Fréttablaðið - 19.04.2007, Page 36
Ef fólk er spurt hvað er þeim
mikilvægast eða dýrmætast í líf-
inu myndu flestir foreldrar svara
því að það séu börnin. Því er nú
svo farið að allir foreldrar þurfa
að senda börnin sín í skóla og að
sjálfsögðu viljum við að þeim
líði vel í skólanum ekki síður en
að þau læri eitthvað gagnlegt.
Eftir að báðir foreldrar fóru út
á vinnumarkaðinn hefur þróun-
in orðið sú að börnin eru mestan
tíma sólarhringsins í skólanum.
Það er því ákaflega mikilvægt
að skólakerfið sé sniðið að þörf-
um barnanna og taki mið af ein-
staklingnum ekki síður en heild-
inni. Við Vinstri græn viljum að
innan skólakerfisins rúmist mis-
munandi straumar og stefnur svo
að bæði börn og foreldrar geti
valið það sem hentar þeim best.
Það teljum við að best sé gert
með því meðal annars að draga
úr miðstýringu, fara nýjar leið-
ir í mati á námsárangri þannig
að skólastarfið miðist ekki ein-
göngu við próf, ýta undir og taka
vel á móti frumkvæði fagfólks
og gefa þeim hugmyndafræði-
legt frelsi innan skólakerfisins
og leggja áherslu á einstaklings-
miðað nám. Innan skólakerfis-
ins þarf líka að vera bæði tími og
rými fyrir mikinn leik og sköp-
un barna. Ekki veitir af að börn
fái að vera börn og leika sér eins
lengi og mögulegt er. Hvernig sjá
Vinstri græn fyrir sér mennta-
kerfi til framtíðar?
Mismunandi straumar og stefn-
ur innan skólakerfisins gera það
að verkum
að hver og
einn ætti
að eiga
auðveld-
ara með að
finna skóla
við hæfi
barna sinna
og foreldr-
ar geta þá
valið hvað
þeim finnst
henta best. Innan hins opinbera
menntakerfis þarf að vera rúm
fyrir sjálfstætt framtak fagfólks
og hugmyndafræðilegt frelsi.
Þeir sjálfstæðu skólar sem nú eru
reknir fá allir framlög frá hinu
opinbera. Það þarf hins vegar að
gera breytingar í kerfinu þannig
að hægt sé að bjóða upp á hið sjálf-
stæða framtak fagfólks og mis-
munandi aðferðir innan kerfisins
en afnema með öllu skólagjöld
því þau eru eingöngu til þess að
mismuna börnum. Við teljum að
öll börn eigi að hafa þetta val, en
ekki einungis þau sem koma frá
efnaðri heimilum.
Í stefnuskrá Vinstri grænna í
menntamálum kemur fram að við
viljum afnema samræmd próf og
opna fyrir nýjar leiðir í mati á
skólastarfi og námsárangri. Einn-
ig viljum við ýta undir einstakl-
ingsmiðað nám í mun víðari skiln-
ingi þess heldur en eingöngu að
það taki mið af því hversu hratt
hver nemandi fer í gegnum hið
hefðbundna námsefni. Að okkar
mati þurfa börnin líka að hafa
frelsi til þess að velja í auknum
mæli um listir, íþróttir, handverk
eða vísindi ef áhugi þeirra liggur
á einu sviði framar öðru. Þar að
auki teljum við að nemendur eigi
að fá frelsi til að koma að mótun
skólastarfsins í auknum mæli og
læra lýðræðisleg vinnubrögð og
gagnrýna hugsun.
Menntun og umönnun barna okkar
er með verðmætustu störfum
samfélagsins því þar er grunnur-
inn lagður að framtíðinni. Nauð-
synlegt er að tryggja kennurum
og fagfólki góð kjör og verður
það að teljast góð langtímafjár-
festing samfélagsins í heild. Að
mati okkar Vinstri grænna þarf
einnig að leggja aukna áherslu á
símenntun kennara og rannsókn-
ir í skólastarfi.
Auk þess sem hér er nefnt má
líka bæta við að í menntastefnu
okkar leggjum við áherslu á
móðurmálskennslu fyrir börn
innflytjenda auk menntunar í
sjálfbærni og jafnrétti fyrir öll
skólastig. Á framhaldsskólastig-
inu viljum við tryggja jafnrétti
til náms þannig að landsbyggð-
in hafi aukinn aðgang að mennt-
un og skólagjöld verði afnumin.
Við teljum mikilvægt að tryggja
jafnrétti til náms með því meðal
annars að ungmennum á lands-
byggðinni sé tryggður aðgang-
ur að menntun til 18 ára aldurs.
Einnig viljum við að ungt fólk
geti fengið stúdentspróf af öllum
námsbrautum, hvort sem um er
að ræða verknám, listnám eða
hinar hefðbundnu leiðir. Okkar
stefna gengur út á að byggja
góðan grunn fyrir framtíð lands-
ins með góðri og fjölbreyttri
menntun sem öll er metin að
verðleikum. Kíkið á stefnuna á
heimasíðu okkar vg.is.
Höfundur skipar 5. sæti á lista
VG í Suðvesturkjördæmi.
Fjölbreytt og réttlátt menntakerfi
Herferð Vífilfells fyrir Coke Zero brýtur íslensk landslög,
en 18. grein laga um jafnan rétt og
stöðu kynjanna segir: „Auglýsandi,
og sá sem hannar eða birtir auglýs-
ingu, skal sjá til þess að auglýsingin
sé öðru kyninu ekki til minnkunar,
lítilsvirðingar eða stríði gegn jafnri
stöðu og jafnrétti kynjanna á nokk-
urn hátt“. Það þarf vart að útskýra
hvernig herferð sem inniheldur
eftirfarandi frasa brýtur þessi lög:
Af hverju ekki konur með zero
skoðanir?
Af hverju ekki konur með zero
bílpróf?
Af hverju ekki kynlíf með zero
forleik?
Af hverju ekki 2 kærustur með
zero afbrýðisemi?
Af hverju ekki kærustur með zero
er ég feit í þessu?
Herferðin hlutgerir konur út frá
fordómafullum staðalímyndum, svo
ekki sé minnst á hversu lítillækk-
andi hún er fyrir karlmenn. Sóley
Tómasdóttur hyggst kæra herferð-
ina, en ég deili undrun hennar á
því að það hafi ekki verið gert fyrr.
Sjálf hef ég lagt fram kæru til Siða-
nefndar SÍA.
Snúum okkur að alþjóðalögum.
Algeng skilgreining á hugtakinu
hate speech er: Orðræða sem geng-
ur út á að gera lítið úr, ógna eða hóta
fordómafullum aðgerðum gegn
manneskju eða hóp fólks vegna kyn-
þáttar, kyns, aldurs, uppruna, trúar,
kynhneigðar, fötlunar o.s.frv.
Herferð Coke Zero fellur undir
þessa skilgreiningu þar sem inntak
hennar gerir viljandi lítið úr konum.
Þegar kæra hefur borist íslenskum
dómstólum verður herferðin annað-
hvort dæmd brotleg eða ekki. Ef
hún verður dæmd sem brot er það
klárlega staðfesting á því að hún
flokkast undir ofanritaða skilgrein-
ingu á „hate speech“.
Verði herferðin ekki dæmd brot-
leg (sennilega myndu lög um mál-
frelsi vera sterkust herferðinni til
varnar) þá væri hægt að áfrýja til
hæstaréttar. Ef sá dómstóll myndi
einnig dæma Vífilfelli í vil, þá koma
alþjóðalög til sögunnar því málinu
mætti þá vísa til Evrópudómsstóls-
ins. Tíunda grein Mannréttindasátt-
mála Evrópu segir m.a.:
1. Sérhver maður á rétt til tján-
ingarfrelsis. Sá réttur skal einnig ná
yfir frelsi til að hafa skoðanir, taka
við og skila áfram upplýsingum og
hugmyndum heima og erlendis án
afskipta stjórnvalda...
2. Þar sem af réttindum þessum
leiða skyldur og ábyrgð er heimilt
að þau séu háð þeim formsreglum,
skilyrðum, takmörkunum eða við-
urlögum sem lög mæla fyrir um og
nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóð-
félagi vegna þjóðaröryggis, land-
varna eða almannaheilla, til þess
að firra glundroða eða glæpum, til
verndar heilsu eða siðgæði manna,
mannorði eða réttindum...
Ég bendi sérstaklega á orðalag-
ið í grein 10.2 um verndun siðgæð-
is og réttinda þegna, en til þess hafa
hin íslensku jafnréttislög einmitt
verið sett. Talsvert mörg mál hafa
farið fyrir
Evrópu-
dómstólinn
útfrá þess-
ari grein
og ég tel að
í þessu til-
felli myndi
málið klár-
lega verða
dæmt sækj-
anda í vil.
Þó að of-
angreindur rökstuðningur sýni fram
á að herferð Coke Zero sé mannrétt-
indabrot samkvæmt Evrópulögum,
þá brýtur hún einnig gegn fjölda
annarra alþjóðlegra sáttmála og
má þar helst nefna: Sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna (málsgrein 2 í for-
mála, grein 1, 13, 55 og 76), Mann-
réttindayfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna (greinar 1,2 og 7), Alþjóð-
lega sáttmálann um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi (grein 2, 20
og 26) og Kvennasáttmálann (grein-
ar 1, 2 og 5).
Mig langar einnig að skoða málið
frá siðferðilegu sjónarhorni. Þú út-
skýrir í svari þínu að herferðin byggi
á erlendri fyrirmynd og hef ég ein-
mitt kynnt mér þá herferð (sérstak-
lega hér í Bretlandi þar sem ég bý).
Í fyrsta lagi þá fer breska herferð-
in hvergi jafnlangt yfir strikið og
sú íslenska (frasann „af hverju ekki
konur með ZERO skoðanir“ hef ég
t.d. hvergi séð annars staðar en á Ís-
landi). Í öðru lagi þá réttlætir upp-
runi herferðarinnar ekki innihald
hennar. Hvert land hefur ákveðin
lög og sem betur fer er Ísland fram-
arlega á merinni hvað varðar jafn-
réttislög. Herferðin brýtur íslensk
lög, algerlega óháð því hvernig hún
hefur gengið erlendis (en víða hefur
henni verið mótmælt).
Í svari þínu við kvörtun minni
segir þú: „Herferðin á að vera góð-
látlegt grín um hvernig lífið væri
ef það væri aðeins einfaldara og er
þema herferðarinnar hvernig góðir
hlutir gætu verið betri ef þeim
fylgdu engar afleiðingar“. Sam-
kvæmt þessu má skilja staðhæf-
inguna „af hverju ekki konur með
ZERO skoðanir“ sem svo að skoðan-
ir séu þær slæmu „afleiðingar“sem
fylgja þeim annars „góða hlut“
konum.
Þarf ég virkilega að útskýra nánar
fyrir þér Stefán af hverju þessi her-
ferð er ólögleg, siðlaus og markaðs-
leg sjálfsmorðstilraun? Væri betra
að láta hér við sitja og sættast á þá
staðreynd að landið okkar er komið
lengra en svo á hinni þróunarlegu
mannréttindabraut en að slík aðför
að einhverjum þjóðfélagshóp líð-
ist? Eða finnst þér kannski að ennþá
lengra mætti ganga: „af hverju
ekki kynlíf með ZERO samþykki?“
er þessi staðhæfing líka góðlátlegt
grín? Af hverju ekki?
Ég er viss um að þú ert greind-
ur og vel gerður maður Stefán og
ég hvet þig til að gera einn einfald-
an hlut. Sestu niður og lestu „góðlát-
lega grínið“ um konur sem er í þess-
ari herferð og segðu mér á hvaða
tímapunkti þú hlærð mest.
Höfundur er meistara-
nemi í mannréttindum við
University of London.
Opið bréf til mark-
aðsstjóra Vífilfells
K
A
R
E
N
M
IL
L
E
N
KAREN MILLEN
Kringlunni og Smáralind
vorútsala
afsláttur af
völdum vörum
30%