Fréttablaðið - 19.04.2007, Side 91
KR-ingar fögnuðu Ís-
landsmeistaratitlinum vel og inni-
lega síðastliðinn mánudag. Vestur-
bæingar ætla ekki að láta þar við
sitja og þeir eru langt frá því að
vera saddir. Að sögn Böðvars Guð-
jónssonar, formanns körfuknatt-
leiksdeildar, hefur stefnan verið
sett beint á toppinn síðan hann tók
við og þar er stefnan að halda KR.
„Við erum þegar byrjaðir að spá
í næsta tímabil. Ég og Benni þjálf-
ari tókum mat saman í hádeginu
þar sem við byrjuðum að leggja
línurnar fyrir næsta tímabil,“
sagði Böðvar í gær en það er ljóst
að Benedikt stýrir liðinu áfram.
Hann kom til félagsins á ný síð-
asta sumar eftir að hafa gert mjög
góða hluti hjá Fjölni í Grafarvogi.
Benedikt skilaði þeim stóra strax
á fyrsta ári sem var reyndar eitt-
hvað sem KR-ingar höfðu ekki
gert sér miklar væntingar um í
upphafi móts.
Allir íslensku leikmennirnir hjá
KR fyrir utan tvo eru með samning
við félagið. Liðið missir hinn unga
og stórefnilega Darra Hilmars-
son sem er á leið í nám til Banda-
ríkjanna. KR segist vilja halda út-
lendingunum sínum enda hafi þeir
staðið vel undir væntingum.
„Ég mun ræða við Tyson [Patt-
erson] og von okkar stendur til
þess að hann verði áfram. Honum
hefur liðið vel hér þannig að við
erum nokkuð bjartsýnir á að það
gangi eftir. Hann hefur einnig sagt
í viðtölum að hann geti vel hugsað
sér að vera hér áfram sem er mjög
jákvætt.
JJ Sola er nokkurt spurning-
armerki en hann ætlar að skoða
sín mál og svo tölum við saman í
sumar. Vonandi getur hann komið
aftur,“ sagði Böðvar en Sola er á
leið til Bandaríkjanna, konan hans
á von á sér á hverri stundu og af
því vill Sola ekki missa.
Ekki hefur verið tekin ákvörð-
un um framtíð Edmunds Azemi
en vel kemur til greina að bjóða
honum að vera áfram.
„Það er bullandi metnaður í
okkur og við ætlum að mæta
grimmir til leiks næsta vetur og
þá verður markmiðið það sama, að
vinna titla,“ sagði Böðvar.
Þegar farnir að spá í næsta keppnistímabil
Ryan Giggs, fyrirliði
Manchester United, hefur sent út
þau skilaboð til stuðningsmanna
félagsins að nú séu það stigin sem
skipti máli en ekki frammistaðan.
United bauð ekki upp á neina
flugeldasýningu gegn Sheff. Utd
en vann sitt verk af fagmennsku
og tók þrjú stig í 2-0 sigri. Það var
svolítið úr takti við síðustu leiki
þar sem United hefur verið lík-
legt til að skora allt að tíu mörk
í leik.
„Þetta snýst ekki um frammi-
stöðu heldur að vinna leiki. Við
getum ekki alltaf skorað fjögur til
fimm mörk. Ég myndi sætta mig
við 1-0 sigur gegn Middlesbrough
nú þegar. Lykillinn er að halda
hreinu þar sem sóknin mun alltaf
skapa færi og við þar af leiðandi
líklegir til að skora,“ sagði Giggs
sem hefur farið hreint á kostum í
vetur.
Stigin skipta
öllu máli
Chris Coleman segir
að hann sé í öngum sínum og í
raun niðurbrotinn maður eftir að
hafa verið rekinn úr starfi knatt-
spyrnustjóra Fulham á dögunum.
„Ef ég á að segja eins og er þá
er ég niðurbrotinn maður. Ég var
búinn að vera hjá félaginu í tíu
ár og átti engan veginn von á því
að vera rekinn. Félagið þarf samt
að taka sínar ákvarðanir og hefur
sínar ástæður fyrir þeim,“ sagði
Coleman sem ber enn hlýjar til-
finningar til félagsins.
„Ég þekki mikið af fólki hjá fé-
laginu eftir langa dvöl þar og vil
alls ekki sjá það falla niður um
deild. Liðið er sterkt og í liðinu
eru sterkir karakterar. Ég hef
fulla trú á að liðið bjargi sér.“
Niðurbrotinn
maður
Verð 4.190.000kr.
Saab 9-5 Arc // 2.0 turbo sjálfskiptur // 150 hestöfl
Segðu Saab!
Það sést úr mílu fjarlægð þegar Saab er á ferðinni. Því það segir einfaldlega:
Saab. Hvað segir þú? Brostu út að eyrum og segðu Saab! Þá sést að þú ert
manneskja með góðan smekk fyrir vandaðri vöru, gæðum, klassa. Það sést að
þú lætur ekki bjóða þér hvað sem er. Það sést að þú hefur stíl. Já, þú ert
manneskja sem segir Saab! Saab 9-5 Arc er samheiti yfir klassískt útlit, fágun
og smekk, gæði, öryggi og tækni. Hann er rúmgóður, þægilegur, hljómþíður,
lipur, mjúkur, öruggur, með glæsilegri leðurinnréttingu, með mjúkum hemlum,
sjálfskiptur, skemmtilega hannaður, ríkulega búinn, í einu orði sagt: Saab.
Segðu Saab! Saab 9-5 Arc!
Búnaður sem segir Saab:
• Tölvustýrð loftkæld miðstöð (ACC)
• SAHR virk höfuðvörn að framan (Saab Active Head Restraint)
• Tölvustýrð spólvörn
• Stöðugleikakerfi
• Xenon ljósabúnaður sem stillir sig sjálfur
• Aksturstölva
• Saab Sentronic sjálfskipting