Fréttablaðið - 19.04.2007, Page 96
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ ORATOR
- félag laganema við Háskóla Íslands
mmtudaga
milli 19:30 - 22:00 í síma 551-1012
Ævintýraleg
símatilboð
Allir símar frá Vodafone afhendast forhlaðnir,
forstilltir og með 2 ára ábyrgð.
Með Vodafone live! kemst þú á Netið í símanum
þínum og getur til dæmis skoðað hvað er í bíó,
náð í brandara, skoðað stjörnuspána þína og
halað niður hringitónum og skjámyndum.
Komdu í næstu Vodafone verslun, hringdu í
1414 eða smelltu þér inná www.vodafone.is til
að fá nánari upplýsingar.
Gríptu augnablikið og lifðu núna.
Vodafone live!
Nokia 6234
Miklu meira en bara sími.
Með Bluetooth, myndavél,
útvarpi, steríó heyrnartólum
og styður minniskort.
Vodafone live!
Nokia 6131
Þú getur horft á Sky News
allan sólarhringinn, sótt
og horft á fréttir Stöðvar 2
ásamt fleira spennandi efni.
Vodafone live!
Sharp GX-17
Mjög fjölhæfur á ótrúlegu
verði.Með Bluetooth,
myndavél og USB
tengjanlegur.
F
ít
o
n
/
S
ÍA
Ævintýraverð
26.900 kr.
Ævintýraverð
9.900 kr.
Ævintýraverð
19.900 kr.
Líf dýra eru misdýrmæt. Í fínu lagi er að slátra rottum og
mávum miskunnarlaust, en allt
yrði vitlaust ef eitrað væri fyrir
veluppöldum kettlingum eða verð-
launahundar skotnir á færi. Hest-
ur sem finnst soltinn í bás kallar
á sterk viðbrögð samfélagsins en
hrekkjusvíni sem tekst að murka
lífið úr villtum minki við tjörnina
er hampað sem hetju. Við troðum
okkur út af gómsætu kjöti án þess
að pæla í því að einu sinni var það
hrínandi, baulandi og jarmandi, en
fáum tárin í augun þegar Lassie
fótbrotnar í bíó. Svona er tvískinn-
ungurinn algjör og ekkert í því að
gera nema gerast grænmetisæta
og góðmenni – en hver nennir því?
sama skapi virðast mannslíf
misdýrmæt. Að minnsta kosti sé
miðað við fréttirnar í sjónvarp-
inu, en þær eiga sem kunnugt er
að sýna okkur lífið eins og það er.
Á hverjum degi eru sprengdir upp
svo og svo margir Írakar. Þetta
er síendurtekin frétt og búin að
dynja á okkur lengi. Nýjustu frétt-
ir um fallna hörfa lengra og lengra
inn í fréttatímana, enda allir orðn-
ir hundleiðir á þessu. Á mánudag-
inn skaut brjálaður maður 32 í am-
erískum háskóla. Þetta kallaði á
vandaðan og nákvæman frétta-
flutning og auðvitað var þetta
fyrsta frétt. Þetta var náttúrlega
óvæntari og ferskari dauðafrétt en
þessar endalausu frá Írak.
apríl hafa nú þegar um 700 írask-
ir borgarar verið drepnir. Það
er svipað og ein Bolungarvík. Á
sunnudaginn voru til dæmis 35
Írakar drepnir og mörgum sinn-
um fleiri særðust. Á einum stað
hafði verið komið fyrir sprengjum
í tveimur bílum og sprakk seinni
sprengjan þegar björgunarmenn
voru að hlúa að þeim sem lentu í
fyrri sprengingunni. Þessi dag-
legi skammtur af viðbjóði var tí-
unda frétt sjöfrétta RÚV, langt
á eftir frétt af gömlu eggjabúi í
Vestmannaeyjum sem eyðilagðist
í eldsvoða. Látnu Írakarnir þóttu
ekki nógu merkilegir til að vera
með í upptalningunni í lok frétta-
tímans. Þar var hins vegar sú stór-
frétt höfð með að Hong Kong-búar
hafa fengið tvær pöndur að gjöf
frá dýragarði í Peking.
er þetta skiljanlegt
fréttamat. Gömul eggjabú brenna
náttúrlega ekki á hverjum degi í
Vestmannaeyjum og pöndurnar
eru auðvitað í útrýmingarhættu –
bara 3.000 stykki eftir. Það eru hins
vegar enn til rúmlega 26 milljón
Írakar, þótt þeim fari fækkandi.
Fréttamat