Fréttablaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 64
Auglýsingar sendist á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Reynslan ein er ekki vísindi.“
Fimmta Menningarhátíð Grand Rokks
verður haldin dagana 31. maí til 3.
júní næstkomandi. Á hátíðinni verða
haldnir minningartónleikar, myndlist-
arsýning, glæpasagnakeppni, bókaupp-
boð og stuttmyndasýning. Skráning er
jafnframt hafin í leikritasamkeppni
sem verður haldin í tilefni hátíðarinn-
ar á vegum leikfélagsins Peðsins, auk
þess sem Peðið mun flytja tvo einþátt-
unga eftir Jón Benjamín Einarsson á
hátíðinni.
„Félagið var stofnað formlega í nóv-
ember síðastliðnum en fyrsta sýningin
var í hittifyrra,“ segir Lísa Pálsdóttir,
formaður Peðsins, sem er sjálf mennt-
aður leikari. „Vertinn er svo skemmti-
legur að leyfa okkur að æfa á nóttunni
þegar ekkert er um að vera á barnum.
Þannig að það er ekkert bara verið að
sitja og drekka bjór þarna. Við þurf-
um að gera eitthvað annað við tímann
og þetta er góð vörn við bjórdrykkju,“
segir hún og hlær.
Þátttakendur í samkeppninni þurfa
að skila leikritum eða útdráttum úr
leikverki fyrir 15. maí undir leyninafni
með réttu nafni og símanúmeri í lok-
uðu umslagi á Grand Rokk. Dómnefnd
verður skipuð Viðari Eggertssyni, leik-
stjóra, Þorgeiri Tryggvasyni og Lísu.
Hátíðin hefst á minningartónleik-
um vegna fráfalls Gunnars Ólafsson-
ar smiðs, sem var einn af fastagestum
staðarins. Munu Kátir piltar, Sviðin
jörð, South River Band, Andrea Gylfa-
dóttir, Lísa Pálsdóttir, Magnús R. Ein-
arsson og Björgúlfur Egilsson heiðra
minningu Gunnars.
Fastur liður á hátíðinni er myndlist-
arsýning þar sem listamenn eru fengn-
ir til að mála verk á meðan á hátíðinni
stendur. Síðan eru verkin boðin upp í
lok hátíðarinnar. Bókauppboð úr Bóka-
búð Braga Kristjónssonar er einnig
fastur liður auk þess sem glæpasagna-
samkeppni Glæpafélagsins, Mannlífs
og Grand Rokks er aftur komin heim,
en hún féll niður í fyrra. „Þetta er veg-
leg menningarhátíð og það er enginn
annar bar í bænum sem stendur fyrir
svona hátíð,“ segir Lísa. „Ég hvet alla
til að mæta enda verður eitthvað um að
vera alla dagana.“
Studio 54 opnað í New York
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, systur, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
Soffíu Björnsdóttur,
Hjúkrunarheimilinu Dalbæ á Dalvík, áður
til heimilis að Drápuhlíð 48 í Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dalbæjar.
Guð blessi ykkur öll.
Grímur Björnsson Björg Jósepsdóttir
Þorsteinn Björnsson Ásdís Arnardóttir
Björn Á. Björnsson Elísabet Erlendsdóttir
Páll Kristjánsson
Ingibjörg Björnsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástvinur okkar,
Svavar Guðmundsson
frá Odda á Seltjarnarnesi, starfsmaður
Vífilfells hf.,
lést 13. apríl síðastliðinn á heimili sínu að Seljahlíð.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju mánudaginn
30. apríl kl. 11.00.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Þorgerður Sigurjónsdóttir
Guðrún Þorgrímsdóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Einarsson
verkfræðingur, Gimli við Álftanesveg,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð í Garðabæ
þriðjudaginn 24. apríl 2007. Jarðarförin auglýst síðar.
Jón Guðmundsson
Einar Guðmundsson Hulda Jóhannesdóttir
Karólína Guðmundsdóttir Guðmundur Elías Níelsson
Guðmundur Guðmundsson Ruth Sigurðardóttir
Guðlaug Guðmundsdóttir Brynjólfur Sigurðsson
Sævar Leifsson
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, sonur, bróðir, tengdasonur
og mágur,
Daði Halldórsson,
Furugrund 14, Akranesi,
lést fimmtudaginn 19. apríl. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju föstudaginn 27. apríl kl. 10.30.
Kristrún Sigurbjörnsdóttir
Bára Daðadóttir
Hjalti Daðason Elísa Guðrún Elísdóttir
Leó Daðason Erna Frímannsdóttir
Halldór Karlsson
Dröfn Halldórsdóttir Lárus Hannesson
Gauti Halldórsson Guðrún Magnúsdóttir
Barði Halldórsson Hólmfríður Kristjánsdóttir
Sigurbjörn Guðmundsson Málfríður Ögmundsdóttir
Elín Sigurbjörnsdóttir Sveinn Knútsson
María Sigurbjörnsdóttir Guðjón Pétursson
Guðmundur Sigurbjörnsson Ásta Björk Arngrímsdóttir.
Eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Pétur Kristjónsson
sem lést laugardaginn 14. apríl sl., verður jarðsettur
frá Prestbakkakirkju á Síðu laugardaginn 28. apríl
kl. 13.30.
Sigurdís Erla Eiríksdóttir
Ísleifur Pétursson Auður Albertsdóttir
Helgi Pétursson Birna Pálsdóttir
Kristinn Pétursson Ulla Svanteson
Gissur Pétursson Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir
Páll Steinþór Bjarnason
Óskar Bjarnason Maríanna Jóhannsdóttir
Eiríkur Bjarnason Ásta Steina Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
AFMÆLI