Fréttablaðið - 19.04.2007, Page 44
fréttablaðið sumarhús 19. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR2
Skógrækt við sumarbústaði
hefur aukist mikið síðustu ár
og Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktar-
félags Íslands, segir að um
níutíu og fimm prósent sumar-
bústaðaeigenda gróðursetji
tré við bústaði sína.
„Skógrækt hefur aukist gífurlega
og nánast allir sem eru með bú-
staði eru að rækta í kringum sig.
Fólk er að bæta skjólið við bú-
staðina og skilyrðin og koma sér
upp svona reitum. Þetta er ekki
bara puð, fólk fær líka lífsfyll-
ingu og ánægju af að vinna þetta
og rækta á sínum lendum,“ segir
Brynjólfur.
Ástæðuna fyrir því að svo
margir eru farnir að stunda rækt-
un við sumarbústaði sína telur
Brynjólfur vera staðsetningu
bústaðanna. „Áður var fólk að
byggja bústaði í skógarlendum
og einhverju kjarri en núna er
það liðin tíð.
Það sem býðst í dag er yfirleitt
lönd þar sem enginn trjágróður er
til staðar og því þarf fólk að byrja
á byrjuninni hvað það varðar.“
Brynjólfur segir að sumar-
bústaðaeigendur séu mjög hug-
myndaríkir þegar kemur að vali
á trjátegundum. „Það er kannski
dálítið misjafnt eftir landshlut-
um hvaða tegundir eru vinsælast-
ar en í dag nota menn mjög fjöl-
breytta flóru af trjám og runnum.
Framboðið er orðið miklu meira
og þekkingin líka og fólk er farið
að notfæra sér það,“ segir hann.
Þeir sem vilja fræðast meira
um gróðursetningu og trjárækt
geta farið inn á heimasíðu Skóg-
ræktarfélags Íslands, www.skog.
is, þar sem hægt er að finna
ýmsar upplýsingar. „Svo erum
við að fara af stað með gróður-
setningarnámskeið í maí sem
getur verið gott fyrir þá sem ætla
að fara að rækta upp landið sitt,“
segir Brynjólfur.
emilia@frettabladid.is
Ánægjuleg vinna sem
veitir mörgum lífsfyllingu
Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, segir gróðursetningu við sumarbústaði alltaf vera að aukast
enda séu bústaðir í dag ekki lengur byggðir í skógarlendum eða kjarri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Berjarunnar verða sífellt vinsælli og hér er verið að uppskera af hunangsvið.
Í barrskógum má oft sjá rjúpnaspor en rjúpan heldur oft til í þeim og leitar þar skjóls.
Á vorin spretta vorlaukar víða í skógum.
Loðvíðir er ein af þeim tegundum sem
boða komu vorsins.
Tilvalið í bústaðinn