600 til 700 milljón
byssur séu til í heiminum, og er þá
átt við smærri vopn á borð við
skammbyssur og riffla, en ekki
þungavopn. Þriðjungurinn af
öllum þessum byssum er í Banda-
ríkjunum, og má af því ráða hve
mikla áhersla Bandaríkjamenn
leggja á að vopnvæðast.
Talsmenn byssueignar vísa jafnan
í 2. viðauka bandarísku stjórnar-
skrárinnar, þar sem kveðið er á
um rétt almennings til að bera
byssur:
„Þar sem vel skipulagt land-
varnarlið er nauðsynlegt fyrir
öryggi frjálsra ríkja skal réttur
þjóðarinnar til að eiga og bera
vopn óskertur látinn.“
Viðaukinn er ekki langur, eins
og sjá má, en merking hans hefur
þó vafist fyrir mörgum og sýnist
sitt hverjum. Til dæmis er deilt
um hvort með orðalaginu „réttur
þjóðarinnar“ sé átt við „rétt ein-
staklinga“ til að eiga og bera byss-
ur, eða hvort þar sé átt við stærri
heildir, hópa eða samtök einstakl-
inga, og þá væri viðaukinn skilinn
sem svo að hann kveði á um rétt
ríkjanna til þess að halda uppi
skipulögðum hersveitum.
Ráðandi viðhorf í Bandaríkjun-
um, jafnt meðal stjórnmálamanna
sem almennings, virðist hins
vegar vera að byssueign falli
undir almenn mannréttindi. Hver
maður þurfi að hafa ótvíræðan
rétt til að geta varið sig fyrir árás-
um.
Málsvarar óheftrar byssueign-
ar hafa jafnvel sagt fjöldamorðin í
Blacksburg einmitt vera gott
dæmi um það hve afdrifaríkar
afleiðingar það geti haft að leyfa
fólki ekki að bera byssur til að
verja sig. Ef nemendur, eða í það
minnsta kennarar, hefðu haft leyfi
til að bera byssur á skólalóðinni
hefði verið hægt að bjarga mörg-
um mannslífum. Cho hefði ein-
faldlega verið skotinn niður áður
en hann hefði náð að valda jafn
miklu tjóni og raun varð á.
Umræða um útbreiðslu byssu-
eignar hefur reyndar ekki verið
áberandi í stjórnmálum í Banda-
ríkjunum svo árum skiptir. Satt að
segja hefur vart verið minnst á
þetta mál af neinni alvöru allan
þann tíma sem George W. Bush
hefur verið Bandaríkjaforseti, og
ólíklegt þykir að það muni breyt-
ast mjög á næstunni þótt fjölda-
morðin í Virginia Tech verði vafa-
laust til þess að málið skjóti upp
kollinum af og til í kosningabar-
áttunni næstu misserin.
„Þetta mál er að mestu leyti
farið af dagskrá,“ er haft eftir
stjórnmálafræðingnum Robert J.
Spitzer í veftímaritinu Salon.
Demókratar hafa lengst af lagt
mikla áherslu á að herða reglur
um byssukaup. en veruleg breyt-
ing hefur orðið þar á. Núna „hlaupa
þeir eins og fætur toga burt frá
þessu máli og vilja ekki hengja
hatt sinn á það,“ segir Spitzer.
Harry Reid, leiðtogi þingmeiri-
hluta Demókrataflokksins í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings, hvet-
ur til þess að voðaverkin á
mánudag verði ekki til þess að
menn flýti sér um of að setja
strangar reglur.
„Ég held að við ættum að hugsa
um fjölskyldurnar og fórnarlömb-
in en ekki velta vöngum yfir þeim
átökum sem búast má við í fram-
tíðinni um lagasetningu,“ sagði
Reid nú á þriðjudaginn. Aðrir leið-
togar demókrata hafa tekið undir
þetta.
Umræða vakin úr dvala
Spæni og hör færðu
í Húsasmiðjunni Ögurhvarfi*
Hey!
ásamt úrvali af öðrum vörum fyrir hestamanninn
* Hestavörur fást einnig í völdum
verslunum um land allt