Fréttablaðið - 19.04.2007, Page 50
19. APRÍL 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið sumarhús
Sífellt fleiri kjósa að búa í sumar-
bústöðum allt árið um kring.
„Sumarbústaðaeigendum fjölgar
stöðugt hérlendis og það verður al-
gengara að fólki minnki við sig í
bænum og kaupi sér rúmgóða bú-
staði til að að búa í allt árið um
kring,“ segir Heimir Guðmunds-
son, byggingameistari og eigandi
Trésmiðju Heimis, sem sérhæfir
sig í smíði sumarbústaða.
Heimir bendir á að í samræmi
við þessa þróun séu sumarbústaðir
sífellt meir farnir að líkjast íbúð-
arhúsum. „Sumarbústaðirnir sem
Trésmiðja Heimis byggir eru sem
dæmi frá 42 og upp í allt að 300
fermetra stórir. Hægt er að fá þá
fullbúna utan jafnt sem innan; með
rafmagni og hita, ljósum, gólfefn-
um, sérsmíðuðum innréttingum,
heimilis- og hreinlætistækjum og
steyptum grunni.“
Þá er lóð óupptalin, sem bústað-
urinn stendur á, jarðvinna, teng-
ing fyrir rotþró, flutningur á bú-
stað, skjólveggir, gestahús, sem
eru oft á bilinu 25-30 fermetra stór,
sólpallar og heitir pottar, sem eru
að verða órjúfanlegur hluti sumar-
bústaðaparadísa að sögn Heimis.
„Við réttum fólki síðan lykla að
húsunum fullkláruðum,“ útskýrir
hann. „Það tekur rúmt ár að koma
svona heildarpakka saman, hvort
sem við förum eftir eigin teikning-
um eða annarra. Þeir sem panta
sumarbústaði nú geta þannig
vænst þess að fá þá afhenta næsta
vor.“
Heimir segir fullbúna 95 fer-
metra sumarbústaði geta kost-
að frá 26 til 28 milljóum og upp
úr, háð staðsetningu og séróskum
hvers og eins. „Verðlagið skýrist af
því að miklu meira er lagt í sumar-
bústaði nú en áður fyrr. Sem dæmi
erum við í síauknum mæli farin að
flísaleggja baðherbergi, forstofu,
ganga og eldhús. Eins og ég segi er
þetta í takt við þá hugarfarsbreyt-
ingu sem hefur orðið upp á síðast-
kastið. Fólk er farið að líta á sum-
arbústaði sem heilsárshúsnæði.“
Hægt er að fræðast betur
um Trésmiðju Heimis á www.
tresmidjan.is. roald@frettabladid.is
Flutt úr bænum
í bústaðinn
Sumarbústaðir líkjast sífellt meir
venjulegum íbúðarhúsum, þar sem
sífellt fleiri kjósa að búa í þeim allt árið
um kring.
Hægt er að fá sumarbústaðina fullbúna að innan, með gólfefnum, innréttingum,
heimilis- og hreinlætistækjum og fleiru.
Heimir segir fullbúna 95 fermetra sumarbústaði geta kostað frá 26 milljónum og upp
úr, allt eftir staðsetningu og séróskum hvers og eins.
Heimir Guðmundsson byggingameist-
ari hefur marga ára reynslu af smíði
sumarbústaða. Að hans sögn er svæðið
í kringum Flúðir með vinsælli stöðum til
að byggja sumarbústaði á.
MYND/EGILL BJARNASON
Ekki láta
þér leiðast
Engin tölva, ekkert sjón-
varp, langt í bæinn... Fyrir
fólk sem veit ekkert hvað
það á af sér að gera í bú-
staðnum eru hér nokkrar
hugmyndir:
Lestu tímarit. Allir
hafa áhuga á einhverju og
fyrir hvert áhugamál er að
minnsta kosti til eitt tíma-
rit. Tölvuleikir, snekkjur,
golf, kynlíf, bakstur, tón-
list... tímarit skipta hundr-
uðum og nú er lag að lesa
upp til agna.
Gerðu líkamsæfingar.
Ef þú hefur ekki komið þér
af stað í ræktinni er þetta
rétti tíminn til að einbeita
sér að æfingunum.
Planaðu... Næstu vikur,
mánuði, ár. Gerðu lista yfir
allt sem þig langar til að
gera heima hjá þér, í vinn-
unni, utan vinnu. Hver eru
markmið þín? Í sumarbú-
stað er ágætt að stunda
svolitla íhugun.
Spilaðu. Það er gaman
að spila við fjölskyldu og
vini. Í raun getur það verið
töluvert meira spennandi
en að horfa á morðsögu í
sjónvarpinu.
Sumarhúsið
& Garðurinn
VÆNTANLEG
Græn útgáfa í sókn
Kíktu í básinn okkar á sýningunni
Sumar 2007
í Fífunni í Kópavogi
um helgina.
Glæsilegir vinningar í boði
fyrir áskrifendur okkar.
Áskriftarsími 586 8005
og á www.rit.is
Blöðin og bækurnar fást einnig á öllum helstu blaðsölustöðum um land allt
Sumarhúsið og garðurinn ehf.
Síðumúla 15, 108 Reykjavík
Sími 586 8005 • www.rit.is
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI